Morgunblaðið - 18.02.2015, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2015
REYKJAVÍK
GRAFARVOGUR
H
EI
MS
ÓKN Á HÖFUÐBO
R
G
A
R
S
V
Æ
Ð
IÐ
2015
„Þegar vel tekst til getur tónlist
gjörbreytt menningu hvers skóla,“
segir Björgvin Þ. Valdimarsson.
Hann hefur um langt árabil rekið
sinn eigin tónskóla og er sú starf-
semi að hluta til í Hamraskóla í
Grafarvogi. Nemendur koma þá úr
kennslustund og í tíma til Björg-
vins, sem kennir bæði á píanó, gítar
og blokkflautu. En þess utan sér
Björgvin um „söng á sal“ og leiðir
þar söng í Hamraskóla á hverjum
föstudagsmorgni. Á undan söng-
stundinni leika tónlistarnemar hans
á hljóðfæri fyrir nemendur og
starfsfólk skólans þar til söng-
stundin hefst.
Tónlistarnám er í senn ögrun og
æfing, en þegar vel tekst til verður
árangurinn góður. „Eina vikuna
koma nemendur 1. bekkjar með
undirbúið söngatriði sem þeir flytja
fyrir hina nemendur skólans, 2.
bekkur kemur í vikunni þar á eftir
og svo framvegis alveg upp í 7.
bekk. Áður koma krakkarnir í 2-3
tíma til mín á æfingu ásamt kenn-
ara sínum. Þetta virkar mjög vel,“
segir Björgvin, sem tekur eldri
hljóðfæranemendurna heim til sín í
tíma. Er þá setið við flygilinn í stof-
unni ellegar í ágætri kennslustofu í
bílskúrnum við Salthamra.
Eins og títt er með tónlistarmenn
er Björgvin með mörg járn í eld-
inum. Hefur sinnt lagasmíðum og
útsetningum þó að kennslan sé
hans aðalstarf. „Nú er ég að
endurskoða kennsluefnið mitt,
breyta og bæta,“ segir Björgvin,
sem hefur gefið út fjölda kennslu-
bóka í píanóleik – og er það efni að
nokkru leyti aðgengilegt á vef-
setrinu pianonam.is sbs@mbl.is
Björgvin leiðir söng
á sal í Hamraskóla
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Tónlist Námið er æfing og ögrun í senn, segir Björgvin Þ. Valdimarsson.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fólk nýtir sér almennings-
samgöngur betur nú en áður. Sam-
göngustyrkur sem fyrirtæki leggja
til sinna starfsmanna, ef þeir hjóla,
ganga eða taka strætó til vinnu
nokkrum sinnum í viku, mælist vel
fyrir og hefur áhrif. Farþegunum
fjölgar og æ fleiri framvísa þessu
afsláttarkorti þegar stigið er upp í
vagninn. Þá virðist því fólki sem
líkar þessi samgöngumáti vel al-
mennt fara fjölgandi,“ segir Gunn-
ar Freyr Árnason strætóbílstjóri.
20 nýir Iveco
Starfsemi Strætó bs. eru blóð-
kornaflutningarnir í líkama borg-
arinnar. Göturnar eru æðakerfið
og um það aka vagnarnir gulu. Úr
líffræðinni er þekkt að hvítu blóð-
kornin verja okkur sýkingum og
sjúkdómum en þau rauðu flytja
súrefnisríkt blóð frá lungum til
vefjanna og koltvísýring til baka.
Og þetta má heimfæra upp á
strætóferðir, við þurfum að komast
að heiman og heim. Allt verður að
ganga snurðulaust fyrir sig. Fyrir
vikið má áætlun strætó helst ekki
klikka. Og til þess þarf meðal ann-
ars góða vagna og nú eftir áramót-
in komu 20 bílar af gerðinni Iveco
Crossway í flotann. Reynslan af
þeim er góð, að mati vagnstjóra.
Hjá Strætó fer allt af stað upp
úr klukkan 6 á morgnana. Bílstjór-
arnir eru sóttir nærri heimilum
sínum og ekið upp á Hestháls þar
sem flotastöð fyrirtækisins er.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vagnstjóri „Sólin fer aftur að skína og því kann ég svo ljómandi við að sitja undir stýri,“ segir Gunnar Freyr.
Vagnstjórinn sem
vildi á Bessastaði
Fimm leiðir í Grafarvogsferðum Strætófarþegum fjölgar
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Það er verið að endurnýta textíla
og búa til úr þeim innkaupa-
töskur,“ segir Kristinn Breiðfjörð
Guðmundsson, skólastjóri Folda-
skóla í Grafarvogi. Þar er nú hver
efnisbútur nýttur í innkaupapoka
en Kristinn segir hugmyndina
fengna frá Snæfellsnesi.
„Ég hugsa að kveikjan að
þessu verkefni hafi verið fréttir
vestan úr Stykkishólmi þar sem
fólk er að sauma sambærilega
poka, Hólmararnir eru hættir að
nota plastpoka,“ segir hann en
þess má geta að sjálfur er Kristinn
úr Stykkishólmi.
Stjórn starfsmannafélags
Foldaskóla ákvað um síðustu jól að
færa öllum starfsmönnum fjölnota
poka. Ekki kom annað til greina
en að endurnýta og því var þess
farið á leit við starfsmenn að þeir
kæmu með dúka, gluggatjöld eða
annað efni sem þeir ætluðu að losa
sig við. Heilmikið efni safnaðist
sem var hlutað niður og saumaðir
úr því tæplega hundrað pokar,
eins og kemur fram á heimasíðu
Foldaskóla. Það var meira en
þurfti og því var ákveðið að
merkja umframpokana og fá elstu
nemendur umhverfisráðsins til að
afhenda þá í bekkina, segja frá til-
urð þeirra og gagnsemi endurnýt-
ingar.
Partur af stærra verkefni
„Í kringum jólin var verkefnið
aðallega ætlað starfsfólki en nú er
hugmyndin að útfæra þetta svolít-
Sauma poka í þágu
náttúruverndar
Nemendur Foldaskóla endurnýta efni
Endurnýting Innkaupatöskur sem
búnar eru til úr ýmsum efnisbútum.
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP)
eru margverðlaunuð fyrir hönnun,
myndgæði, notagildi, umhverfisvernd
og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga,
rekstrarleigusamninga og alhliða
prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur
sem eiga það sameiginlegt að gera
kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
• BLI A3 MFP Line of the Year 2013
• BLI A3 MFP Line of the Year 2012
• BLI A3 MFP Line of the Year 2011
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki