Morgunblaðið - 12.02.2015, Side 1

Morgunblaðið - 12.02.2015, Side 1
F I M M T U D A G U R 1 2. F E B R Ú A R 2 0 1 5 Stofnað 1913  36. tölublað  103. árgangur  LISTNÁMIÐ Í BREIÐHOLTI Í FREMSTU RÖÐ SAMKEPPNI VIRÐIR ENGIN LANDMÆRI STÓRUM TÓNLIST- ARNÖFNUM FYLGIR MIKIÐ UMSTANG VIÐSKIPTAMOGGINN SÓNAR HEFST Í DAG 38HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 16 FORTE blanda meltingargerla MÚLTIDOPHILUS þarmaflóran hitaþolin www.gulimidinn.is  „Ég legg til einfalda sátt áð- ur en nokkur skaði er skeður. Skipulagi Hlíðar- endasvæðisins má breyta þann- ig að allt fyrirhugað bygging- armagn Valsmanna verði staðsett þannig á svæðinu að neyðarbrautin geti áfram sinnt sínu mikilvæga ör- yggishlutverki.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í aðsendri grein Friðriks Pálssonar. »21 Sáttatillaga í flugvallarmálinu Vaðlaheiðargöng » Reiknað var með að göngin næðu í gegnum Vaðlaheiði í september nk. Það næst ekki. » Göngin áttu að vera fullfrá- gengin í desember 2016. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fjallað hefur verið um það í svokall- aðri sáttanefnd Ósafls og Vaðlaheið- arganga hvort verktakinn hafi gert mistök þegar stóra heitavatnsæðin opnaðist inn í göngin um miðjan febrúar í fyrra. Innflæði heita vatns- ins hefur tafið gangagröftinn veru- lega og ekki er útlit fyrir að hægt verði að vinna seinkunina upp að fullu. Sá háttur er hafður á að könnunar- holur eru boraðar allt að 40 metra inn í bergið, ef þörf er á, til að kanna jarðfræðiaðstæður og hættu á vatns- innflæði. Ef könnunarholur gefa til kynna að þétta þurfi bergið er sem- entsefju dælt inn til að fylla sprung- ur og koma í veg fyrir að vatn leki inn í göngin. Því næst eru boraðar marg- ar fimm metra holur í stafninn og sprengt. Morgunblaðið hefur heimildir fyr- ir því að könnunarhola hafi ekki verið boruð þegar stóra vatnsæðin opnað- ist en þá var verið að bora sprengi- holu. Það hefur ekki fengist staðfest því hvorki framkvæmdastjóri Ósafls né Vaðlaheiðarganga vilja tjá sig um málið og vegamálastjóri segist ekki þekkja til málsins. Að Ósafli standa ÍAV hf. og Marti Contractors Lts. frá Sviss sem voru lægstbjóðendur í verkið. Starfsmenn við gangagröftinn eru flestir erlend- ir, á vegum Marti. Hætt að sprengja í Eyjafirði Áin sem opnaðist var í upphafi 350 lítrar á sekúndu af 46 stiga heitu vatni. Ákveðið var í sameiningu að halda áfram að sprengja til að reyna að komast inn fyrir æðina. Áfram var mikill hiti við stafninn sem tafði vinnu og að lokum var ákveðið að hætta greftri Eyjafjarðarmegin í ágúst og hefja gröft úr Fnjóskadal. Unnið hefur verið að því að stöðva lekann svo hægt væri að byrja aftur á stafni ganganna Eyjafjarðarmegin og er stefnt að því að hefja spreng- ingar þar seinna í vetur eða vor, þeg- ar vinnuaðstæður verða orðnar betri. Sáttanefnd sem skipuð er einum fulltrúa frá hvorum aðila og odda- manni sem þeir komu sér saman um fór yfir málið, lagði mat á ábyrgð beggja aðila, tafir og aukakostnað. Sáttanefndin mun vera búin að skila áliti en um það hefur ekki verið fjallað frekar, eftir því sem næst verður komist. Slíkar sáttanefndir eru yfirleitt starfandi þegar unnið er að stórverkefnum til þess að ágrein- ingur um einstök atriði sem upp kann að koma hafi sem minnst áhrif á framvindu verks. Könnunarhola ekki boruð í stafninn  Sáttanefnd fjallar um meint mistök í Vaðlaheiðargöngum Ljósmynd/Vaðlaheiðargöng Vinna Mjög hefur dregið úr rennsli. Degi íslenska táknmálsins var fagnað í þriðja sinn í gær. Í tilefni af því var haldinn döff menningarhátíð í Tjarnarbíói. Í tilkynningu um viðurðinn segir að döff fólk upplifi heim- inn í listum og lífi á annan hátt en heyrandi. Þeir sem skilgreina sig sem döff tilheyra sam- félagi heyrnarlausra og líta á táknmál sem sitt fyrsta mál. Á hátíðinni var til dæmis sungið frumsamið lag á íslensku táknmáli, frumsýnd stuttmynd sem lýsir upplifun barna af skóla- göngunni og fluttur leikþáttur um lífið í döff heimi. Einnig var unnið að margs konar list eins og þeirri sem hér má sjá þar sem krakk- arnir unnu að sköpun listaverks á menningar- hátíðinni Skyggnst inn í döff heiminn Morgunblaðið/Golli Dagur íslenska táknmálsins var haldinn í gær  Samkeppnis- eftirlitið leiðir að því líkur að 365 muni væntanlega óska eftir viðræðum við Póst- og fjarskiptastofn- un um „aflétt- ingu hluta þeirra uppbyggingar- krafna“ sem fylgi 4G-leyfum „svo raunhæft sé að byggja upp 4G- þjónustu“. Þetta kemur fram í trúnaðarupplýsingum sem fyrir mistök voru birt í skýrslu á vef Samkeppniseftirlitsins. 365 hóf starfsemi á fjarskiptamarkaði í ágúst 2013. »4 365 talið vilja fá kröfum aflétt Tíu einstaklingar greindust með HIV-smit á Íslandi árið 2014 og þar af átta erlendir einstaklingar, sem höfðu áður greinst annars staðar. Tveir íslenskir karlmenn greind- ust með HIV-smit í fyrra, en í hópi útlendinganna voru tvær konur. Ár- ið 2010 greindust 24 einstaklingar, 23 árið 2011, 20 árið 2012 og 11 árið 2013. Haraldur Briem sóttvarna- læknir segir að á árunum 2010 til 2012 hafi verið hópsýking á meðal fíkniefnaneytenda en aðeins einn af tíu smituðum í fyrra hafi tengst fíkniefnaneyslu. Haraldur segir að mikil áhersla sé lögð á að allir sem séu smitaðir fái öfluga meðferð. Hún geri það að verkum að veirumagnið sé vart mæl- anlegt og smitlíkurnar miklu minni. steinthor@mbl.is Tíu greind- ust með HIV-smit  Aðeins tveir Ís- lendingar í hópnum  Slitastjórn Ice- bank hvetur kröfuhafa þrota- búsins til að hafna sáttaboði sem Eignasafn Seðlabanka Ís- lands hefur gert þeim. Hún telur sáttaboðið fela í sér jafn vonda nið- urstöðu og ef þrotabúið tapaði mál- inu fyrir dómi. Allt stefnir í að mál- ið verði tekið fyrir hjá dómstólum um miðjan apríl ef ekki næst sátt áður. »ViðskiptaMogginn. Kröfuhafar hvattir til að hafna sáttaboði  Harður tveggja bíla árekstur varð á Suðurlandsvegi við Rauðavatn á ellefta tímanum í gærkvöldi. Sam- kvæmt upplýsingum slökkviliðs komu bílarnir úr gagnstæðum áttum og rákust á í mikilli hálku. Öku- mennirnir voru fluttir á slysadeild. Harður árekstur við Rauðavatn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.