Morgunblaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 40
40 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2015 sem eigi að vera það að stilla til frið- ar. „Gerist það eykst hættan á að dragast með inn í átökin. Það þarf því að spyrja hvaða hlutverki vald- beitingin getur gegnt í friðarferlinu,“ segir Mats og bætir við að oftar en ekki sé meiri þörf á því að treysta innviðina á átakasvæðum heldur en að beita hervaldi. „Það er ekki hægt að halda friðinn til lengdar í pólitísku tómarúmi. Það er því sú hætta að með því að beita valdi á svæðum þar sem lítil von er á friði leiði bara til nokkurs konar hringrásar, þar sem valdbeitingin ýtir bara undir frekari átök á svæðinu,“ segir Mats. Voðaverkin sköpuðu pressu En hvaðan kom þessi áhersla á „harðari“ friðargæslu? „Það sem gerðist, var að í kjölfar hryllingsins á fyrri hluta 10. áratugarins í Rúanda og Srebrenica, þá kom upp sú tilfinn- ing að Sameinuðu þjóðirnar gætu ekki setið hjá þegar slíkir atburðir ættu sér stað. Þá skapaðist mikil pressa á samtökin að beita sér til þess að koma í veg fyrir gríðarmikil hermdarverk af þessu tagi,“ segir Mats. Hann segist skilja það og sé sammála því að Sameinuðu þjóðirnar eigi ekki að sitja hjá í slíkum til- fellum. Hins vegar verði að greina á milli samtakanna og aðildarþjóðanna og þeirri ábyrgð sem þær beri. „Það sem öryggisráðið hefur oft gert með friðargæsluverkefni er að nota þau til þess að losa sig við erfið vandamál sem ráðið veit ekki hvernig á að leysa úr. Ég tel að slík notkun á frið- argæslu sé að bjóða hættunni heim. Í tilfelli Júgóslavíu og Rúanda þarf að spyrja hvaða hluti Sameinuðu þjóð- anna það var sem brást. Voru það samtökin sem slík, eða aðildarríkin sem eiga að veita þeim stuðning sinn? Munurinn þar á er mikill og við þurfum alltaf að hugsa um hvað við eigum við þegar við tölum um Sam- einuðu þjóðirnar.“ Efasemdir meðal þróunarríkja Mats tekur fram að það geti verið ástæða við vissar aðstæður að beita valdi, en að þá þurfi að vera skýr pólitísk markmið sem liggi að baki. „Án slíkra markmiða er líklegra að valdbeitingin muni valda meiri skaða.“ Samsetning Sameinuðu þjóðanna þýði það að líklegra sé að menn greini á um markmiðin, sem leiði aftur til þess að friðargæsluliðið hefur óskýrt umboð. Mats bendir á að nokkur áherslu- munur sé á milli ríkja eins og Ind- lands og Brasilíu og hinna vestrænu ríkja um það hversu mikið gildi hern- aðaraðgerðir geti haft í friðargæslu. Aðspurður segir Mats það ljóst að þjóðir gætu farið að hugsa sig tvisvar um. „Meirihluti þeirra þjóða sem leggja til friðargæslulið eru þróun- arríki á borð við Indland, Pakistan og Bangladesh, og þau yrðu tregari til þess að senda lið á vettvang vit- andi það að það gæti orðið mannfall,“ segir Mats. Það yrði því að hafa það í huga áður en stefnan yrði sett á auk- ið bardagahlutverk friðargæslunnar. Friður verður ekki til í tómarúmi  Mats Berdal, prófessor í öryggis- og þróunarfræðum, hefur efasemdir um gildi „harðrar“ friðar- gæslu  Segir hættuna að Sameinuðu þjóðirnar sogist inn í átök og missi sjónar á markmiðinu Morgunblaðið/Eggert Fullt hús Fyrirlestur Berdals var mjög vel sóttur og var gerður góður róm- ur að máli hans. Berdal hefur efasemdir um gildi „harðari“ friðargæslu. Morgunblaðið/Eggert Friðargæsla Mats Berdal, prófessor í öryggis- og þróunarfræðum við King’s College í London flutti erindi síðastlið- inn föstudag um það hvort að friðargæslulið SÞ ætti að taka að sér aukið bardagahlutverk við vissar aðstæður. VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Því gætu fylgt nokkur vandamál, kjósi Sameinuðu þjóðirnar að gefa friðargæsluliði sínu oftar leyfi til þess að beita valdi. Þetta er álit Mats Berdals, prófessors í öryggis- og þróunarfræðum við King’s College í London, en hann hélt fyrirlestur hér á landi á föstudaginn í síðustu viku á vegum rannsóknasetursins Eddu, og Jafnréttisháskóla Sameinuðu þjóð- anna við Háskóla Íslands. Í fyr- irlestri sínum skoðaði Berdal einkum afskipti Sameinuðu þjóðanna af Lýð- stjórnarlýðveldinu Kongó, Vestur- Afríku og Haíti. Erfitt að blanda stríði við frið Mats segir þróunina hafa verið þá á síðustu tíu til fimmtán árum að leggja meiri áherslu á „harðari“ frið- argæslu. Sú þróun hafi náð vissu há- marki í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, þegar ákveðið var fyrir tveimur árum að veita hluta frið- argæsluliðsins þar svonefnt bar- dagahlutverk. „Ég tel að þessari þróun fylgi nokkur vandamál af ýmsum ástæð- um. Í fyrsta lagi sýnir sagan að það er bæði hættulegt og erfitt að ætla sér að blanda saman stríðsrekstri og friðargæslu,“ segir Mats og bendir á að slíkt hafi gjarnan þau áhrif að grafa frekar undan ástandinu. „Það leiðir einnig til þess að Sam- einuðu þjóðirnar, sem í orði kveðnu eiga að vera hlutlausar, verða þátt- takandi í átökunum,“ segir Mats. Þá þurfi að ákveða hvort samtökin séu tilbúin til átaka, en Mats segir að Sameinuðu þjóðirnar séu að sínu mati lítt hæfar til þess að taka slíka ákvörðun, þar sem aðildarríkin séu mjög sundurleit og oft ósammála um réttar leiðir. Hætta á að dragast með í átök Mats segir það einnig skoðun sína að horfi menn of mikið á valdbeitingu geti þeir misst sjónar á takmarkinu, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra, Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður hafa undirritað samning um að Þjóð- minjasafn Íslands afhendi Háskóla Íslands gömlu Loftskeytastöðina við Brynjólfsgötu 5 til afnota. Með gjafasamningi og afsali gaf Landssími Íslands ríkissjóði Loft- skeytastöðina. Húsið var síðan afhent Þjóðminjasafni Íslands 1. mars 2005 til umráða og umsýslu og skyldi safn- ið frá þeim tíma sjá um rekstur og ráðstöfun þess samkvæmt nánara samkomulagi við Háskóla Íslands. Árið 2013 varð Þjóðminjasafnið há- skólastofnun með sjálfstæðan fjárhag og um þessar mundir er stefnt að undirritun samstarfssamnings milli Háskóla Íslands og Þjóðminjasafns. Að tillögu Þjóðminjasafns Íslands féllst forsætisráðherra á að Háskóli Íslands tæki við ábyrgð Loftskeyta- stöðvarinnar til afnota í þágu starf- semi skólans, segir í tilkynningu. Við undirritun samningsins tekur Há- skóli Íslands við ábyrgð hússins, við- haldi og viðgerðum auk þess að velja húsinu viðeigandi hlutverk sem hæfir sögu þess og byggingarsögulegu gildi, s.s. á sviði skipulags-, umhverf- is- og menningarfræða og tækni- greina. Loftskeytastöðin var byggð árið 1915 og er með árinu 2015 friðuð á grundvelli laga um menningarminjar. Samkvæmt samningnum mun Há- skóli Íslands sjá til þess að saga húss- ins á sviði fjarskipta verði þar sýnileg. Loftskeytastöðina Húsið var reist á Melunum í Reykjavík árið 1915. Loftskeytastöðin í umsjá Háskólans HEIMAPAKKINN! SEM BIGGEST LOSER KEPP ENDUR FENGU MEÐ SÉR HEIM! HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS NUDDRÚLLA · ÆFINGADÝNA · SIPPUBAND · ÆFINGATEYGJA · KETILBJALLA NÁNARÁWWW.GAP.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.