Reykjalundur - 01.06.1951, Blaðsíða 21
Cirhns Zoo. — Ljónin.
Aðalþáttur og jafnframt sá vinsælasti í
sýningum flestra fjölleikahúsa er leikur
tamdra dýra. Listir þær, sem dýr þessi verða
að nema, áður en þær þykja sýningai'hæfar,
eru furðulegar, svo ótrúlegar, að velflestir
véfengja sögur þær, sem af þeim fara, þar til
sjón verður þeim sögu ríkari. Algengustu
dýrin á hinu hringlaga sviði eru hestar, fíl-
ar, ljón og bimir. Mörg þessara dýra eru
öllum öðrum en kennara sínum háskaleg og
eru því reistar háar og öflugar járngrind-
ur umhverfis sviðið áður en sýningar hefj-
ast. Vilhdýrin láta gjarna ófriðlega gagn-
vart áhorfendum, öskra og hrista grindurn-
ar. Takist ljónum og tigrisdýrum að skjóta
áhorfendum skelk í bringu með ófriðlegu
atferli, þykir sýning vel hafa tekizt. Hús-
bónda sínum eru þau spök og leiðitöm og
virðast hlýða án þvingunar.
Af öðrum þáttum leikskrárinnar má nefna
töfra og fimleikamenn. Hinir síðarnefndu
eru ekki úr flokki þeirra, er leikfimi stunda
í tómstundum. Þetta eru listamenn, sem
frá blautu bamsbeini hafa einbeitt sér að
sérstakri líkamsþjálfun og hafa af list sinni
lífsframfæri, oft ríkulegt. Meðal þeirra má
líta þá, er liðamót hafa miklu fleiri en
eðlilegum mönnum er af náttúrunni gefin,
enda er fjarri því, að líkamir þeirra séu
eðlilegir, miklu fremur eru þeir viðundur,
19
Reykjalundur