Morgunblaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2015
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Banaslysum í flugi hefur mikið fækkað á Íslandi frá ár-
um áður, að sögn Þorkels Ágústssonar, rannsóknastjóra
flugslysasviðs Rannsóknarnefndar samgönguslysa.
Hann hélt erindi á fundi um flugöryggi í einka- og frí-
stundaflugi sem haldinn var í gær. Innanríkisráðuneytið
boðaði til fundarins í samvinnu við Samgöngustofu,
Rannsóknarnefnd samgönguslysa og Flugmálafélag Ís-
lands.
„Við náðum núllpunkti þegar engin banaslys voru á
íslenskum loftförum á árunum 2001 til 2008, sem var stór
áfangi,“ sagði Þorkell. Þrjú banaslys urðu á síðastliðnum
sex árum, það er 2009, 2012 og 2013.
Þorkell fjallaði aðallega um banaslys í svonefndu al-
mannaflugi í erindinu í gær. Með almannaflugi er átt við
flug loftfars annað en flutningaflug eða verkflug. Þorkell
fjallaði því um einkaflug, kennsluflug, fisflug og svifflug
sem einnig er nefnt „einka- og frístundaflug“.
Hann sagði að á síðastliðnum 20 árum hefðu orðið
fimm banaslys í almannaflugi. Frá 1998 til 2008 varð
ekkert banaslys í almannaflugi. Þorkell sagði að flug-
slysið sem varð í Skerjafirði 7. ágúst 2000, sem leiddi til
þess að sex manns létust, hefði fallið undir þjónustuflug.
Það er óreglubundið flug til flutninga á farþegum og
vörum í loftförum sem hafa minni hámarksþyngd en
5.700 kg og mega flytja allt að níu farþega.
En hverju má þakka fækkun slysa í almannaflugi?
„Það er ekki einfalt svar við því,“ sagði Þorkell. „Ef
þetta átta ára slysalausa tímabil er skoðað sérstaklega
þá eru margir þættir sem geta hafa stuðlað að fækkun
slysa. GPS-staðsetningartæki eru orðin algengari um
borð í flugvélum og þá verður kannski minna álag á flug-
mennina. Einnig hefur upplýsingatækninni fleygt fram á
þessum árum. Hún kann að hafa ýtt undir það að menn
hafi miðlað á milli sín upplýsingum um öryggismál.
Einnig hefur hún auðveldað aðgengi að ýmsum upplýs-
ingum. Auk þess hefur kennslu og þjálfun fleygt fram.“
Þorkell sagði að ekki hefði dregið úr fjölda flug-
stunda í almannaflugi, samkvæmt tölum sem kynntar
voru á fundinum í gær. Það er því ekki ástæða fækkunar
banaslysa að almannaflug sé minna stundað en áður.
Hann sagði að svifflug hefði líklega staðið í stað. Við hafa
bæst um 1.500 flugstundir á ári í fisflugi sem ekki var til
á árum áður. Ekki voru fyrirliggjandi upplýsingar um
hvort tilfærsla hefði orðið úr einkaflugi yfir í fisflug síðan
fisflugið færðist í aukana. Fjórði þátturinn er svo
kennsluflugið.
Banaslysum í flugi hefur
fækkað mikið frá fyrri tíð
Margir þættir stuðla að fækkun banaslysa í almannaflugi
Morgunblaðið/Þórður
Almannaflug Undir það fellur einkaflug, kennslu-
flug, fisflug og svifflug. Slysum hefur mikið fækkað.
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjbmbl.is
Gistirými í Reykjavík eru flest meira
og minna uppbókuð þessa dagana.
Engir stórviðburðir eru í gangi sem
kalla á fjölda erlendra gesta, fyrir ut-
an kvikmyndahátíðina Stockfish og
alþjóðlega friðarkórahátíð, heldur er
það fyrst og fremst fjölgun almennra
ferðamanna sem veldur þessu og
vetrarfrí í skólum.
Þetta sést ágætlega þegar farið er
inn á bókunarvefi eins og Booking.-
com og óskað eftir gistingu í Reykja-
vík fyrir tvo í tvær nætur fram að
helgi. Þá koma upp þau skilaboð að
um 85% af nærri 200 gististöðum séu
fullbókuð. Öll stærri hótelin eru full,
það er helst að finna megi pláss á
minni gistiheimilum og íbúðahótel-
um. Á svæðinu næst miðbænum,
sem meðfylgjandi kort sýnir, eru
skráðir um 120 gististaðir sam-
kvæmt Booking.com og er þá heima-
gisting ekki talin með.
Leita að nýrri upplifun
Að sögn Einars Bárðarsonar á
Höfuðborgarstofu er mikið um fólk
frá Benelúx-löndunum og Bretlandi í
bænum með börnin sín í vetrarfríi.
„Það eru hagstæð tilboð í gangi og
fólk er greinilega að nýta sér það.
Hinn venjulegi Breti er að átta sig
betur á því hvað ferðalag til Íslands
er stutt og hægt að skoða margt á
skömmum tíma. Fólk er greinilega
að leita sér að nýrri upplifun. Hót-
elnýtingin yfir vetrarmánuðina er
stöðugt að batna,“ segir Einar og
vitnar í skýrslu frá greiningu Arion
banka sem sýni að hótelnýting á 101-
svæðinu í Reykjavík sé með því
besta sem þekkist í heiminum. Nýt-
ingin í mars og júlí sé upp undir
100% og það komi skemmtilega á
óvart hve marsmánuður sé að verða
góður í ferðaþjónustunni. Stutt er í
vinsælan viðburð í Reykavík, Food &
Fun, sem hefst í lok febrúar og
stendur fram í byrjun mars, þannig
að viðbúið er að traffíkin haldi áfram
næstu vikurnar.
„Almennt er nýtingin yfir vetur-
inn að verða mun betri. Hægt og ró-
lega höfum við verið að ná markmið-
um okkar um að dreifa ferðamanna-
straumnum betur yfir árið. Við
megum heldur ekki gleyma því að
þetta eru sérstakar aðstæður og
ekki sjálfgefið að þetta haldist til ei-
lífðarnóns. Við þurfum stöðugt að
vera að vinna í okkar markaðsmál-
um,“ segir Einar og rifjar upp að
ekki séu liðin nema átta ár síðan
margir veitingastaðir voru lokaðir í
janúar á meðan vertarnir skruppu í
sólina til Kanarí!
Ekki komin með áskrift
Hildur Ómarsdóttir, markaðs-
stjóri Icelandair-hótelanna, segir
það vissulega rétt að hótelin séu vel
bókuð þessa dagana og veturinn hafi
verið mjög góður. Almennt sé nýt-
ingin að verða mun betri yfir vet-
urinn og í raun varla hægt að auka
hana á sumrin þegar hótelin séu
meira og minna full.
„En við erum ekki komin með
neina áskrift að gistingu. Þetta eru
viðskipti sem þarf að hlúa að áfram,
efla enn frekar og hámarka með sem
bestum hætti, öllum til handa, þann-
ig að tekjurnar skili sér inn í sam-
félagið,“ segir Hildur og telur að
hægt sé að sækja mun meira inn á
nýja markaði yfir veturinn. Mikið sé
um Breta og Bandaríkjamenn en t.d.
Þjóðverjar, Frakkar, Ítalir og Spán-
verjar komi hingað að langmestu
leyti yfir sumartímann. Þar sé hægt
að sækja fleiri vetrarferðamenn.
Að sögn Hildar er einnig verið að
leggja meiri áherslu á ráðstefnu- og
hvataferðamarkað og aukin mark-
aðssetning er í lúxusferðum.
„Við þurfum að standa mjög vel að
móttöku þessara gesta sem við erum
að fá inn núna. Þegar við fáum svona
marga ferðamenn og stóraukin við-
skipti þá er það einnig aukin mark-
aðssetning. Þetta er fólkið sem fer
og markaðssetur áfangastaðinn í
framhaldinu, með umsögnum á Trip-
advisor, Booking.com og fleiri slík-
um vefsíðum, og áfram til vina og
vandamanna,“ segir Hildur.
Í vetrarfrí til Íslands með börnin
Gistirými í Reykjavík meira og minna fullbókað þótt ekki séu stórviðburðir í gangi Fjöldi ferða-
manna frá Bretlandi og Benelúx-löndum í borginni Hótelnýtingin batnar stöðugt yfir veturinn
Gistirými Þessir staðir í hluta Reykjavíkur koma á Booking.com þegar leitað er að hótelgistingu. Allir eru þeir
meira og minna fullbókaðir fram að helgi. Kortið sýnir einnig vel fjölda gististaða í miðbæ og Þingholtunum.
Gististaðir í miðbæ Reykjavíkur
©2015 Google
Morgunblaðið/Ómar
Vetur Erlendir ferðamenn, vel dúðaðir á Austurvelli nýverið, létu ekki ís-
lenska veturinn aftra sér frá að koma til landsins og klæddu sig bara vel.
Einar
Bárðarson
Hildur
Ómarsdóttir
Eftir mikla umhleypinga síðustu
daga kólnar á landinu í dag.
Norðanátt verður á landinu, nokk-
uð hvöss um norðvestanvert land-
ið en víða verða um 8-13 metrar á
sekúndu. Fyrir norðan má búast
við snjókomu og éljum og él verð-
ur á sunnanverðu landinu fyrri-
part dags, en síðar þornar upp, að
sögn Haralds Eiríkssonar, veður-
fræðings hjá Veðurstofunni.
Segir hann morgundaginn
verða kaldan með éljum fyrir
norðan en þurrt og bjart fyrir
sunnan. Frost verði þó á öllu land-
inu. Horfurnar um helgina eru
ekki ósvipaðar, áfram kuldi, þurrt
syðra en á sunnudag hvessir úr
austanátt með úrkomu nokkuð
víða. „Það dregur þó aðeins úr
kuldanum en ekki svo að það
hláni,“ segir Haraldur. Kuldinn
helst því í kortunum fram í næstu
viku.
Kuldinn tekur við af umhleypingunum
Ein þekktasta og eitt sinn stærsta fasteignasala landsins er að hefja
starfsemi á ný!
Um er að ræða fasteignasölu með yfir 20 ára farsæla rekstrarsögu, fast-
eignasalan er mjög vel þekkt um allt land.
Núverandi eigendur, leita að einum til fjórum öflugum meðeigendum, um
er aðræða sölu á um 49% hlutafjár, mjög sveigjanlegir skilmálar og sann-
gjarnt verð. Unnið verður eftir sanngjörnu skiptakerfi og potti, einnig verður
leitast við að skapa fjölskylduvænt vinnuumhverfi sem og öflugan jákvæðan
starfsanda og heilbrigða samkeppni.
Æskilegt að nýir hluthafar hafi löggildingu fasteignasala eða hyggst fá sér
slík réttindi fljótlega. Sölusinnaðir einstaklingar kærkomnir.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða fyrir rétta aðila að vera með í upp-
byggingu góðrar fasteignasölu frá upphafi.
Með allar fyrirspurnir verður farið með sem algjört trúnaðarmál. Áhuga-
samir sendi fyrirspurn sína á netfangið orustustadir@gmail.com.
Ath. öllum alvöru áhugasömum aðilum sem senda okkur nafn, kennitölu, síma
og stutta kynningu á sjálfum sér, verður svarað.
Til sölu hlutafé - meðeigendur óskast:
TÆKIFÆRI
SEM BÝÐST EKKIAFTUR