Morgunblaðið - 18.02.2015, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 8. F E B R Ú A R 2 0 1 5
Stofnað 1913 41. tölublað 103. árgangur
VAGNSTJÓRINN
SEM VILDI Á
BESSASTAÐI
FÆRSLA MILLI
HANDANHEIMA
OG MYNDLISTAR
HLJÓMSVEITIN
PLÚTÓ HELDUR
UPPI STUÐINU
KARLOTTA BLÖNDAL 30 SYNGJA ÖLL LÖG 10GRAFARVOGUR 14-15
Ljósmynd/Sverrir Þórólfsson
Haförn Sést ekki oft í þéttbýlinu en ungir
fuglar fara oft á flakk frá heimahögunum.
Ungur haförn var í Heiðmörk síð-
degis í fyrradag og tókst Sverri
Þórólfssyni áhugaljósmyndara að
ná góðum myndum af honum.
Kristinn Haukur Skarphéðins-
son, sviðsstjóri hjá Náttúrufræði-
stofnun, sagði að örninn í Heið-
mörk væri á fyrsta eða öðru
aldursári. Þetta var fyrsti haförn-
inn sem hann frétti af í vetur á höf-
uðborgarsvæðinu. Hafernir á
fyrsta ári dvelja venjulega á heima-
óðalinu fram yfir áramót og jafnvel
lengur. Þá fara þeir á flakk. »4
Ungur haförn fór í
kaupstaðarferð og
kom við í Heiðmörk
„Loðnan er loksins komin á hefðbundnar slóðir
og er á fullri ferð í vesturátt. Það er ekki
ástæða til annars en að vera bjartsýnn,“ sagði
Jón Axelsson, skipstjóri á Álsey VE, í gær.
Loðnuflotinn var þá að veiðum skammt undan
Stokksnesi sem er skammt austan við Höfn og
gangur virtist vera að komast í vertíðina.
Nokkur skipanna fengu góðan afla þar í gær
og í fyrradag.
Gott veður var á miðunum í gærdag, en því
hefur ekki verið að heilsa að undanförnu. Þeir
sem rætt var við höfðu á orði að loksins væri
loðnuvertíðin komin í farveg sem sjómenn
þekktu, en frá áramótum hefur loðna nánast
eingöngu veiðst víða úti af Norðurlandi. Hver
dagur er dýrmætur á loðnuvertíðinni því ætla
má að henni ljúki eftir um mánuð.
aij@mbl.is »12
„Loksins komin á hefðbundnar slóðir“
Loðnuflotinn að veiðum úti af Stokksnesi og vel farið að veiðast
Ljósmynd/Kristó
Undir Stokksnesi Skipverjar á Álsey VE brasa við grunnnótina eftir gott kast í gærmorgun. Góður afli fékkst þar í gær og fyrradag.
Umhleypingar
hafa einkennt
tíðina að und-
anförnu og ekk-
ert lát virðist á.
„Tilfinningin er
sú að veðrið und-
anfarið hafi ver-
ið í óhagstæðari
kantinum,“ segir
Trausti Jónsson veðurfræðingur
um tíðarfarið. „Þó svo að það komi
tveir eða þrír sæmilegir dagar á
milli hafa hvíldardagarnir verið fá-
ir, en það er svo sem tilbreyting í
þeim,“ segir Trausti.
Spurður hvernig hann skýri þess-
ar sveiflur í veðrinu segir Trausti
að aðstæður hafi verið nokkuð til-
viljanakenndar, en veðrahringrásin
hafi verið „töluvert röskuð fyrir
vestan okkur í vetur“. »4
Veðrið verið „í óhag-
stæðari kantinum“
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Meirihlutinn í borgarstjórn sam-
þykkti að hefja undirbúningsfram-
kvæmdir á Hlíðarendasvæði við
Reykjavíkurflugvöll á borgarstjórn-
arfundi sem lauk seint í gærkvöldi. Á
fundinum setti Júlíus Vífill Ingvars-
son, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks, fram þá tillögu að þess verði
beðið að Rögnunefnd klári álit sitt
um það hvort loka beri minnstu flug-
braut Reykjavíkurflugvallar, svo-
kallaðri neyðarbraut, áður en fram-
kvæmdir hefjist. Meirihlutinn
hafnaði tillögunni. Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri segir að einung-
is sé um að ræða framkvæmdaveg
utan fluglínu og hann trufli ekki um-
rædda flugbraut. „Fátt í skipulagi
Hlíðarenda hefur breyst á drama-
tískan hátt frá því það var samþykkt
árið 2010,“ sagði Dagur. »9
Bíða ekki eftir
Rögnunefnd
Hefur ekki áhrif á neyðarbraut
Morgunblaðið/Ómar
Borgarstjórn Samþykkt var að veita
framkvæmdaleyfi við Hlíðarenda.
„Því hljótum
við að spyrja
hvort það er mat
forsætisráðherra
að þessi launa-
krafa Flóa-
bandalagsins sé
úr hófi og hvaða
launatölu hann
hefur þá í huga
fyrir lægst laun-
aða fólkið,“ segir
Sigurður Bessason í opnu bréfi til
forsætisráðherra sem birt er í
Morgunblaðinu í dag, þar sem hann
gagnrýnir orð forsætisráðherra á
Viðskiptaþingi. „Við […] höfum tal-
ið mikilvægt að stuðla hér að stöð-
ugleika. En við sögðum það við
gerð síðustu samninga að við ætl-
uðum ekki að búa til stöðugleika
fyrir aðra.“ »21
Spyr hvert mat
forsætisráðherra sé
Sigurður
Bessason
Hlutfall háskólamenntaðra meðal
atvinnulausra hefur hækkað og þá
sérstaklega hjá háskólamenntuðum
konum. Þetta kemur fram í grein-
ingu Ara Skúlasonar, hagfræðings í
hagfræðideild Landsbankans.
„Þetta er merkileg þróun og í and-
stöðu við það sem maður gæti hald-
ið, sérstaklega þegar horft er til þess
að þátttaka kvenna á vinnumarkaði
hefur aukist mikið,“ segir Ari.
Atvinnulausu fólki með háskóla-
menntun hefur einungis fækkað um
30% á sama tíma og atvinnulausum
með grunnskólapróf hefur fækkað
um 60% og fækkun fólks með iðn-
menntun er um 70%. Atvinnulausum
konum á höfuðborgarsvæðinu hefur
fækkað um 43% en atvinnulausum
konum með há-
skólamenntun
fækkaði minna
eða um 24% frá
2010.
Ari segir að
það líti þannig út
að erfiðara gangi
að skapa störf
fyrir háskóla-
menntaða en aðra
og gæti þetta einnig tengst niður-
skurði hjá hinu opinbera þar sem
störf hafi verið lögð niður sem ekki
hafi verið komið á fót aftur. Hann
veltir einnig fyrir sér hvort mark-
aðurinn sé nægilega þróaður til að
taka á móti öllu því fólki sem er að
útskrifast með háskólagráður. »16
Ari Skúlason
Færri störf fyrir
háskólamenntaða
Menntaðar konur fá síður störf