Morgunblaðið - 09.02.2015, Side 1

Morgunblaðið - 09.02.2015, Side 1
M Á N U D A G U R 9. F E B R Ú A R 2 0 1 5 Stofnað 1913  33. tölublað  103. árgangur  HVERSDAGS- UPPSKRIFT- IR PABBA KÍKT UNDIR SKIKKJUNA SKÖPUNARGLEÐI SEM SMITAR ÁHORFANDANN TÍU ÁRA AFMÆLI TÍMARITS LÖGRÉTTU 9 HEKLA DÖGG 34HEIMILISMATUR 10 Óttast er að mikið tjón hafi orðið á Ísafirði í gær þegar vatn flæddi inn í fjölda húsa. Björgunar- menn, slökkviliðsmenn og bæjarstarfsmenn stóðu í ströngu fram á nótt við að reyna að veita vatni frá húsum og öðrum mannvirkjum og dæla úr kjöllurum. Guðni G. Borgarsson, starfsmaður áhaldahúss Ísafjarðarbæjar, var einn þeirra. Auk Ísafjarðar voru vandræði vegna vatnselgs á Suð- ureyri og Drangsnesi. Þá settu flóð og aur- skriður samgöngur úr skorðum. Þannig lokaðist Djúpvegur rétt sunnan við Hólmavík og norður- hluti Vestfjarða var þar með án vegasambands. Aurskriður lokuðu þjóðveginum um suðurhluta Vestfjarða. »6 Morgunblaðið/Sigurjón J. Sigurðsson Mikið tjón í vatnsveðri Guðni Einarsson gudni@mbl.is Séra Jakob Rolland, kanslari Reykjavíkur- biskupsdæmis Kaþólsku kirkjunnar, telur að fjöldi kaþólikka hérlendis sé á bilinu 18 til 20 þúsund. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands tilheyrðu 11.454 þeirra Kaþ- ólsku kirkjunni 1. janúar í fyrra en fjöldinn var í kring- um 12.000 hinn 1. janúar síðastliðinn, segir séra Jakob. Það er mikið hagsmunamál trú- félaga og lífsskoð- unarfélaga að þeir sem fylgi þeim að málum séu skráðir í þau í þjóðskrá en sóknargjald á mann var 9.000 kr. í fyrra og verður 9.888 kr. á þessu ári. Ef þeir 6 til 8 þúsund kaþólikkar sem nú eru ekki skráðir væru allir skráðir í Kaþ- ólsku kirkjuna í þjóðskrá myndu sóknar- gjöldin hækka um 60 til 80 milljónir á ári. Þúsundir nýbúa ranglega skráðar Séra Jakob telur að þúsundir innflytj- enda séu ekki rétt skráðar í trúfélög í þjóð- skrá. Um 22.000 einstaklingar eru skráðir í flokkinn „önnur trúfélög og ótilgreint“. Hann bendir á að það sé ekki það sama og að vera „utan trúfélaga“. Í síðarnefnda hópnum er fólk sem hefur tilkynnt að það sé utan trúfélaga eða lífsskoðunarfélaga. Séra Jakob telur að í þessum hópi sé fjöldi Pólverja sem margir eru kaþólikkar. Hann kveðst hafa heyrt frá pólska sendi- ráðinu að Pólverjum hafi fjölgað hér tölu- vert á síðustu mánuðum með batnandi efna- hagsástandi og atvinnu. Séra Jakob segir þau sem koma til landsins, t.d. frá Póllandi, ekki geta fyllt út eyðublaðið um skráningu í trúfélag sökum tungumálaörðugleika. »6 Munar tugum milljóna  Færri skráðir kaþ- ólikkar en eru í raun Mikið hags- munamál » Talið að 6 til 8 þúsund kaþ- ólikkar séu ranglega skráð- ir. » Munar 60-80 milljónum króna á hverju ári.  Mikil fækkun hefur orðið á um- ferðarslysum á Kjalarnesi á síðustu árum. Ekkert slys varð þar í fyrra. Þetta er meðal þess sem fram kem- ur í umfjöllun um borgarhlutann í greinaflokknum Heimsókn á höf- uðborgarsvæðið í blaðinu í dag. Fram kemur að Kjalarnes er eina landbúnaðar- og dreifbýlissvæðið innan marka Reykjavíkurborgar. Sagt er frá fjölgun íbúa á Kjalar- nesi, fjallað um golfvöllinn í Braut- arholti og rekstur kjúklinga- og svínabúa á staðnum. »16-17 Fækkun umferðar- slysa á Kjalarnesi Morgunblaðið/Árni Sæberg Grundarhverfi Búist er við fjölgun íbúa.  Jón Gunn- arsson, formaður atvinnuvega- nefndar Alþing- is, veltir því fyrir sér hvort ástæða sé til að ráðast í heildarendur- skoðun fiskveið- stjórnarkerfisins þegar ekkert út- lit er fyrir að sátt náist við stjórnarandstöðuna, ekki einu sinni um ákvæði sem séu í takti við það sem fyrri ríkisstjórn lagði til. „Er það þess virði að fara í slagsmál úr af slíku þegar við höf- um aflamarkskerfi sem almennt er viðurkennt að hefur reynst okkur vel,“ segir Jón. »4 Ástæða til að breyta góðu kerfi í ósætti? Ýsa Afla landað á fiskmarkað. „Fyrirtæki í sjávarútvegi greiddu um 25,7 milljarða á árinu 2013 til ríkisins í veiðigjöld, trygginga- gjöld, kolefnisgjöld og tekjuskatt,“ segir í umsögn Samtaka fyrir- tækja í sjávarútvegi og SA við frumvarp um gjaldskrár Fiski- stofu. Samtökin mótmæla harðlega þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar að heimila stofnunum gjaldtöku í sí- auknum mæli. Talin eru upp ýmis dæmi um nýja gjaldtöku á umliðn- um misserum, auk þess sem sam- tökin mótmæla stóraukinni álagn- ingu á sjávarútveginn, sem þau segja að felist í frumvarpinu. »20 25,7 milljarðar í skatta og gjöld 2013 Aníta Hinriksdóttir bætti í gær eigið Íslandsmet í 800 metra hlaupi innan- húss á Meistaramóti Íslands í frjáls- um íþróttum innanhúss í Kapla- krika. Hljóp hún á tímanum 2:01,77 mínútum. Bætti hún um leið eigið Evrópumet nítján ára og yngri. Gera má ráð fyrir að þetta sé mesta afrek mótsins út frá alþjóðlegum stöðlum. „Ég hafði á tilfinningunni að metið gæti fallið bráðlega og ég er virki- lega kát með að það skuli hafa heppnast í dag,“ sagði Aníta um ár- angurinn. Bætti hún svo um betur og sigraði einnig í 400 metra hlaupi á mótinu. Aníta setti eldra metið sitt á Reykjavíkurleikunum fyrir ári þeg- ar hún hljóp á tímanum 2:01,81 mín- útu. Íslandsmet hennar í greininni utanhúss er tíminn 2:00,49 mínútur. Aníta verður á meðal keppenda á Evrópumeistaramótinu innanhúss í Prag í mars næstkomandi, sem verð- ur hennar stærsta mót á innan- hússtímabilinu. „Ég vonast eftir að vera í toppbaráttunni. Ég ætla að berjast eins og ég get til að vera með í keppninni fyrir alvöru.“ » Íþróttir „Hafði á tilfinningunni að metið gæti fallið“ Morgunblaðið/Eggert Evrópumethafi Aníta Hinriksdóttir bætti tvö met á MÍ í gær.  Minjastofnun og Borgarsögusafn vilja að steinbryggjan við Reykja- víkurhöfn, sem gerð var árið 1884 úr tilhöggnum steini en hvarf undir uppfyllingu 1940, verði vernduð. Hún er sögð vera tilkomumikið mannvirki, að mestu heil og hafi menningarsögulegt gildi en hún er við jaðar uppbyggingarsvæðisins við Austurhöfn. »14 Steinbryggjan heil og verði vernduð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.