Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.01.2015, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2015
„Grímsstaðareitur”, íbúðarsvæði í miðbæ
Hveragerðis.
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar auglýsir hér meðtillögu
að breytingu á Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2005-
2017 samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr.
123/2010.
Svæðið, sem breytingartillagan nær til afmarkast af
Breiðumörk, Þórsmörk, Reykjamörk og Þelamörk.
Breytingin felst í að landbúnaðarnotkun á svæðinu
víkur fyrir íbúðarnotkun. Á lóðum meðfram Breiðumörk
verður áfram verslun og þjónusta með heimild fyrir
íbúðum á efri hæð húsa. Á íbúðarlóðum verður heimild
fyrir minniháttar atvinnustarfsemi. Hæð húsa verður
takmörkuð við 1-2 hæðir.
Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofunum
að Sunnumörk 2 frá og með þriðjudeginum 20. janúar
nk. til þriðjudagsins 3. mars 2015 og hjá Skipulags-
stofnun á Laugavegi 166 í Reykjavík Tillagan er einnig
til sýnis á heimasíðu Hveragerðisbæjar,
www.hveragerdi.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með
gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingar-
tillöguna til miðvikudagsins 4. mars 2015.
Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur
Hveragerðisbæjar, Sunnumörk 2.
Bæjarstjóri Hveragerðisbæjar
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi
Hveragerðisbæjar 2005-2017
SEÐLABANKI ÍSLANDS
auglýsir eftir umsóknum
um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals
Auglýst er eftir umsóknum um árlegan styrk sem tengdur er nafni
Jóhannesar Nordals og er afhentur af Seðlabanka Íslands. Ákveðið var
að veita styrkinn fyrst í tilefni af 50 ára afmæli bankans á árinu 2011.
Tilgangur með styrknum er að styðja viðleitni einstaklinga sem miðar
að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur
fengið í arf.
Umsóknir skulu sendar skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands
fyrir 20. febrúar 2015. Fjárhæð styrksins nemur 2.000.000 kr. og
verður henni úthlutað í apríl eða maí 2015. Eyðublöð fyrir umsóknir
eru aðgengileg á vef bankans og í afgreiðslu á Kalkofnsvegi 1.
Nánari upplýsingar veitir Jón Sigurgeirsson framkvæmdastjóri
á skrifstofu seðlabankastjóra.
Seðlabanki Íslands · Kalkofnsvegi 1 · 150 Reykjavík · Sími: 569 9600
Styrkir
Styrkir
til samgönguleiða
Samkvæmt 25. gr. vegalaga nr. 80/2007 er
heimilt í vegáætlun að ákveða fjárveitingu
til að styrkja tilteknar samgönguleiðir sem
ekki falla undir skilgreiningar vega
samkvæmt vegalögum.
Vegagerðin auglýsir hér með eftir
umsóknum um styrki til samgönguleiða
samkvæmt nefndri lagagrein og 4. gr. reglna
nr. 1155/2011 um þetta efni. Umsókn um
styrk skal senda til starfsstöðvar Vega-
gerðarinnar (Selfoss, Borgarnes, Akureyri,
Reyðarfjörður) á því svæði þar sem
viðkomandi framkvæmd er fyrirhuguð.
Umsóknum skal skilað eigi
síðar en 15. apríl 2015.
Nánari upplýsingar má finna á vef
Vegagerðarinnar www.vegagerdin.is
ásamt umsóknareyðublaði.
Styrkir
til náms í hafrétti
Hafréttarstofnun Íslands er rannsókna- og
fræðslustofnun á sviði hafréttar við Háskóla
Íslands og er meginmarkmið stofnunarinnar
að treysta þekkingu á réttarreglum á sviði
hafréttar.
Að stofnuninni standa Háskóli Íslands,
utanríkisráðuneytið og atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið.
Hafréttarstofnun auglýsir hér með eftirfar-
andi styrki til náms í hafrétti til umsóknar:
1. Styrk til framhaldsnáms í hafrétti
á háskólaárinu 2015-2016.
2. Styrki til þátttöku í sumarnámskeiði
Ródos-akademíunnar í hafrétti 5.- 24
júlí 2015.
Umsóknir sendistTómasi H. Heiðar, forstöðu-
manni stofnunarinnar, með tölvupósti,
tomas.heidar@utn.stjr.is.
ATVINNUVEGA- OG NÝSKÖPUNARRÁÐUNEYTIÐ
Styrkir
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið aug-
lýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna á
sviði sjávarútvegs, landbúnaðar og byggða-
mála.
Um er að ræða styrki sem einkum er ætlað að
styðja við uppbyggingu verkefna á vegum
fyrirtækja, samtaka og einstaklinga og stuðla
að eflingu atvinnulífs og byggða.
Við mat á umsóknum verður litið til þeirrar
þekkingar sem verið er að afla, hæfni
umsækjenda til að leysa verkefnin, reynslu,
aðstöðu og raunhæfni áætlana. Í stærri verk-
efnum verður og sérstaklega litið til samstarfs
mismunandi aðila. Byggðasjónarmið, ný-
sköpun og kynjasjónarmið verða einnig höfð
að leiðarljósi við ákvörðun um úthlutun. Ekki
verða veittir styrkir til ríkisstofnana eða
sveitarfélaga.
Í umsókn skal koma fram greinargóð lýsing á
því verkefni sem sótt er um styrk til ásamt
ítarlegri kostnaðar-, fjármögnunar- og verk-
áætlun. Styrkir verða aðeins veittir til eins árs.
Umsóknir skulu sendar til atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150
Reykjavík eða á netfangið postur@anr.is.
Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 3.
febrúar 2015.
Nánari upplýsingar veitir Hulda Lilliendahl í
síma 545 9700. Einnig má senda fyrirspurnir
með tölvupósti á netfangið hulda@anr.is.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
Jöfnunarstyrkur til náms
Umsóknarfrestur á vorönn 2015 er til
15. febrúar nk.
Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki
njóta lána hjá LÍN geta sótt um styrk til
jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af
búsetu og er fyrir þá sem stunda nám fjarri
heimili sínu.
Dvalarstyrkur (fyrir þá sem dveljast fjarri
lögheimili og fjölskyldu sinni vegna
náms).
Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem
sækja nám frá lögheimili og fjölskyldu
fjarri skóla).
Nemendur og aðstandendur þeirra eru
hvattir til að kynna sér reglur um styrkinn á
vef LÍN (www.lin.is).
Lánasjóður íslenskra námsmanna,
námsstyrkjanefnd.
Tilkynningar
ÚTBOÐ
Orkuveita Reykjavíkur • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 516 6000 • Fax 516 6308
www.or.is/um-or/utbod
Óskað er eftir tilboðum í:
Tölvubúnað„notendabúnað“ fyrir
samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur
Samstæða Orkuveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í innkaup
á tölvubúnaði til næstu ára.
Innkaupin eru nánar skilgreind í útboðsgögnum ORK 2015-01.
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með
þriðjudeginum 20. janúar 2015 á vefsíðu Orkuveitunnar,
http://www.or.is/um-or/utbod
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Tilboð verða opnuð hjá Orkuveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík. þriðjudaginn 17. mars 2015 kl.11:00.
ORK-2015-01 17.01.2015
Landsskipulagsstefna og skipulags-
gerð sveitarfélaga
Skipulagsstofnun mun kynna auglýsta tillögu að Landsskipulagsstefnu
2015-2026 á opnum fundum á eftirtöldum stöðum:
Borgarnesi 19. janúar kl. 15-17 í Landnámssetri Íslands
Akureyri 21. janúar kl. 15-17 á Hótel Kea
Blönduósi 22. janúar kl. 13-15 í Eyvindarstofu
Egilsstöðum 27. janúar kl. 15-17 á Hótel Héraði
Selfossi 28. janúar kl 15-17 á Hótel Selfossi
Reykjavík 29. janúar kl. 15-17 á Nauthóli. Þar verður fundurinn
sendur út í gegnum heimasíðu Skipulagsstofnunar.
Á fundunum verður tillagan kynnt auk þess sem að fjallað verður
sérstaklega um framfylgd landsskipulagsstefnu í skipulagsgerð sveitar-
félaga svo sem við endurskoðun aðalskipulags.
Tillöguna, ásamt umhverfismati og fylgiskjali, Skipulagsmál á Íslandi
2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir, má nálgast á
www.landsskipulag.is og www.skipulagsstofnun.is. Frestur til að skila
athugasemdum er til 13. febrúar 2015.
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga