Morgunblaðið - 03.02.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.02.2015, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3. F E B R Ú A R 2 0 1 5 Stofnað 1913  28. tölublað  103. árgangur  KYNNA LAND ROVER Á ÍSLANDI EFTIRSPURN MEIRI EN FRAMBOÐIÐ ÍSLENSKI DANS- FLOKKURINN OG KAROL TYMINSKI KÓPAVOGUR 18-19 DANSHÁTÍÐ 38BÍLAR FORTE blanda meltingargerla MÚLTIDOPHILUS þarmaflóran hitaþolin www.gulimidinn.is Vetrarveður hafa tafið smiðina sem vinna að byggingu Hótels Húsafells í Borgarfirði en ekki stöðvað þá. Grípa hefur þurft til ýmissa ráða, meðal annars að hita upp steypumótin, svo hægt væri að halda áfram. Nú er allri steypuvinnu lokið og verið að loka hverri álmunni á fætur annarri. Síðasta verkið í því er að koma þakgluggum fyrir. Búið verður að loka öllum húsunum um miðjan næsta mánuð og eftir það verður hægt að vinna inni og við betri aðstæður. Áfram er áætlað að opna hótelið 17. júní í sumar og byrjað að bóka gesti í júlí. »6 Morgunblaðið/Ómar Þakgluggarnir hífðir og komið fyrir á sínum stað Smíði Hótels Húsafells er nokkurn veginn á áætlun þrátt fyrir tafir af völdum vetrarveðranna  Sandfokið úr hinum gamla botni Hagavatns yfir gróið land í Lamba- hrauni er einhver hraðskreiðasta gróðureyðing sem átt hefur sér stað hér á landi, að mati dr. Sig- urðar Greipssonar, háskólaprófess- ors í Atlanta í Bandaríkjunum. Sigurður telur að með því að stífla og færa gamla vatnsbotninn á kaf megi loka uppsprettu sandfoks- ins. »12 Hraðskreið eyðing Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sala á raftækjum stórjókst í janúar milli ára og eru dæmi um að sölumet hafi fallið í einstökum verslunum. Söluaukningin hjá Elko, stærstu raftækjaverslun landsins, hleypur á tugum prósenta í öllum helstu flokk- um raftækja sem báru vörugjöld. Eykst salan í einstökum flokkum raftækja um allt að 88%. Gestur Hjaltason, framkvæmda- stjóri Elko, segir afnám vörugjalda og lækkun virðisaukaskatts geta leitt til 17-21% verðlækkunar á raf- tækjum sem báru vörugjöld. Raftæki „mokast út“ hjá Elko „Vörur hjá okkur hafa mokast út eftir áramótin. Hvort þetta heldur áfram verður að koma í ljós,“ segir Gestur og bendir á að kaupmáttur almennings til raftækjakaupa hafi aukist mikið á síðustu árum. Hlíðar Þór Hreinsson, fram- kvæmdastjóri Heimilistækja, hefur selt raftæki í um 20 ár. Hann segir aðspurður að útsalan hjá Heim- ilistækjum í janúar hafi verið sú besta sem hann muni eftir og sú „langbesta frá hruni“. „Þetta er besta útsala sem við höf- um nokkurn tímann verið með,“ seg- ir Hlíðar Þór. Hann bendir á að sú ákvörðun RÚV að hætta hliðrænum útsend- ingum hafi aukið sölu á sjónvörpum í janúarmánuði enn frekar. Mikil söluaukning varð einnig hjá Max raftækjum og Sjónvarps- miðstöðinni. Möguleg áhrif leiðréttingar Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar, segir „að því megi velta fyrir sér hvort leiðréttingin í byrjun nóv- ember hafi haft þau áhrif að neyt- endur hafi leyft sér meira“. Sala raftækja eykst um tugi prósenta  Skattalækkun örvar sölu  Sölumet hjá Heimilistækjum Morgunblaðið/Ómar Raftæki Þvottavélar hafa rokið út í verslunum síðustu vikurnar. MSprenging varð... »4 Raftæki rifin út » Sala á uppþvottavélum hjá Elko eykst um 88% milli ára og sala á mínútugrillum um 84%. » Sala á stórum raftækjum eykst um að meðaltali 51% frá fyrra ári, þar með talið um 64,7% á sjónvörpum. » Sala á þvottavélum jókst um 50% hjá Elko.  „Þessi loðna er á fleygiferð í vest- ur. Við erum búnir að elta hana úr Eyjafjarðarál og Skjálfanda,“ sagði Stefán Geir Jónsson, stýrimaður á Lundey NS. Þeir enduðu austan við Skagagrunn þar sem þeir fylltu skipið af fínni loðnu. Þar voru nokkur skip að veiðum í gær og önnur voru austur af Gerpi. Í gærkvöld var Lundey NS á leið til Akraness með um 1.550 tonn. Reiknað var með að hún kæmi til hafnar um miðjan dag í dag. Stefán sagði að leiðindaveður hefði verið á miðunum fram eftir fyrrinótt. Svo lægði og þeir fengu ágætis kast. Síðdegis í gær fengust líka ágætis köst. Stefán sagði að þeir hefðu séð pínulitlar peðrur af loðnu þegar þeir sigldu yfir Reykjafjarðarálinn. Loðnan virðist því vera víða. »22 Lundey NS Væntanleg til Akraness í dag með fullfermi af loðnu. Loðnan var á fleygi- ferð vestur með Norðurlandinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.