Morgunblaðið - 04.02.2015, Blaðsíða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2015
Vetrarrómantík við Tjörnina Aðstæður gleymast gjarnan, þegar rómantíkin tekur völdin, og jafnvel myndavél stúlkunnar nær ekki að fanga augnablikið sem annars líður aldrei úr minni.
Ómar
Kvöldið fyrir kosningarnar 2009
var Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður vinstri grænna, afdráttarlaus
þegar hann var spurður í kosninga-
þætti Ríkisútvarpsins hvort það
kæmi til greina að hefja undirbúning
að því að sækja um aðild að Evrópu-
sambandinu strax eftir kosningar:
„Nei.“
Þegar gengið var á Steingrím J.
tók hann af allan vafa:
„Það samrýmist ekki okkar stefnu
og við hefðum ekkert umboð til slíks.
Og þó við reyndum að leggja það til,
forystufólkið í flokknum, að það yrði
farið strax í aðildarviðræður, gagn-
stætt okkar stefnu, í maí, þá yrði það
fellt í flokksráði vinstri grænna.
Þannig að slíkt er ekki í boði.“
Niðurstaða kosninganna var
stærsti kosningasigur í sögu VG –
40.581 atkvæði, eða 21,7% og 14
þingmenn. Fjölmennur þingflokkur
var með skýrt loforð í farteskinu:
Við munum ekki styðja umsókn Ís-
lands að Evrópusambandinu enda
höfum við „ekkert umboð til slíks“.
Innan þriggja mánaða samþykkti
meirihluti þingflokksins hins vegar
að sækja um aðild að Evrópusam-
bandinu. Meirihlutinn gekk enn
lengra og tók þátt í að fella tillögu
um að efnt yrði til þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðildarumsóknina.
Skollaleikur
Í nóvember 1999 var Steingrímur
J. Sigfússon harður andstæðingur
aðildar Íslands að Evrópusamband-
inu, líkt og hann var daginn fyrir
kjördag vorið 2009. Þá talaði hann
um „skollaleik“ sem hefði verið að-
dragandi þess að koma löndum inn í
Evrópusambandið. Í umræðum um
skýrslu Halldórs Ásgrímssonar
utanríkisráðherra um utanríkismál
var Steingrímur tæpitungulaus eins
og oft áður. Hann gagnrýndi meint-
ar gælur ráðherrans við Evrópu-
sambandið:
„Við þekkjum þennan skollaleik
sem hefur í raun verið aðdragandi
þess að þeir hafa verið að vinna sín-
um markmiðum framgang sem vilja
fara með sín lönd inn í Evrópusam-
bandið. Hvernig gerðist þetta í til-
viki Finnlands og
Svíþjóðar og átti að
gerast í tilviki Nor-
egs? Það gerðist
þannig að menn
sögðu nákvæmlega
sömu hlutina og hér.
Við verðum að skoða
þetta. Við verðum að
vera með opinn hug-
ann. Þetta var fyrsta
skrefið. Næsta
skrefið var: Við skul-
um gera könnun. Við
skulum fara í úttekt
á þessu. Það var skref númer tvö.
Skref númer þrjú: Sækjum um aðild
og látum reyna á það hvað okkur
bjóðist, bara svona alveg hlutlaust,
bara látum reyna á það. Skref núm-
er fjögur: Í miðjum þeim könn-
unarviðræðum breyta þær um eðli
yfir í harðsvíraðar samninga-
viðræður um aðild og menn koma
heim með nestið og segja: „Það er
bara inn, já.“ Þannig gerðist þetta.
Síðan var sett upp rúlletta eða
hringekja. Það var vitað að Finnar
voru jákvæðastir í garð Evrópusam-
bandsins þannig að atkvæða-
greiðslan var látin byrja þar. Síðan
komu Svíar og þeir rétt mörðu það
og þá var meiningin að Norðmenn
þyrðu ekki annað en segja já líka.“
Niðurstaða formanns VG var að
menn eigi ekki „hér uppi á Íslandi að
reyna að leika slíka skollaleiki“ enda
liggur það í „öllum aðalatriðum allt
fyrir sem liggja þarf fyrir um það
hvað því er samfara að fara inn í
Evrópusambandið“. Málflutningur
Steingríms J. í umræðum um
skýrslu utanríkisráðherra var í góðu
samræmi við ræðu sem hann hafði
flutt nokkru áður á landsfundi VG
þar sem hann skilgreindi sjálfstæði
með því „að við varðveitum sjálf-
stæði okkar, frelsi og fullveldi til að
ráða sjálf áfram fyrir okkar málum
og bera sjálf ábyrgð á okkur í heim-
inum“.
Hitasótt og vírusar
Líkt og margir var Steingrímur á
því að sitjandi utanríkisráðherra
gerði sér of dælt við Evrópusam-
bandið. „Er það þannig að menn
verða svo mjúkir í hnjáliðunum eftir
nokkrar ferðir til Brussel
að þetta slær út eins og
sjúkdómur með hitasótt,“
spurði formaður VG og
velti því fyrir sér hvort
það væri rétt „að íslensk-
ir utanríkisráðherrar fái
bara þennan vírus eins og
sendiliðið í Brussel yf-
irleitt“.
En þrátt fyrir allt tal
um umboðsleysi, „skolla-
leiki“, „rúllettu“, „vírusa“
og „hitasóttir“ var gengið
frá samstarfsyfirlýsingu
ríkisstjórnar Samfylkingar og VG.
Þar var tilkynnt að utanrík-
isráðherra muni „leggja fram á Al-
þingi tillögu um aðildarumsókn að
Evrópusambandinu á vorþingi“.
Þetta var 15 dögum eftir kjördag.
Nei formanns VG lifði því tvær
vikur og rúmum sólarhring betur.
Alþingi samþykkti að óska eftir
aðild að Evrópusambandinu 16. júlí
2009. Formaður VG taldi nauðsyn-
legt að gefa út sérstaka yfirlýsingu
við atkvæðagreiðslu þingsins. Þar
áréttaði hann þá „grundvallarstefnu
Vinstri hreyfingarinnar - græns
framboðs að það þjóni ekki hags-
munum Íslands að gerast aðili“. Þá
lýsti Steingrímur J. því yfir að allir
þingmenn VG áskildu sér „rétt til
þess að slíta samningaviðræðum séu
þær ekki að skila fullnægjandi ár-
angri á hvaða stigi málsins sem er
sem og auðvitað að hafna óviðunandi
samningsniðurstöðu“.
Siglt í strand
Um það verður vart deilt að við-
ræðurnar við Evrópusambandið
skiluðu engu – sigldu í strand þegar
árið 2011. Þá lauk svokölluðu rýni-
ferli vegna sjávarútvegsmála og í
framhaldinu áttu báðir aðilar að
skila rýniskýrslum. Evrópusam-
bandið hefur aldrei skilað slíkri
skýrslu og íslensk stjórnvöld hafa
ekki kynnt samningsmarkmið sín.
Skýrsla Evrópuþingsins í mars
2011 gefur innsýn í þá erfiðleika sem
glímt var við í samningaviðræðum
við Evrópusambandið. Þar segir að
nokkur ljón séu á veginum fyrir að-
ild Íslands: Icesave, hvalveiðar (sem
eru bannaðar af ESB) og löngun Ís-
lendinga til að verja sjávarútveg og
landbúnað. Íslendingar eru hvattir
til að aðlaga lög um fiskveiðar að
reglum innri markaðar Evrópusam-
bandsins, meðal annars á sviði fjár-
festinga. Jafnframt er bent á að Ís-
land hafi farið fram á að halda
„hluta“ (some control) af stjórnun
fiskveiða.
Hér skal ekki öðru haldið fram en
að þingmenn Evrópuþingsins hafi
misskilið eindregna stefnu Íslands í
sjávarútvegsmálum (og þar með
raunar aðildarumsóknina og for-
sendur hennar). Þeir hafi staðið í
þeirri trú að íslensk stjórnvöld væru
tilbúin, sem aðildarríki að Evrópu-
sambandinu, að afsala sér stærstum
hluta sjávarútvegsmála og færa
undir sameiginlega stjórn í Brussel.
Varla hefur slíkt hvarflað að nokkr-
um manni í sitjandi ríkisstjórn!
Ranghugmyndir sem komu fram í
skýrslu Evrópuþingsins hefðu átt að
kveikja á viðvörunarbjöllum hjá
þeim þingmönnum VG sem lögðu
blessun sína yfir aðildarumsóknina.
Þegar ljóst varð að Evrópusam-
bandið ætlaði ekki að leggja fram
rýniskýrslu sína um sjávarútvegs-
mál, var ríkt tilefni til þess að for-
maðurinn nýtti réttinn sem hann
áskildi sér og öðrum þingmönnum
VG; að slíta viðræðunum „á hvaða
stigi sem er“ ef þær væru „ekki að
skila fullnægjandi árangri“. Um leið
hefði sú krafa verið eðlileg að utan-
ríkisráðherra og samninganefnd Ís-
lands legðu öll spil á borðið.
Þess í stað lýsti Steingrímur J. því
yfir á þingi í desember 2011 að hann
væri á móti því að aðildarviðræðum
væri frestað. Það þurfi að láta reyna
á „eitthvað af grundvallarhags-
munum okkar í viðræðum þannig að
við séum einhverju nær“. Nokkrum
dögum síðar var Jóni Bjarnasyni,
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, bolað út úr ríkisstjórninni.
Hann hafði reynst óþægur ljár í
þúfu ESB-sinna.
68 mánuðir án árangurs
Ráðherraráð Evrópusambands-
ins samþykkti aðildarumsókn Ís-
lands nokkrum dögum eftir af-
greiðslu Alþingis í júlí 2009. „Það er
diplómatískur sigur fyrir okkur Ís-
lendinga,“ lýsti utanríkisráðherra
yfir hróðugur. Almenningi hafði
verið talin trú um að brautin væri
bein og breið enda höfðu frambjóð-
endur Samfylkingarinnar talað
fjálglega í aðdraganda kosninga um
að ferlið yrði stutt og hægt yrði að
kjósa um aðildarsamning árið 2012
og jafnvel 2011 (árið sem viðræð-
urnar strönduðu). Í stað aðildar-
samnings neyddist ríkisstjórnin í
janúar 2013 til að tilkynna að hlé
hefði verið gert á viðræðum við Evr-
ópusambandið.
Uppskeran var rýr. Í stað hrað-
ferðar hafði allt verið á hraða snig-
ilsins: Aðeins hafði tekist að ljúka
viðræðum um ellefu kafla í löggjöf
Evrópusambandsins af 33. Við-
ræður höfðu hafist um 16 kafla, en
þeim ekki lokið. Ekkert hafði verið
rætt um sex, þ. á m. um landbúnað,
sjávarútveg og frjálsa fjármagns-
flutninga.
Nú eru tæpir 68 mánuðir frá því
að lagt var upp í Brussel-leiðang-
urinn sem reyndist ferð án fyrir-
heits. Sumir hefðu kallað slíkan leið-
angur „skollaleik“.
Með hliðsjón af stefnu sem mótuð
var í upphafi, ræðum fyrrverandi
formanns, skýru loforði fyrir kosn-
ingar 2009, yfirlýsingu við atkvæða-
greiðslu um aðildarumsókn og ár-
angursleysi í viðræðum við Evrópu-
sambandið, væri eðlilegt og pólitískt
skynsamlegt að þingflokkur VG
legði fram tillögu á Alþingi um að
slíta viðræðum formlega. En líklega
er þess ekki að vænta. Nei þýðir
ekki alltaf nei. Fáir vita það betur
en kjósendur vinstri grænna vorið
2009.
Eftir Óla Björn Kárason » Fjölmennur þing-
flokkur var með
skýrt loforð í farteskinu:
Við munum ekki styðja
umsókn Íslands að ESB
enda höfum við „ekkert
umboð til slíks“.
Óli Björn Kárason
Höfundur er varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Nei-ið sem breyttist í pólitískan skollaleik