Morgunblaðið - 11.02.2015, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.02.2015, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015 REYKJAVÍK GRAFARHOLT OG ÚLFARSÁRDALUR H EI MS ÓKN Á HÖFUÐBO R G A R S V Æ Ð IÐ 2015 „Við komum hvert úr sinni áttinni og frá öllum þeim stjórnmálaflokk- um sem aðild eiga að stjórn borg- arinnar. Vinnuhefðin er samt sú að við skiljum flokka pólitíkina eftir á þröskuldinum þegar fundir hefj- ast,“ segir Hermann Valsson, for- maður Hverfisráðs Grafarvogs og Úlfarsárdals. Samkvæmt stjórnskipulagi Reykjavíkurborgar er borginni skipt upp í tíu svæði og í hverju þeirra er hverfisráð, skipað fulltrúum allra framboða auk þess sem fulltrúar íbúasamtaka hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum. „Reynslan er góð. Íbúar í hverf- inu láta í sér heyra um málefni hverfisins, taka okkur tali á förn- um vegi eða senda tölupósta, sér- staklega hvað betur megi gera og hverju borgin geti bætt úr. Þessar ábendingar ræðum við á fundum og úr þeim eru gjarnan mótaðar tillögur sem borgarfulltrúar og eftir atvikum embættismenn fá og vinna úr. Þá fjöllum við um mál frá fagnefndum borgarinnar sem snúa að hverfinu, auk þess að koma með tillögur um það sem betur mætti fara,“ segir Hermann. Hann hefur lengi búið í Grafarholti og situr í hverfisráði sem fulltrúi VG. Íþróttaaðstaða ofarlega á blaði Um mál sem að undanförnu hafa komið til kasta ráðsins nefnir Her- mann að kallað hafi verið eftir lag- færingu gatna og fleiru. Slíkar að- gerðir þykja brýnar, að mati íbúa. „Oft fáum við ábendingar um skólamál og íþróttaaðstöðu. Mest- ur þunginn hefur þó verið í um- ræðum um uppbyggingu hverf- ismiðstöðvar – það er skóla, íþróttaaðstöðu, sundlaugar, bóka- safns og fleira sem reisa á í Úlfars- árdal. Nú eru teikningar að þeirri byggingu komnar og fram- kvæmdir hefjast vonandi á næsta ári,“ segir formaður hverfisráðs. sbs@mbl.is Pólitík á þröskuldi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hverfisráðsfundur Kristinn Steinn Traustason úr Úlfarsárdal, Hermann Valsson og Berghildur Erla Bernharðsdóttir sem er fulltrúi Grafarholtsbúa. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Okkar viðmið er að íbúar í hverju hverfi þurfi að vera á bilinu 5.000 til 7.000 svo þar sé grundvöllur fyrir rekstri lágvöruverðsverslunar. Nú búa um 6.000 manns í Grafarholti og Úlfarsárdal og á undanförnum miss- erum hafa íbúar oft farið þess á leit að við komum í hverfið. Nú er því kalli svarað,“ segir Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Krónunnar. Íbúar í Grafarholti geta vænst lífskjarabótar með opnun Krónuverslunar. Verslun Nóatúns við Þjóðhildarstíg verður lokað um miðjan þennan mánuð og í byrjun mars verður Krónan komin. „Markaðurinn er að breytst. Þægindaverslanir með afgreiðslu úr kjötborði og séhæfingu, mikilli þjón- ustu og löngum afgreiðslutíma eru á undanhaldi. Litlar sælkerabúðir hafa að nokkru komið í þeirra stað. Á sama tíma hafi lágvöruverðsverslanir styrkst,“ segir Kristinn. Skapa hina virku samkeppni Verslanir Krónunnar í dag eru þrettán. Flestar á höfuðborgarsvæð- inu en nokkrar úti á landi. Með þeim breytingum sem eru í farvatninu verða þær hins vegar sextán, það er Nóatún við samnefnda götu í Reykja- vík, verslunin við Hamraborg í Kópa- vogi og sú sem er í Grafarholti verða Krónan. Og hverju skilar þetta íbú- um? Verðlagseftirlit ASÍ hefur und- anfarin ár fylgst með þróuninni og í verðkönnunum hafa Krónan og Bónus verið með lægsta verðið. Segir Krist- inn stjórnendur Krónunnar telja verslunarkeðjuna vera það sem skap- ar hina virku samkeppni á mark- aðnum. Krónumenn hafa að undanförnu krufið allar tölur um íbúasamsetningu í Grafarholti og eru þær um margt at- hyglisverðar. Þannig er fjórðungur allra fjölskyldna í hverfinu barnafólk: það er ungt fólk með börn á aldrinum 0-12 ára. „Dagleg innkaup þessara fjöl- skyldna eru talsverð og kosta sitt. Við Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hverfisbúðin Senn hverfur merki Nóatúns og Krónan verður komin á sinn stað í þessari byggingu í byrjun mars. Kjarabót í hverfinu  Lægra vöruverð í Grafarholti  Nóatún verður Krónuverslun  Með bleiur, barnamat og grænmeti fyrir ungu fjölskyldurnar Hér í Morgunblaðinu hefur Grafar- holt stundum verið nefnt Alda- mótahverfið. Slíkt er við hæfi, fyrstu íbúar settust þar að á þús- aldamótum árið 2000. Um það leyti var merkra atburða í Íslandssög- unni minnst með margvíslegu móti, það er landafunda Íslendinga í Am- eríku svo og að rétt þúsund ár voru liðin frá kristnitökunni, árið 1000. Götunöfn í Grafarholti taka mið af sögunni, en tillagan kom frá Þórhalli Vilmundarsyni örnefna- fræðingi. Hann lagði raunar til að hverfið allt héti Þúsöld, en svo heitir aðalæðin þegar ekið er upp brekku í vestanverðu holtinu. Og þar koma svo göturnar ein af ann- ari, til dæmis Kristnibraut, Græn- landsleið, Maríubaugur, Kirkju- stétt og Þorláksgeisli. Sú gata er nefnd eftir einum Skálholtsbisk- upa, rétt eins og Ísleifs- og Giss- urargata í nýbyggðinni á Reynis- vatnsási. Þá eru á holtinu Þórðar- sveigur og Marteinslaug, báðar nefndar eftir kirkjuleiðtogum fyrri alda. Á háholtinu er svo gatan Maríubaugur „… en fleiri íslenzkar kirkjur eru helgaðar Maríu mey en öðrum dýrlingum, og nafn hennar geymist í fjölmörgum örnefnum,“ sagði Þórhallur Vilmundarson í Morgunblaðinu í ágúst 1999. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þúsöld Grafarholtshverfið. Fjölbýli við Þorláksgeisla er hér fremst. Á slóðum landafunda  Skálholt og Vínland  Biskupar og María mey SÓSAN SEM SAMLOKUR ELSKA Samlokusósan frá E. Finnsson hentar jafnt á heitar og kaldar samlokur. Prófaðu og gerðu gott betra. 31 18 -V O G – V E R T. IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.