Reykjalundur - 01.06.1951, Blaðsíða 29
Cirkus Zoo. —
Bjarndýr.
efna. Dr. Anderson og samverkamenn hans
hafa rannsakað vissar fitusýrur, sem aðeins
finnast í þessum bakteríum. Ein þeirra,
phthiosýra, getur valdið svipuðum mein-
semdum í lungum dýra og bakterían sjálf.
Önnur, mycolsýra, er nauðsynleg fyrir lit-
unareinkenni bakteríunnar. Virðist líklegt,
að lyf, sem fyrirbyggt gæti framleiðslu þess-
ara efna í bakteríunni mundu koma í veg
fyrir frekari margföldun. Sem stendur er
ekkert vitað um framleiðslu sýrnanna, úr
hverju þær eru myndaðar eða á hvern hátt,
en aðferðir til þeirra rannsókna eru vel
þekktar.
Eins og sjá má á þessu stutta yfirliti, er
þekking vísindamanna á þessum skaðlegu
lífverum stöðugt að aukast. A slíkum rann-
sóknum byggjast framtíðarvonir um endan-
legan sigur í baráttunni gegn þessum sjúk-
dómi, sem enn sviftir svo margt ungt fólk
heilsu og lífsgleði.
San Francisco, Kaliforníu, ágúst 1951.
Reykjalundur
27