Morgunblaðið - 09.02.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Mikil væta hefur verið á götum borgarinnar að
undanförnu og hefur útlit bílaflota landsmanna
verið eftir því. Starfsmenn bílaþvottastöðv-
arinnar Splass í Kópavogi höfðu því í nógu að
snúast um helgina, vopnaðir sápu og svömpum,
þegar hreingerningaþyrstir íbúar höfuð-
borgarsvæðisins fóru með bíla af öllum stærðum
og gerðum um þvottastöðvar, sem komu glans-
andi hreinir út, fáeinum andartökum síðar.
Vetrardrullan þrifin utan af bílunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í nógu að snúast hjá starfsmönnum bílaþvottastöðvarinnar Splass
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Fyrsti sáttafundur Starfsgreina-
sambandsins og SA hjá ríkissátta-
semjara fer fram í dag. Viðræðurnar
hafa hingað til lítið gengið. Björn
Snæbjörnsson, formaður Starfs-
greinasambandsins, segir að ekki
verði lagðar fram breyttar kröfur af
hálfu sambandsins á fundinum í dag.
„Við höfum lagt fram okkar kröfu-
gerð og núna ræður ríkissáttasemj-
ari ferðinni.“
Þá var Björn spurður hvort ráðist
yrði í undirbúning verkfalla yrði
fundurinn árangurslaus. „Það fer
allt eftir því hvernig fundurinn fer
en auðvitað eru menn farnir að
skoða stöðuna og hugleiða það ef
ekkert gengur. Verið er að kjósa
verkfallsnefndir í öllum félögunum
þannig að menn eru að undirbúa
sig,“ segir Björn en engin ákvörðun
hefur verið tekin um hvernig verk-
föllunum yrði háttað, ef til þeirra
kæmi.“
Starfsgreinasambandið semur í
kjaraviðræðunum fyrir hönd 16 að-
ildarfélaga. Það lagði fram kröfur
26. janúar sem SA hafnaði samdæg-
urs. Kröfurnar fela m.a. í sér að
lægsti taxti verði 300 þúsund krónur
á mánuði og að vaktaálag verði end-
urskoðað og samræmt kjarasamn-
ingum á opinberum vinnumarkaði.
Áherslur aðila mjög ólíkar
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri SA, segir ljóst að
áherslur aðila séu mjög ólíkar. „Við
viljum byggja áfram á þeim árangri
sem hefur náðst og teljum það far-
sælustu leiðina til að byggja upp
kaupmátt til skemmri og lengri tíma.
Það er alveg ljóst að Starfsgreina-
sambandið er með aðrar áherslur og
biður um umtalsvert meiri hækkanir
en svigrúm er fyrir, sem að okkar
mati leiðir til verulegrar verðbólgu.
En nú hefjast viðræður fyrir alvöru
og við sjáum hvernig þetta þróast.“
Óbreyttar kröfur hjá SGS
Fulltrúar SGS og SA mætast á fyrsta sáttafundinum í dag „Nú hefjast við-
ræður fyrir alvöru,“ segir framkvæmdastjóri SA Verkfallsundirbúningur hafinn
Björn
Snæbjörnsson
Þorsteinn
Víglundsson
þúsund lestum af kolmunna frá því
fyrsta færeyska skipið landaði þar 2.
janúar. Kolmunninn veiðist í fær-
eysku lögsögunni en skipin koma til
Íslands til löndunar þegar ekki er
pláss hjá verksmiðjunum þar. Hof-
fell, skip Loðnuvinnslunnar, hefur
landað tvisvar á vertíðinni og er nú á
leiðinni heim með þriðja farminn.
Veiðarnar gengið betur
Þau 18 þúsund tonn af loðnu sem
Loðnuvinnslan hefur tekið við eru öll
af norskum loðnuskipum sem leyfi
hafa til veiða í íslensku lögsögunni.
Friðrik segir að þeim hafi gengið
veiðarnar vel á þessari vertíð, mun
betur en í fyrra. Norsku skipin mega
veiða um 50 þúsund tonn og eiga að-
eins um 7 þúsund tonn eftir. Þau
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Árið hefur farið sérstaklega vel af
stað hjá Loðnuvinnslunni á Fá-
skrúðsfirði. Það sem af er ári hefur
verið landað 26 þúsund tonnum af
loðnu og kolmunna, meginhlutinn af
erlendum veiðiskipum. Í gær voru 9
norsk loðnuskip í höfninni.
Friðrik Mar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar,
segir vissulegt hægt að nota orðið
uppgrip um vertíðina. „Það hefur ver-
ið nánast óslitin vaktavinna allan sól-
arhringinn í loðnufrystingu í sextán
daga. Þetta er jákvætt fyrir fyrir-
tækið, starfsfólkið og samfélagið
allt,“ segir hann.
Loðnuvinnslan hefur tekið á móti 8
landa víða en mest á Fáskrúðsfirði.
Mikill hluti af hráefninu hefur verið
bræddur í verksmiðjunni en stærsta
loðnan hefur verið fryst og seld til
Austur-Evrópulanda. Friðrik segir
að sæmilegt verð fáist fyrir afurðirn-
ar þar en viðskiptin gangi hægar fyrir
sig en áður vegna efnahagserfiðleika í
löndunum því allt þurfi að greiða fyr-
irfram. „Loðnan er tiltölulega ódýr
matur á þessu svæði og er þeim mik-
ilvæg,“ segir Friðrik.
Vertíðin hefst sérstaklega vel
Morgunblaðið/Albert Kemp
Verðmæti Níu norsk loðnuskip voru í höfn á Fáskrúðsfirði í gær.
Afli erlendra veiðiskipa skapar upp-
grip í loðnu og kolmunna á Fáskrúðsfirði
Leigubílstjóri
óskaði eftir að-
stoð lögreglu um
tvöleytið í gær
vegna tveggja
farþega sem ætl-
uðu ekki að
greiða fargjaldið.
Þegar lögregla
mætti á staðinn
réðst annar
mannanna á lög-
reglumann. Var maðurinn handtek-
inn eftir að hafa verið úðaður með
varnarúða að því er segir í tilkynn-
ingu lögreglu og átti svo að ræða við
hann þegar er af honum bráði.
Yfirbugaður
með gasi
Gas Ráðist var á
lögreglumann.
Fimm voru fluttir á Landspítala til
aðhlynningar þegar tvær fólks-
bifreiðar lentu í hörðum árekstri við
gatnamót Þúsaldar og Reynisvatns-
vegar rétt fyrir klukkan eitt í gær.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
sendi dælubíl á vettvang til að hreinsa
upp olíu. Fimmmenningarnir voru út-
skrifaðir af Landspítalanum án alvar-
legra meiðsla seinna um daginn.
Gatnamótin hafa verið í talsverðri
umræðu meðal íbúa hverfisins í mörg
ár, þar sem slys eru tíð við gatnamót-
in og kallað hefur verið eftir umbót-
um. Kjartan Magnússon, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lagði
fram tillögu á síðasta ári um að fé yrði
lagt í umbætur á gatnamótunum og
var sú tillaga samþykkt. Kjartan seg-
ir að búast megi við að farið verði í
umbæturnar einhvern tímann á
árinu.
Í kjölfar slyssins fór fram umræða
á facebook-síðu íbúa Grafarholts, þar
sem íbúar lýstu áhyggjum sínum af
óhöppum við gatnamótin og var m.a.
lagt til að beygjuljósum yrði komið
upp eða gatnamótunum breytt í
hringtorg.
Fimm
fluttir á
sjúkrahús
Ljósmynd/Ingvar Smári Birgisson
Tíð slys Breyta á gatnamótunum.
Tíð slys við gatna-
mótin vekja umræðu
Árborg hefur
samþykkt beiðni
Sæbýlis ehf. um
25% afslátt
vegna kaupa á
heitu vatni frá
Selfossveitum hf.
Sæbýli er með
fiskeldi og er
með tvær verð-
mætar tegundir
af sæeyrum og
eina tegund af sæbjúgum og ígul-
kerjum í eldi í eldisstöð sinni á
Eyrarbakka. Félagið gerir ráð fyr-
ir að fyrsta framleiðsla þess fari á
markað á árinu 2016 og þá verði
selt um 1 tonn af ezo sæeyrum til
Japans. Nú starfa 3 starfsmenn
hjá félaginu við hirðu dýra og
uppsetningu á eldiskerfi félagsins
og markmiðið er að þeim muni
fjölga á árinu til þess að setja
meiri kraft í uppbyggingu eld-
iskerfisins.
Sæbjúgnaeldi fær
nýsköpunarstyrk
Nýsköpun M.a. eru
framleidd sæeyru.