Morgunblaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2015
Áþreifanleg vellíðan EDDA
HEILDVERSLUN
Stofnsett 1932
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími: 525 8210
eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is
82
ÁRA
EDDA Heildverslun
Draumur um góða nótt
Heildverslun með lín fyrir:
• hótelið
• gistiheimilið
• bændagistinguna
• veitingasalinn
• heilsulindina
• hjúkrunarheimilið
• þvottahúsið
• sérverslunina
Gæði og glæsileiki
Heildverslunin Edda hefur um áratuga
skeið sérhæft sig sem innflytjandi á líni.
Mörg af stærstu hótelum landsins jafnt
sem minni nota allt lín frá okkur.
Bjóðum einnig upp á lífrænt lín.
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Gististaðir eru ekki heimilir í
Örfirisey samkvæmt nýrri
deiliskipulagstillögu fyrir svæðið, en
fram hafa komið hugmyndir um slík-
an rekstur þar. Þá er ekki gert ráð
fyrir stækkun eða fjölgun stórmark-
aða og skal slík starfsemi vera víkj-
andi á svæðinu, segir í greinargerð
með tillögunni.
Þar er byggt á aðalskipulagi frá
síðasta ári og er meginmarkmið
hennar að spyrða saman gildandi
áætlanir í eina heildstæða deili-
skipulagsáætlun. Í greinargerð
kemur fram að margar deiliskipu-
lagsáætlanir eru í gildi sem sam-
anlagt taka til nánast alls skipulags-
svæðisins. „Þær hafa verið gerðar
eftir því sem eftirspurn og þarfir
gáfu tilefni til. Því verður ekki sagt
að unnið hafi verið samkvæmt fyrir-
fram ákveðinni stefnu til langs tíma
hvað varðar byggðarmynstur og
umhverfismál,“ segir í greinargerð-
inni.
Opinn fiskmarkaður
Auglýsing skipulagsfulltrúans í
Reykjavík er dagsett 16. febrúar og
er frestur til að gera athugasemdir
til 30. mars. Í auglýsingunni segir að
markmið deiliskipulagsins sé að
hafnarstarfsemi verði efld og
vaxtarskilyrði tryggð, að Vesturhöfn
verði áfram miðstöð útgerðar og
fiskvinnslu. Í greinargerð segir að á
vesturhafnarsvæðinu gegni sjávar-
útvegur og vinnsla sjávarafurða
áfram lykilhlutverki og ekki verði
þrengt að þeirri starfsemi.
Til framtíðar hefur verið mörkuð
stefna um uppbyggingu á Reykjavík
Seafood Hall í tengslum við starf-
semi í húsi Íslenska sjávarklasans í
Grandagarði 16, segir í greinargerð-
inni. Þar segir að útleiga Faxaflóa-
hafna á verbúðum við Grandagarð
15-37 til fjölbreyttrar verslunar- og
þjónustustarfsemi sé í samræmi við
markmið aðalskipulags.
Svæðinu er skipt í þrjú svæði hvað
varðar landnotkun og er hafnsækin
starfsemi í fyrirrúmi. Fjölbreyttari
landnotkun s.s. verslun, þjónusta og
fínleg atvinnustarfsemi er þó heimil
á ákveðnu svæði við Fiskislóð og
Grandagarð. Þar er sérstaklega tal-
að um matvöruverslanir (stórmark-
aði) og segir að slík starfsemi skuli
vera víkjandi á svæðinu. Einnig að
gististaðir séu ekki heimilir þar.
Olíuhöfnin í Örfirisey er ekki hluti
þessa deiliskipulags, en við heildar-
endurskoðun svæðisskipulags höf-
uðborgarsvæðisins verður hugað að
framtíðar staðsetningu olíuhafnar.
Endurskoðun umferðarmála
Gert er ráð fyrir að fjölbreytt
menningar og þjónustustarfsemi
verði við vestari hluta Grandagarðs
og áhugaverð dvalarsvæði og göngu-
leiðir við vestur- og norðurhluta
Grandagarðs. Fram kemur í grein-
argerð að unnið er að endurskoðun
umferðarmála á Grandagarði frá
Grandatorgi að Járnbraut með það
fyrir augum að greiða leiðir fyrir
gangandi vegfarendur og hjólandi.
Sérstaka skoðun fær gatan frá
Grandatorgi að Hólmaslóð sem
borgargata.
Að stórum hluta tekur skipulags-
svæðið til lands á uppfyllingu, en
jafnframt er hluti þess gamalt at-
hafnasvæði. Talsvert er því um frið-
lýst mannvirki á svæðinu og má
nefna ytra byrði verbúðanna við
Grandagarð, steinhleðslur í Norð-
urgarði og hluta steinhleðslna við
Víkina og verbúðarbryggju frá
Rastargötu til Bótabryggju.
Engir gististaðir í Örfirisey
Starfsemi stórmarkaða verði víkjandi Meginmarkmið nýrrar deiliskipulagstillögu að spyrða
saman gildandi áætlanir í eina heildstæða Hafnarstarfsemi verði efld og vaxtarskilyrði tryggð
Morgunblaðið/Eggert
Á Grandagarði á góðum degi Mikið líf hefur færst í gömlu verbúðinar á síðustu árum og margir sækja þangað.
„Að leggja fram jafn metnaðar-
lausar tillögur og raun ber vitni
veldur miklum vonbrigðum svo
ekki sé talað um samráðsleysið,“
segir í bréfi sem sent var stjórn
Faxaflóahafna um miðjan desem-
bermánuð. Þar eru gerðar marg-
víslegar athugasemdir við deili-
skipulagstillögu fyrir Vestur-
höfnina. Bréfið er ritað af hálfu
eigenda fasteigna á níu lóðum við
Fiskislóð og eiganda lóðarréttar á
einni lóð til viðbótar. Alls er við-
komandi reitur 25.900 fermetrar.
Torvelda byggðaþróun
Í bréfinu segir m.a. að tillögurn-
ar loki fyrir þá möguleika sem hafi
falist í nýsamþykktu aðalskipulagi
Reykjavíkur um að opna mætti
gististaði í flokki II og III á svæð-
inu. Nýtingarhlutfall sé langt fyrir
neðan það sem heimilað hafi verið á
öðrum byggingarreitum í borginni,
ákvæði um hámarkshæð veki furðu.
Þá sé skipting í flokka eftir svæðum
íþyngjandi fyrir Lindberg sem er
eigandi mannvirkja á lóðunum.
„Í tillögunum vottar ekki fyrir
framtíðarsýn um uppbyggingu á
svæðinu, þvert á móti torvelda þær
alla byggðaþróun,“ segir í bréfinu.
Verði dregnar til baka
Eigendur Lindberg fara fram á
að deiliskipulagstillögurnar verði
dregnar til baka og félaginu verði
gefinn kostur á viðræðum við
borgaryfirvöld um framtíðarupp-
byggingu á svæðinu.
Bréfið er ritað fyrir hönd FSPB 2
ehf., sem er félag í eigu SPB hf., áð-
ur Sparisjóðabanka Íslands. Það er
aftur eigandi félagsins Lindberg
ehf. sem er eigandi fyrrnefndra
fasteigna. Straumur fjárfesting-
arbanki hf., fer með eignaumsýslu
fyrir hönd skiptaráðanda á eignum
þrotabús Sparisjóðabankans.
Bréfinu var vísað til umhverfis-
og skipulagssviðs borgarinnar og
samkvæmt upplýsingum blaðsins
munu fulltrúar Lindberg fylgja at-
hugasemdum sínum eftir nú þegar
deiliskipulagstillagan er komin í
formlegt ferli.
„Vottar ekki fyrir
framtíðarsýn“
Harðorðar athugasemdir frá eigend-
um fasteigna á níu lóðum við Fiskislóð
Morgunblaðið/Júlíus
Byggt á uppfyllingu Margvísleg starfsemi er í húsunum við Fiskislóð.
Á fundi stjórnar Faxaflóahafna
14. nóvember var fjallað um
deiliskipulag í Örfirisey og var
samþykkt að senda tillöguna til
hefðbundinnar meðferðar
skipulagsráðs Reykjavíkur. Júl-
íus Vífill Ingvarsson bókaði eft-
irfarandi á fundinum:
„Tillagan er að mestu stað-
festing á gildandi deiliskipulag-
sáætlunum en horfir ekki til
framtíðar og þeirra fjölmörgu
spennandi tækifæra til byggða-
þróunar, sem liggja í svæðinu
Enda þótt fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins telji tillöguna endur-
spegla litla hugmyndaauðgi
samþykkir hann að auglýsa
hana en setur fyrirvara við end-
anlega afstöðu eftir að at-
hugasemdir og ábendingar hafa
borist frá hagsmunaaðilum og
öðrum sem áhuga hafa á
byggðaþróun og betri borg.“
Fyrirvari
við afstöðu
BÓKUN JÚLÍUSAR VÍFILS