Morgunblaðið - 18.02.2015, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2015
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Danska öryggislögreglan, PET,
staðfesti í gær að hún hefði verið
vöruð við því að Omar El-Hussein,
22 ára Dani af palestínsku bergi
brotinn, kynni að styðja hryðju-
verkastarfsemi íslamista áður en
hann varð tveimur mönnum að
bana og særði fimm í skotárásum í
Kaupmannahöfn á laugardaginn
var. Lögreglan kvaðst þó ekki hafa
haft neina ástæðu til að telja að
hann væri að undirbúa árásir áður
en hann lét til skarar skríða.
Fangelsismálayfirvöld skýrðu ör-
yggislögreglunni frá því í septem-
ber að Omar El-Hussein kynni að
styðja íslömsk öfgasamtök þegar
hann afplánaði fangelsisdóm fyrir
að stinga ungan mann með hnífi í
lest. Á síðustu sex mánuðum hafa
fangelsismálayfirvöldin sent dönsku
öryggislögreglunni 39 slíkar viðvar-
anir um að fangar kynnu að styðja
íslamista. Að sögn Berlingske hafði
Hussein sagt þegar hann afplánaði
fangelsisdóminn að hann vildi berj-
ast undir merkjum Ríkis íslams,
samtaka íslamista sem hafa náð
svæðum í Írak og Sýrlandi á sitt
vald. Ennfremur hefur verið skýrt
frá því að skömmu fyrir skotárás-
irnar hafi Hussein sent frá sér
myndskeið þar sem hann hafi lýst
yfir stuðningi við leiðtoga íslamist-
anna.
Áður hafði danska lögreglan
skýrt frá því að hún hefði fylgst
með Hussein áður en hann gerði
árásirnar. Hann var látinn laus úr
fangelsi tveimur vikum fyrir skot-
árásirnar í Kaupmannahöfn og beið
bana í skotbardaga við lögreglu-
menn aðfaranótt sunnudags.
Danskir stjórnmálamenn hafa
hvatt til rannsóknar á því hvort
lögreglan hefði getað gert meira til
að afstýra árásunum. Þeir vilja
meðal annars að því verði svarað
hvers vegna maðurinn var látinn
laus án þess að afplána fangels-
isdóminn að fullu úr því að hann
var grunaður um að styðja hryðju-
verkastarfsemi.
Hafa ekki samlagast
Hussein var sonur innflytjenda
frá Jórdaníu og í glæpagengi sem
nefnist Brothas og hefur stundað
sölu fíkniefna og þjófnað. Margir í
genginu eru synir innflytjenda frá
Mið-Austurlöndum, „ungir menn án
menntunar sem telja sig ekki njóta
viðurkenningar samfélagsins,“ að
sögn Aydin Soyei sem skrifaði bók
um syni innflytjenda í Kaupmanna-
höfn. Soyei segir að ungu menn-
irnir í genginu líti á sig sem músl-
íma þótt þeir viti að þeir séu ekki
„góðir múslímar“. „Þeir telja sig
vera hóp olnbogabarna sem allir
séu á móti.“
Jyllands-Posten segir í forystu-
grein að það sé ekki rétt að líta á
múslíma úr röðum innflytjenda sem
fórnarlömb því þeir njóti meiri rétt-
inda í Danmörku en margir aðrir
minnihlutahópar. Blaðið segir að
hryðjuverkin í Danmörku og víðar í
Evrópu sýni að blossað hafi upp
„nokkurs konar trúarbragðastríð“.
Þótt árásarmennirnir séu evrópskir
ríkisborgarar og hafi fæðst og alist
upp í Evrópu sé kjarni málsins sá
að þeir hafi ekki samlagast menn-
ingu og gildismati Evrópubúa.
Öryggislögregla hafði verið
vöruð við árásarmanninum
Taldi samt ekki ástæðu til að ætla að maðurinn væri að undirbúa hryðjuverk
AFP
Sorg Danski stjórnmálamaðurinn Margrethe Vestager við athöfn í Kaupmannahöfn til minningar um þá sem létu
lífið í skotárásunum um helgina. Vestager fer með samkeppnismál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Sakaðir um aðstoð
» Tveir menn hafa verið
ákærðir fyrir að hafa aðstoðað
árásarmanninn, en lögmaður
annars þeirra sagði í gær að
þeir neituðu sök.
» Mennirnir eru sakaðir um að
hafa útvegað árásarmanninum
sjálfhlaðandi árásarriffil af teg-
und sem notuð er í danska
hernum. 44 slíkum rifflum var
stolið í innbroti í byggingu
hersins árið 2009.
Saksóknari í Lille
í Frakklandi
lagði í gær til við
dómara að Dom-
inique Strauss-
Kahn, fyrrver-
andi fram-
kvæmdastjóri
Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins,
yrði sýknaður af
ákæru um aðild
að vændishring. Áður höfðu fimm af
sex stefnendum í einkamálum á
hendur Strauss-Kahn fallið frá
ákæru. Þeirra á meðal eru fjórar
konur sem sögðust ekki geta sannað
að Strauss-Kahn hefði vitað að þær
væru vændiskonur.
Strauss-Kahn var ákærður fyrir
hórmang, en hann hefur stað-
fastlega neitað því að hafa vitað af
því að konur sem tóku þátt í kyn-
svalli með honum hafi verið vændis-
konur. Ákvörðun saksóknarans kom
ekki á óvart þar sem hann hafði allt-
af verið efins um að hægt yrði að
færa sönnur á ásakanirnar, ólíkt
rannsóknardómara í málinu.
Strauss-
Kahn verði
sýknaður
Dominique
Strauss-Kahn
Fallið frá fimm
af sex ákærum
Hörð átök geisuðu í bænum Debalt-
seve í austanverðri Úkraínu í gær
þrátt fyrir vopnahléssamning sem
gekk í gildi um helgina. Stjórnvöld í
Úkraínu sögðu að aðskilnaðarsinnar
og Rússar, sem styðja þá, virtu ekki
samninginn.
Aðskilnaðarsinnarnir sögðust
hafa náð mestum hluta bæjarins á
sitt vald, meðal annars lögreglustöð
og lestastöð. Her Úkraínu sagði að
hörð átök geisuðu enn í bænum og
staðfesti að aðskilnaðarsinnar hefðu
lagt hluta hans undir sig.
Aðskilnaðarsinnarnir sögðu tugi
stjórnarhermanna hafa gefist upp í
bænum en stjórnin í Kænugarði
neitaði því.
Líf íbúanna í hættu
Aðskilnaðarsinnarnir segja að
vopnahléssamningurinn gildi ekki í
Debaltseve vegna þess að þeir hafi
umkringt bæinn nær algerlega áður
en samkomulagið gekk í gildi.
Íbúar Debaltseve eru um 25.000
en flestir þeirra hafa flúið frá bæn-
um. Talið er að um 7.000 manns séu
enn í bænum og óttast er að líf þeirra
sé í hættu vegna átakanna.
EPA
Í lífshættu Piltur í loftvarnabyrgi í þorpi nálægt bænum Debaltseve þar
sem hörð átök geisuðu í gær. Þúsundir manna eru í hættu vegna átakanna.
Sakaðir um brot á
vopnahléssamningi
Ótrúlegt þykir að indverskt barn
skyldi hafa komist lífs af við fæð-
ingu þegar það féll ofan í salerni
lestar og skall á járnbrautar-
teinum. Lestin var ekki á ferð þeg-
ar barnið féll á teinana, en var lögð
af stað þegar móðir þess fannst
meðvitundarlaus á salerninu. Móðir
barnsins, 22 ára, hafði fundið fyrir
verkjum og farið á salernið. Hún
fæddi barnið í salernisskálina og
missti meðvitund við átökin.
Lestarvörður fann barnið á
brautarteinunum og kallaði til lög-
reglu sem flutti barnið á nálægt
sjúkrahús.
INDLAND
Féll í klósett og á
járnbrautarteina
Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali. Síðumúla 27 - 108 Rvk - Sími 588 4477
Falleg 3ja herbergja 73,5 fm íbúð á jarðhæð ásamt 100 fm sólpalli,
garðhýsi og heitum potti. Einnig fylgja tvö
bílastæði fyrir framan innganginn. Verð 28,9 millj.
Heimir Bergmann sölufulltrúi verður a staðnum S: 630 9000
Opið hús fimmtudaginn 19. febrúar kl. 17.30-18.00
Viðarás 19 - 110 Reykjavík