Morgunblaðið - 06.02.2015, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2015
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Hlutfall almannatrygginga til lífeyr-
isgreiðslna hér á landi er með því
lægsta sem þekkist í heiminum.
Þetta kom fram í fyrirlestri
Stephanie Payet, sérfræðings hjá
OECD, en hún bar saman stöðu líf-
eyriskerfa í nokkrum OECD-ríkjum
á fundi sem Fjármálaeftirlitið (FME)
og Landssamtök lífeyrissjóða (LL)
stóðu fyrir á miðvikudaginn. Saman-
burður Payet byggist m.a. á um-
fangsmikilli rannsókn sem FME fól
LL að vinna en rannsóknin var unnin
með aðstoð OECD og stuðningi frá
Evrópusambandinu. Rannsóknin
hafði það að markmiði að greina og
leggja mat á nægjanleika íslensks líf-
eyrissparnaðar og bera niðurstöð-
urnar saman við stöðuna í þeim efn-
um í nokkrum viðmiðunarlöndum.
Sjóðsöfnun mikil hér á landi
Rannsóknin leiðir í ljós að hvergi
er bein sjóðsöfnun almennings jafn
há og hér á landi. Það felur í sér að
Ísland er eina landið þar sem al-
mennir lífeyrissjóðir eru helsti
grundvöllur lífeyris fólks við starfs-
lok. Sömu tölur sýna að almanna-
tryggingakerfi eru víðast hvar mik-
ilvægasti grundvöllur lífeyris-
réttinda fólks. Taflan sem birt er hér
að ofan sýnir að hlutfall almanna-
trygginga er hvað hæst í Frakklandi
eða 95% og 64% í Bandaríkjunum. Þá
skiptist þungi lífeyriskerfisins í Síle
nokkurn veginn jafnt á milli al-
mennra sjóða sem byggjast á sjóð-
söfnun og almannatrygginga.
Athygli vekur hversu stórt hlut-
verk almannatryggingar leika í líf-
eyriskerfi Norðmanna en þar verður
þó að taka tillit til þess að ríkissjóður
landsins hefur frá upphafi tíunda
áratugar síðustu aldar lagt háar upp-
hæðir í söfnunarsjóð sem til er kom-
inn vegna arðs af olíuframleiðslu
landsins. Sá sjóður hefur það meg-
inhlutverk að standa undir almanna-
tryggðum lífeyri Norðmanna á kom-
andi áratugum. Heildareignir
sjóðsins nema nú um 114 þúsund
milljörðum íslenskra króna, eins og
fram kom í viðtali við Trond Grande,
aðstoðarforstjóra sjóðsins, í Við-
skiptaMogganum á fimmtudaginn.
Önnur ríki sem samanburðurinn nær
til þurfa að langmestu leyti að stóla á
skattfé framtíðarinnar til að standa
undir lífeyrisgreiðslum sem byggjast
á almannatryggingarétti.
Minni líkur á skerðingu hér
Gunnar Baldvinsson, formaður
LL, segir rannsóknina varpa ljósi á
það hversu sterkt íslenska lífeyris-
sjóðakerfið sé, bæði í nútíð og þegar
litið er til framtíðar. „Við erum betur
í stakk búin að takast á við þær
breytingar sem mannfjöldaspár gera
ráð fyrir á næstu árum heldur en
flestar aðrar þjóðir. Í okkar kerfi eru
minni líkur en víðast hvar annars-
staðar á því að skerða þurfi réttindi
vegna breyttrar aldurssamsetningar
þjóðarinnar.“
Samkvæmt lögum um skyldu-
tryggingu lífeyrisréttinda og starf-
semi lífeyrissjóða skal lágmarks-
tryggingarvernd sjóðanna hérlendis
nema 56% af meðalævitekjum. Eins
og fram kemur í rannsókn FME og
LL má búast við því að meira en
helmingur þeirra sem tilheyra hinum
almenna vinnumarkaði muni ekki ná
56% hlutfallinu. Þó hækkar það hlut-
fall um fjögur prósentustig þegar lit-
ið er til annarra eigna sem skilgreina
má sem lífeyri, einkum eigin fjár í
húsnæði.
Jöfnun réttinda
Það sem skýrslan varpar einnig
ljósi á er hinn mikli mismunur milli
réttindaávinnslu og ávinnslumark-
miða lífeyrissjóða fólks á almennum
vinnumarkaði og þeirra sem greiða
til sjóða sem njóta ábyrgðar hins op-
inbera. Markmiðið í almennu sjóðun-
um er 56%, en ávinnslumarkmið op-
inberu sjóðanna 76%. Þá sýna
útreikningar að sjóðirnir sem tengj-
ast opinbera markaðnum veita allt að
43% meiri réttindaávinnslu en al-
mennu sjóðirnir. Þegar Gunnar
Baldvinsson er inntur eftir því hvort
líkur standi til að þessi mismunandi
réttur verði jafnaður á komandi ár-
um segir hann að nefnd sem var skip-
uð í framhaldi af stöðugleikasáttmál-
anum 2009 sé í meginatriðum komin
að niðurstöðu um tillögur til að jafna
lífeyrisréttindi og búa til eitt lífeyr-
issjóðakerfi fyrir alla landsmenn.
„Það sem helst stendur út af er að
ríkisvaldið og opinberi vinnumarkað-
urinn eiga eftir að semja sín á milli
um áhrif tillagnanna á launakjör op-
inberra starfsmanna,“ segir Gunnar.
Sjóðsöfnun sterk í ís-
lenska lífeyriskerfinu
Hlutur almannatrygginga hlutfallslega lítill hér á landi
Meðalskipting mögulegra lífeyrisgreiðslna
við starfslok
Ch
ile
Fra
kk
lan
d
Ísl
an
d
Ho
lla
nd
No
reg
ur
Br
etl
an
d
Ba
nd
ar
íki
n
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
Heimild: OECD
54 57
71 63 64
39 21 21 13
95
28
22
50
15 23
46
5 4 5
Lífeyrir almannatrygginga Sjóðir með ábyrgð launagreiðenda
Almennir sjóðir Annað
Þrjár grunnstoðir
» Lífeyriskerfið byggist á
þremur grunnstoðum, al-
mannatryggingum, starfs-
tengdum samtrygging-
arsjóðum og séreignarsjóðum.
» Starfstengdu samtrygging-
arsjóðirnir standa undir 72%
kerfisins.
» 28% lífeyrisgreiðslna byggj-
ast á almannatryggingum hér-
lendis.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Hagnaður Össurar hf. jókst um
45% milli ára og var hagnaðurinn
59 milljónir dollara eða 7 milljarðar
íslenskra króna á síðasta ári. Þetta
nemur 12% af sölu samanborið við
9% árið 2013. Sala nam 509 millj-
ónum Bandaríkjadala eða 59 millj-
örðum íslenskra króna og nam sölu-
vöxtur frá fyrra ári 18%, þar af 5%
innri vöxtur, hvort tveggja mælt í
staðbundinni mynt. EBITDA jókst
um 38% og nam 104 milljónum doll-
ara eða 12 milljörðum íslenskra
króna sem er 20% af sölu, saman-
borið við 18% af sölu árið 2013.
Áhersla á hágæðavörur
Jón Sigurðsson, forstjóri Össur-
ar, segir árið 2014 hafa verið gott
rekstrarár hjá félaginu og árinu
hafi lokið með sterkum ársfjórð-
ungi þrátt fyrir óhagstæð gengis-
áhrif. „Árið 2014 hefur verið gott
rekstrarár hjá okkur með góðri
arðsemi og sterku sjóðsstreymi,
m.a. vegna þess að metnaðarfull
verkefni sem miða að því að auka
skilvirkni hafa skilað árangi. Sala á
stoðtækjum er mjög góð á öllum
helstu mörkuðum og í helstu vöru-
flokkum og sala á spelkum og
stuðningsvörum er í takti við vænt-
ingar. Á árinu höfum við lagt aukna
áherslu á bætta arðsemi af vöru-
framboði okkar, sem þýðir að við
höfum aukið áherslu á hágæðavör-
ur og vörunýjungar sem eiga þátt í
jákvæðum rekstrarniðurstöðum
fyrir árið.“
Stefnt að lækkun eiginfjár
Hluthafafundur fer fram í félag-
inu í mars og verður þá lagt til að
eigið fé þess verði lækkað sem nem-
ur 7,456,755 hlutum ásamt því að
hækka arðgreiðslur til hluthafa fyr-
ir árið 2014 um 20%, í DKK 0,12 á
hlut sem nemur 14% af hagnaði fyr-
ir 2014. Össur stefnir á áframhald-
andi vöxt á þessu ári en gert er ráð
fyrir 3-5% innri vexti og EBITDA
framlegð á bilinu 20-21%.
Hagnast um 7 milljarða
Sala Össurar nam 59 milljörðum króna á síðasta ári
Lagt verður fyrir hluthafafund í mars að lækka eigið fé
Morgunblaðið/Eggert
Hagnaður Jón Sigurðsson, forstjóri
Össurar, er ánægður með árið.
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
*Námsbækur eru ekki taldar með á þessum lista
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 28.01.15 - 03.02.15
1 2
5 6
7 8
109
43
Ljónatemjarinn
Camilla Läckberg
Hafnfirðingabrandarinn
Bryndís Björgvinsdóttir
Kamp Knox
Arnaldur Indriðason
Þekkir þú Línu Langsokk?
Astrid Lindgren
DNA
Yrsa Sigurðardóttir
Iceland Small World - lítil
Sigurgeir Sigurjónsson
Öræfi
Ófeigur Sigurðsson
Afturgangan
Jo Nesbø
Icelandic folk and fary tales
Ýmsir höfundar
Heilsubók Röggu nagla
Ragnhildur Þórðardóttir