Reykjalundur - 01.06.1951, Blaðsíða 40
Heilum hönd að rétta.
Lífs ef þolið þrýtur
þung er æviraun.
Þá er heilsan hugsjón,
heilög sigurlaun.
Vorsins ylþeyr yngir
angan blóms er kól.
Þannig veikur vonar
að vermast lífsins sól.
Hvíti dauði kunni
kefja þrótt og fjör.
Æskumenn og meyjar
muna bitran hjör. —
Fölva vanga er færði.
Fylgjumst bæði að.
Hugarmynd sú mundi
minna á sölnað blað:
Heilum hönd að rétta
hinum sjúka ber.
Markvíst miðlað hefur,
mörgum hjálpað er.
Ef einn úr hópnum heltist
heildarmáttur dvín.
Island þarf að eiga
óskipt börnin sín. X.
KROSSGÁTA.
Lárétt:
1. Vinnur í heyi. 4. strætið, 7. útlimir,
9. mannaðan, 11. planta, 13. herma, 14. nærð-
ust, 16. göfugan, 18. staflar, 20. blekking,
21. verkur, 22. galdra, 24. svardagar, 26. tíða,
27. rispa, 29. kvika, 30. bátsverjar, 33. ferða-
lags, 34. selurinn, 35. hávaði.
Lóðrétt:
1. Blómum, 2. forfaðir, 3. erindið, 4.
gerir vart við sig, 5. mannsnafn ef., 6. gagn-
legur, 8. tjón. 9. drengur, 10. gefnar upp
sakir, 12. jurtahlutar, 15. grípið, 17. forskeyti,
19. erfiði, 22. svölu, 23. ójafnan, 24. jarðar-
skikinn, 25. þekkir leiðina, 28. forfeður, 31.
þjálfa, 32. örn.
Einmitt þegar átti,
auðnu að hefja leit,
höndin bleika benti,
boðorð döpur reit.
Framtíð virtist vera
vonlaus -— þyrnibraut:
Athvarf mildast mundi
móður jarðar skaut.
Tíðum varð svo vera
vors að lífsfrjó kól.
En, þó öðru sinni,
auðnu leið frá sól,
dökkvi dauðans hvíta,
dagur þráður rann.
Loks að Reykjalundi
lífsþrótt endurvann.
38
Reykjalundur