Morgunblaðið - 03.02.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.02.2015, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2015 Ég kynntist tengdamóður minni, Gyðu, fyrir um níu árum. Þá var hún mjög fullorðin í árum talið en þar með var bara hálf sagan sögð eins og ég komst að raun um. Hún var orkumeiri en nokkur kona sem ég hafði kynnst á hennar aldri. Sennilega yrði henni lýst í forn- sögum sem skörungi miklum, bæði til orðs og æðis. Hún var með eindæmum vel skipulögð kona sem hafði reglu og stjórn á öllum hlutum. Aðstoð bað hún sjaldan um og ef svo bar undir mátti slík aðstoð aðeins vera að hennar frumkvæði og verkefnið var þá skýrt afmarkað. Gyða bjó í huggulegri íbúð sem hún hafði innréttað af smekkvísi. Engu var þar ofaukið enda þoldi hún ekki óreiðu. Hún var vel lesin, vel að sér og fróðleiksfús. Hún fylgdist vel með þjóðfélagsmálunum og hafði ákveðnar skoðanir á mönn- um og málefnum. Það kom oft fyrir að hún skrifaði í blöðin eða kom skoðunum sínum á framfæri á annan hátt. Gyða var í sumum efnum vandlát, ekki síst þegar kom að hráefni í mat enda var hún afbragðs kokkur og nýjungagjörn í þeim efnum. Hins vegar kunni hún sér hóf enda vildi hún passa upp á línurnar og það tókst vel eins og allt annað. Ég verð Gyðu ævinlega þakk- lát fyrir að hafa tekið mér og börnum mínum eins vel og raun bar vitni, eftir að ég kom inn í líf Valtýs sonar hennar. Það er ekki sjálfgefið þegar í hlut eiga mæður sem hafa sterkar skoðanir. Af henni lærði ég hversu mikilvægt er að skipuleggja sig fram í tím- ann og gera sér grein fyrir styrk- leikum sínum og veikleikum. Skammsýni var ekki til í orðabók Gyðu og lagði hún sig fram við að leiðbeina unga fólkinu sínu um hversu mikilvægt það væri að hafa stefnu í lífinu. Gyða vissi löngu áður en við hin hvernig lífs- klukka hennar sló. Hún vissi þeg- ar tími var kominn til að minnka við sig húsnæði þótt hún væri ekki alveg tilbúin að sleppa hend- inni af bifreiðinni sinni sem hún ók alveg til hins síðasta. Gyða var mikill Siglfirðingur í sér og fylgd- ist náið með uppbyggingu á staðnum undanfarin ár. Hún hafði gert ráð fyrir að eyða ævi- kvöldinu þar á dvalarheimili fyrir aldraða. Var þetta allt komið í far- veg að hennar frumkvæði. Kallið kom hins vegar fyrr en ætlað var og Gyða kvaddi eftir stutta sjúkrahúsvist. Þegar hún sá hvert stefndi sagði hún við sitt fólk að hlutirnir yrðu bara að hafa sinn gang. Hún vissi að ekkert yrði af förinni til Siglufjarðar, að minnsta kosti ekki í bili því ef ég þekki hana rétt er hún komin þangað núna, enda gerði hún allt- af það sem hún ætlaði sér. Sigríður Hjaltested. Gyða Jóhannsdóttir ✝ Gyða (Guðný)Jóhannsdóttir fæddist 19. sept- ember 1923. Hún lést 23. janúar 2015. Útför Gyðu var gerð 2. febrúar 2015. Ég hef verið svo heppin að hafa margar sterkar fyr- irmyndir í mínu lífi. Arkandi fremst í þeirri fylkingu er amma Gyða. Hún hefur verið ómetan- legur styrkur og leiðtogi fjölskyld- unnar allt frá því löngu áður en ég fæddist. Stórbrotn- ari konu hef ég ekki kynnst. Amma Gyða var alltaf á undan sínum tíma. Sem dæmi má nefna þegar hún byrjaði að leggja ríka áherslu á grænmeti í mataræði sona sinna þegar það var af skornum skammti og, eins og Val- týr frændi sagði, aðeins fáir sér- vitringar lögðu sér það til munns. Hún sagði mér sjálf eitt sinn að hún hefði í gamla daga klætt sig upp sem jólasvein og gefið gjafir. Synir hennar þverneita því og segja að þeir hafi sjálfir lent í því hlutverki. Ætli hún hafi ekki verið að reyna að hvetja barnabarnið óbeint til að vera sjálfstætt og fara nýjar leiðir með þessari sögu. Það finnst mér líklegt því það þótti auðvitað fráleitt að kona léki jólasvein þá. Amma Gyða hafði ríka réttlæt- iskennd. Enginn mátti minna mega sín, allir fengu jafnt og eng- inn mátti gleymast. Lífsspeki hennar og veganesti geymi ég ná- lægt hjartanu. „Ef þú vilt eitt- hvað, drífðu í því. Ekkert bull. Ef það þarf að gera eitthvað, gerðu það. Vertu dugleg og það þýðir ekkert að bíða eftir að aðrir geri hlutina fyrir þig. – Já og gerðu það elegant.“ Svona myndi ég lýsa lífsspeki ömmu Gyðu í stuttu máli. Stundum finnst mér með hana eins og marga sem hafa verið dá- lítið á undan sínum tíma að ekki allir skildu hana eða hennar lógik. Hún sá hlutina og aðstæður fljótt út og dembdi sér í þá. Oft með ný- stárlegum leiðum. Hún las blöðin öll á fimm mínútum ef hana lang- aði en vissi þó ítarlegt innihald greinanna. Það besta var hve oft henni var slétt sama um álit ann- arra á sjálfri sér, hve óhrædd hún var við að segja skoðanir sínar og standa með þeim. Þessi blanda í hennar karakter gat oft verið gráthlægileg en það sem mikil- vægara er, er að hún kenndi barni sem var að komast til vits (og er það jafnvel enn) hugrekki og sjálfsvirðingu til þess að standa með eigin skoðunum, áorka, hugsa vel um aðra og taka lífið ekki of alvarlega. Sem barn var ég alltaf viss um að amma mundi verða heimsfræg einhvern tíma fyrir það eitt að vera skarplega hnyttinn snillingur. Jú eða Su- perman. Ömmu Gyðu verður sárt sakn- að. Ekki er hún einungis stór partur og skapandi afl í dýrmæt- um minningum barnæskunnar (oftar en ekki spilandi á greiðu) heldur skildum við hvor aðra. Eins tengingu við aðra mann- eskju hef ég aldrei upplifað. Ég kunni að meta hana ömmu Gyðu. Um leið ég syrgi ömmu mína og vinkonu, er ég þakklát fyrir þau forréttindi að hafa fengið að kynnast henni og átt hana að. Dýrmætustu fjársjóðirnir eru ekki í formi fjár. „Kvæðið um fuglana“ var í miklu uppáhaldi hjá ömmu og læt ég því fylgja brot úr því: En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt Um varpann leikur draumsins perlu- glit. Snert hörpu mína, himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.) Hvíl í friði, elsku amma. Margrét Gyða Jóhannsdóttir. Fallin er frá merkiskonan Gyða Jóhannsdóttir, móðursystir mín. Gyða var fædd á Þrasastöðum í Fljótum og flutti þaðan með for- eldrum sínum til Siglufjarðar 11 ára gömul. Það var merkilegt ferðalagið sem afi og amma fóru sumarið 1935 þegar þau fluttu frá Þrasastöðum til Siglufjarðar með fjögur börn sín. Mamma hefur sagt mér að hún fór ásamt afa og beljunni fótgangandi yfir Siglu- fjarðarskarð en búslóðin og aðrir fjölskyldumeðlimir voru flutt með báti úr Haganesvík. Gyða, sem var elst í systkina- hópnum, var látin taka mikla ábyrgð strax á unga aldri. Hún passaði systkini sín og vann hörð- um höndum margvísleg störf á heimilinu, fyrst í sveitinni og síðar í hinum ört vaxandi kaupstað Siglufirði. Líklegt er að bernsku- árin hafi mótað Gyðu mjög sterkt. Hún var alla tíð harðdugleg, sjálf- stæð og áræðin svo eftir var tekið. Á Siglufirði rak Gyða um árabil fyrirtækið Þormóð Eyjólfsson hf. sem hafði umboð fyrir m.a. Sjóvá og Eimskip. Eiginmaður Gyðu var Sigurður Jónsson, sem þá var annar tveggja forstjóra Síldar- verksmiðja ríkisins, svo nærri má geta að mikil umsvif voru í kring- um þau hjón og þar voru hlutirnir aldeilis að gerast. Ég varð þeirra gæfu aðnjót- andi að Gyða var ekki bara frænka mín, heldur tók hún miklu ástfóstri við mig ungan og hamp- aði mér eins og sínu eigin barni, líklega enn meira en sínum son- um tveimur, sem þó voru og eru hinir gjörvilegustu. Naut ég mín vel í þeirri stöðu að vera uppáhaldið hennar Gyðu. Ég var tíður gestur á hinni flottu skrifstofu hennar í Útvegsbanka- húsinu. Þar átti Gyða alltaf kók og Prins Póló til að bjóða viðskipta- vinum og gestum og lá eftirlætið hennar stundum í þessu góssi daginn út og daginn inn. Á þeim árum sem mest var um- leikis hjá þeim Gyðu og Sigurði voru oft haldnar miklar matar- veislur á Hlíðarveginum. Þar eld- aði Gyða af sinni alkunnu snilld og þangað var að sjálfsögðu eftirlæt- inu boðið. Þarna sat ég, guttinn, til borðs með helstu aristókrötum bæjarins, eini krakkinn að sjálf- sögðu. Ekki vantaði heldur að Gyða treysti mér til allra verka og taldi mig geta flest. Man ég vel þegar hún rétti mér lyklana að hinni stóru og flottu Falcon-bifreið sinni og bað mig um að rúnta með ömmu á meðan þær systur tíndu ber. Að sjálfsögðu gerði ég þetta með mikilli ánægju, setti bara púða undir mig í sætið því ég var ekki nema 14 ára gamall. Eftir að Gyða og Sigurður fluttu frá Siglufirði fékk ég oft að fljóta með Sigurði á tíðum ferðum hans milli Siglufjarðar og Reykja- víkur. Það voru miklar ævintýra- ferðir og gisti ég þá hjá þeim hjónum við afar gott atlæti. Veit ég ekki hvernig þau nenntu að hafa mig, en svona var það nú, Gyða vildi alltaf allt fyrir mig gera og þau Sigurður voru mér ávallt alveg afskaplega góð. Er ég þeim báðum ævarandi þakklátur fyrir allt sem þau gerðu fyrir mig og kenndu mér. Nú er þessi mæta kona gengin eftir merkilegt lífshlaup. Minn- ingin um góða konu lifir. Valtýr, Jóhann og fjölskyldur, við Magga og börn sendum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Ingi Björnsson. Árið 1962 fluttu foreldrar mín- ir til Siglufjarðar. Þar með bjuggu allar þrjár systurnar á Siglufirði. Ég var 5 ára og kynnt- ist öflugum og skemmtilegum frændgarði sem bjó nær allur á Siglufirði á miklum blómatíma. Gyða var höfuð fjölskyldunnar, stjórnsöm, kraftmikil, og afar rausnarleg. Hún var ólík systrum sínum að skapferli þótt allar þrjár hafi borið sterkan svip af hvor annarri. Oft gekk hún fram af systrum sínum sem dáðust að dugnaði og áræðni hennar. Setn- ingin „ja hún Gyða“ var oft notuð þegar aðgerðir hennar og uppá- tæki báru á góma. Þegar afi (Jóhann Guðmunds- son) brá búi á Þrasastöðum í Stíflu í kringum 1935 og fluttist til Siglufjarðar, var Gyða ekki hrifin, hún undi sér vel í sveitinni þrátt fyrir að vera ung sett til verka og send á hestbaki langar leiðir á aðra bæi til að boða fólk í síma á Þrasastöðum. Afi brá á það ráð að senda hana til dvalar til bróður síns að Kleifum í Ólafsfirði á með- an flutningarnir gengu yfir. En Gyða var snögg að aðlagast nýju umhverfi og verða eins og fiskur í vatni hvar sem var. Maður hennar var Sigurður Jónsson, mikill öðlingsmaður, sem þá var annar forstjóra Síldarverksmiðju ríkisins og síðar forstjóri Sjóvár- Almennra trygginga hf. Heima hjá þeim komu fjölskyldurnar saman á jóladag ár hvert og stóð sá siður óslitið frá því um 1960 og fram yfir aldamótin. Jólaboð voru ætíð mikið tilhlökkunarefni hjá okkur öllum. Eftir að synir hennar, Valtýr og Jóhann, voru farnir til náms, leitaði hún oft til okkar yngri frændanna um alls kyns viðvik, sem alltaf var auðsótt, því ekki spillti að launin voru út úr korti miðað við fyrirhafnarlítil erindin. Á sjötugsaldri ákvað Gyða að gefa út niðjatal Þrasastaðaættar. Með því þrekvirki reisti hún sér og allri ættinni varanlegan og skemmtilegan minnisvarða. Hún hafði aldrei komið nálægt tölvu en þegar hún sá hversu auðvelt var að breyta og laga í texta, hikaði hún ekki. „Það sem aðrir geta lært, get ég líka.“ Við vissum öll hin að hún hefði getað bætt við „og yfirleitt betur“. Sjálfstraust hennar, vandvirkni og dugnaður var með ólíkindum. Þegar niðjatalið var langt kom- ið hringi hún í mig og vildi að ég leiðbeindi henni með hvernig láta átti ritvinnsluna búa til index. Þrátt fyrir að þekking mín á rit- vinnslu væri nokkuð góð varð ég að að játa vanþekkingu mína. Hún kvaddi frekar stutt í spuna, þekking mín hafði greinilega beð- ið talsverðan hnekki. Seinna frétti ég að hún hefði haft uppi á manni hjá einu af dagblöðunum sem kunni þetta og tókst honum ekki að komast undan því að kenna henni þetta til hlítar. Samband systranna var mjög náið. Það var bæði Ástrúnu og Gyðu mikið áfall þegar móðir mín Margrét féll frá 2010 því þær töl- uðust allar við næstum hvern ein- asta dag. Um síðustu jól varð fjölskyldan og frændgarðurinn þeirrar ánægju aðnjótandi að hitta Gyðu í hinsta sinn. Engin vissi að hverju dró, en þegar fólk er komið yfir nírætt má búast við hverju sem er. Við leiðarlok er ekkert annað hægt að gera nema þakka fyrir samveruna og ánægjustundirnar. Hlynur Jónsson Arndal. Í hinum smærri byggðum er oft lítill kjarni sem er áberandi og ber uppi drifkraftinn sem heldur atvinnulífinu gangandi. Kjarnakonan Gyða Jóhannsdótt- ir var ein af fáum konum sem voru í forystu fyrir atvinnulífinu á Siglufirði þegar ég var lítill drengur. Hún bjó í næsta húsi á Hlíðarveginum. Vingjarnleg, vel klædd, virðuleg kona sem við krakkarnir litum upp til. Sigurð- ur maður hennar rak Síldarverk- smiðjur ríkisins og Gyða um- boðsmaður Eimskipafélagsins og Sjóvá. Hvortveggja krefjandi störf með mikla þýðingu fyrir lít- ið samfélag. Þeirra var því sárt saknað þegar þau fluttu búferl- um til Reykjavíkur vegna nýrra starfa. Eins og oft gerist þá tapast þráðurinn og tengsl rofna. Þann- ig leið tíminn og lítið fréttist af högum Gyðu. Það var svo fyrir nokkrum árum að ég kynntist þessari merku konu aftur vegna starfa með Valý syni hennar. Mér er minnisstæð heimsókn á dvalarheimili þar sem hún var í hvíldarinnlögn. Það geislaði enn af þessari öldnu konu. Hugurinn skýr og spurningarnar hnitmið- aðar. Áhuginn á framtíðarsýn okkar fyrir Siglufjörð kallaði fram bros sem var einlægt og hvetjandi. Það var enginn vafi hvar hug- ur hennar var. Þrátt fyrir að hafa búið sunnan heiða í áratugi þá fylgdist hún náið með hvað var að gerast fyrir norðan. Það kom því ekki á óvart að hún tæki þá ákvörðun að sækja um á Skála- hlíð, íbúðum aldraðra á Siglu- firði, til að verja síðustu æviár- unum. Þessi kona sem með elju sinni og ákveðni náði oftast sínu fram fékk ekki þessa ósk sína uppfyllta. Kallið kom í miðjum undir- búningi á flutningi til heimahag- anna. Nú fylgist hún með um- breytingum og þróun í gamla bænum sínum frá nýju sjónar- horni og skilur okkur hin eftir með verkefni sem hún ætlaðist til að við skiluðum af okkur í sínum anda. Blessuð sé minning Gyðu. Róbert Guðfinnsson. ✝ Edda HuldaWaage fæddist í Reykjavík 14. febrúar 1946. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 23. janúar 2015. Foreldrar henn- ar voru hjónin Magnús Guð- mundsson Waage, bifreiðarstjóri í Reykjavík, f. 5. ágúst 1916, d. 21. apríl 1977, og Jóhanna Sveinsdóttir húsfreyja, f. 1. september 1915, d. 11. októ- ber 1986. Systkini Eddu eru: Ólafur, f. 7. september 1939, d. 6. desember 1986, Guðmundur, f. 17. nóvember 1940, d. 26. nóv- ember 2011, Árni Már, f. 21. jan- úar 1942, d. 6. júlí 2001, Ragn- heiður Þórunn, f. 29. október 1943, Ómar, f. 25. október 1952, Inga Anna, f. 14. nóvember 1955, Sigurlaug Jónína, f. 16. nóvember 1958. Hálfbróðir, sammæðra, er Jón Konráð Magnússon, f. 30. desember 1933, d. 24. október 1995. 1979, maður hennar er Vignir Daði Valgeirsson, f. 12. maí 1976, börn þeirra eru Valgeir Níls, f. 23. janúar 2002, Hulda Hanna, f. 15. maí 2006, og Óliver Atli, f. 8. júlí 2011. Edda ólst upp í Reykjavík, lengstaf í Laugarneshverfinu, og ung að árum fór hún að vinna í kexverksmiðjunni Esju. Sautján ára gömul giftist hún Níls, eftirlifandi eiginmanni sín- um, og bjuggu þau sér heimili í Reykjavík og víðar. Edda varð móðir ung, var komin með tvö börn aðeins tvítug. 1976 fluttust þau búferlum til Svíþjóðar, þá komin með þrjú börn, þar sem þau bjuggu til ársins 1982. Þar var hún heimavinnandi hús- móðir þar sem nóg var að gera enda börnin orðin fjögur. Þegar þau fluttu aftur til Íslands fór hún að vinna í Ísbirninum sem síðar varð HB Grandi. Þar starf- aði hún þangað til hún fór á eft- irlaun í apríl 2014 eða í samtals 32 ár. Hún hafði mikla ánægju af sínu starfi og var ávallt stolt af sinni vinnu. Edda og Níls höfðu verið gift í 52 ár þegar hún lést, þau bjuggu síðustu ár- in sín saman að Hringbraut 45 í Reykjavík. Útförin fer fram í Bústaða- kirkju í dag, 3. febrúar 2015, kl. 13. Edda giftist 19. október 1963 Níls Nílsen, f. 8. sept- ember 1943. Börn þeirra eru: 1) Þór Vigfús, f. 1. apríl 1964, kona hans er Lena Níl- sen, f. 1 maí 1966, sonur þeirra Mar- cus, f. 14. Mars 1994. Börn hans Therese Birgitta, 6. janúar 1987, og Daniel Þór, f. 15. júní 1991. Stjúpsynir Þórs eru Peter, f. 28. apríl 1986, og Niklas, 6. september 1987. 2) Hanna Magga, f. 15. nóv- ember 1966, maður hennar er Jóhann Þór Halldórsson, f. 16. apríl 1966, dætur þeirra eru Helen Rún, f. 3. október 1988, og Hildur Karen, f. 1. júní 1995. 3) Sveinn Ingi, f. 2. október 1971, kona hans er Áslaug Vignisdóttir, f. 1. apríl 1976, börn þeirra eru Dagný Lena, f. 4. september 1996, og Gabríel Erik, f. 5. maí 2000. 4) Lena Hulda, f. 27. febrúar Að setjast niður og skrifa til þín, Edda mín, finnst mér svo ótímabært. Eftir skammvina sjúkrahúsvist og erfið veikindi kom kallið í Sumarlandið. Ég kynntist þér fyrir um 40 árum sem voru mér afar kær. Þó sam- skipti okkar hafi ekki verið svo mikil í seinni tíð þá vissum við vel hvor af annarri. Jólakort sem alltaf voru í léttari kant- inum eins og þín skapgerð lýsti svo vel. Ávallt stutt í gleðina og grínið. Eftir nokkur ár ykkar Nils og fjölskyldu í Svíþjóð þá fluttust þið til Íslands. Bjugguð þið hjá mér og fjölskyldu minni um tíma, sem voru góðir dagar sem seint gleymast. Það var svo auðvelt og gott að vera í kring- um þig, Edda mín. Börnin mín nutu þess að hafa þig heima þegar þau komu heim úr skól- anum. Ilmur af nýbökuðum kök- um, mamma alltaf að vinna, nema hvað. Ég vil þakka þér í þessum fáu línum að hafa fengið að kynnast þér, Edda mín. Elsku Nils og fjölskylda, ykkur sendi ég, Sylvía Erna og Geir Ómarsbörn innilegar samúðar- kveðjur. Birna Halldórsdóttir. Edda Hulda Waage Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morg- unblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað út- förin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beð- ið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.