Morgunblaðið - 20.02.2015, Blaðsíða 16
Stjórn Sorpu bs. kom saman síð-
ast til fundar 6. febrúar síðastlið-
inn. Fyrsta mál á dagskrá fundar-
ins var niðurstaða úrskurðar-
nefndar upplýsingamála vegna
spilliefnaútboðs og ósk Efna-
móttökunnar hf. um að reka það
mál fyrir dómstólum fyrir hönd
Sorpu. Úrskurðarnefndin tók undir
kröfu Íslenska gámafélagsins um
aðgang að öllum tilboðsupplýs-
ingum Efnamóttökunnar í útboð-
inu, þ.m.t. einingarverð, en Sorpa
hafði neitað því að afhenda gögn-
in. Samþykkti stjórn Sorpu að
Efnamóttakan myndi reka málið
fyrir dómstólum, fyrir hönd Sorpu.
Annað mál á dagskrá fundarins var niðurstaða kærunefndar út-
boðsmála í máli Íslenska gámafélagsins og dótturfélags þess,
Metanorku, gegn Sorpu vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar
fyrir höfuðborgarsvæðið, sem staðsett verður í Álfsnesi. Kröfðust
félögin aðgangs að gögnum Sorpu, sem lögð voru fyrir kærunefndina
en Sorpa krafðist trúnaðar um. Veittur var aðgangur að ákveðnum
hluta gagnanna og eru félögin komin með þau í hendur.
Þriðja mál á fyrrnefndum stjórnarfundi Sorpu var niðurstaða Hér-
aðsdóms Reykjavíkur í máli fyrirtækisins gegn Samkeppnis-
eftirlitinu. Dómurinn staðfesti 45 milljóna króna sekt Samkeppn-
iseftirlitsins sem Sorpu ber að greiða. Stjórnin ákvað að áfrýja
dómnum til Hæstaréttar.
Áfrýja dómi til Hæstaréttar
ÞRJÚ MÁL Á SÍÐASTA STJÓRNARFUNDI SORPU
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2015
Fæst í apótekum, heilsubúðum,
Hagkaup Spönginni og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Bólgur eða
verkir?
www.annarosa.is
Tinktúran túrmerik og engifer
bæði bólgu- og verkjastillandi og hefur
gefist afar vel við slitgigt, liðagigt og
álagsmeiðslum. Túrmerik og engifer er
hvort tveggja einnig þekkt fyrir að lækka
blóðþrýsting, blóðsykur og blóðfitu.
Inniheldur svartan pipar
sem eykur upptöku túrmeriks.
þykir
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Sorpa bs. hefur á undanförnum ár-
um orðið að verja talsverðum tíma
og fjármunum í málarekstur vegna
meintra brota í samkeppnis- og út-
boðsmálum.
Dæmi um þetta
má sjá í síðustu
fundargerð
stjórnar Sorpu
þar sem þrjú af
sjö erindum
tengdust mála-
vafstri með ein-
hverjum hætti.
Hefur stjórn
Sorpu ákveðið að
ganga á fund umhverfisráðherra til
að óska breytinga á lögum þannig að
ábyrgðarskipting sé skýr í mála-
flokknum.
„Það er ekkert skemmtiefni fyrir
okkur að taka fyrir dómsmál og
klögumál á nánast hverjum fundi,“
segir Bjarni Torfi Álfþórsson,
stjórnarformaður Sorpu bs. og
bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, við
Morgunblaðið.
Sekt fyrir markaðsmisnotkun
Frá árinu 2001 hefur Sorpa, sem
er í eigu sveitarfélaganna á höfuð-
borgarsvæðinu, átta sinnum verið til
meðferðar hjá kærunefnd útboðs-
mála. Þar hafa önnur sorphirðu- og
endurvinnslufyrirtæki ekki sætt sig
við viðskiptahætti Sorpu eða til-
högun útboða á vegum þess.
Eitt þessara átta mála er nú á leið-
inni fyrir Hæstarétt. Þar sætti kær-
andi, Gámaþjónustan, sig ekki við
niðurstöðuna hjá kærunefnd útboðs-
mála og leitaði til Samkeppniseftir-
litsins, sem ákvað að sekta Sorpu um
45 milljónir króna vegna misnotk-
unar á markaðsráðandi stöðu. Sorpa
fór með málið til áfrýjunarnefndar
samkeppnismála og krafðist þess að
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins
yrði ógilt og til vara að sektin yrði
lækkuð eða felld niður. Áfrýjunar-
nefndin staðfesti sektina og féllst
ekki á kröfu Sorpu um lækkun sekt-
ar.
Sorpa skaut þessu máli til dóm-
stóla og í janúar sl. féll dómur í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur þar sem sektin
var staðfest. Taldi héraðsdómur að
Sorpa hefði með háttsemi sinni mis-
notað markaðsráðandi stöðu sína,
með því að mismuna viðskiptavinum
með ólíkum afsláttarkjörum í sams-
konar viðskiptum, í formi aukins af-
sláttar til eigenda sinna og Sorp-
stöðvar Suðurlands bs.
Bjarni Torfi Álfþórsson segir
Sorpu vilja fá endanlega niðurstöðu
fyrir dómstólum, það þurfi m.a. að fá
betur á hreint hvort Sorpa sé fyrir-
tæki á samkeppnismarkaði eða ekki.
Ef breyta eigi fyrirtækinu þurfi að
breyta löggjöfinni.
„Við höfum ákveðnar lagalegar
skyldur við að sinna sorphirðu í okk-
ar sveitarfélögum. Sem opinberu
fyrirtæki ber okkur til dæmis að af-
henda gögn í útboðsmáli. Um það
fjölluðum við á síðasta fundi. Í af-
sláttarmálinu erum við dæmd sem
fyrirtæki á samkeppnismarkaði. Við
viljum eiga fund með ráðherra mála-
flokksins til að hjálpa okkur að taka
kúrsinn,“ segir Bjarni Torfi.
Hann segir einkafyrirtæki hafa
verið að taka að sér æ fleiri verkefni í
sorphirðu en þar snúist starfsemin
að mestu um að hirða úrgang og sorp
sem hægt sé að breyta í verðmæti.
„Ef sorphirða væri alfarið á mark-
aði væru fáir til að taka það sem eng-
in verðmæti eru í. Við erum með
heildstæða stefnu í þessum málum;
með bæði gráar tunnur undir al-
mennt sorp og bláar tunnur fyrir
pappír, erum með grenndargáma
fyrir plast og pappa og ætlum að
bæta glerinu við. Við rekum urð-
unarstaði og þurfum að gera það í
mörg ár eftir að þeim er lokað.“
Vandlifað hjá Sorpu
Bjarni Torfi segir jafnframt að
ekki verði komist hjá því í rekstri al-
menns fyrirtækis eða byggða-
samlags að einhver telji á sér brotið
eða ranglega gengið framhjá sér. Þá
sé eðlilegt að menn leiti til dómstóla.
„En það er vandlifað hjá okkur í
Sorpu. Eftir að sekt var ákvörðuð á
okkur felldum við niður alla afslætti,
lækkuðum verð og endurskoðuðum
verðskrána. Þá vorum við kærðir
fyrir að vera ekki með neina afslætti.
Í dómi héraðsdóms í afsláttarmálinu
segir á einum stað að lögin veiti ekki
einkarétt á söfnun sorps, en eftir
sem áður er öll ábyrgð sveitarfélag-
anna. Við erum orðnir langþreyttir á
þessari óvissu og viljum fá leiðsögn
stjórnvalda um hvernig við getum
fetað okkur áfram í þessu rekstrar-
umhverfi,“ segir Bjarni Torfi Álf-
þórsson.
Sorpa í stöðugu málavafstri
Stjórn Sorpu orðin þreytt á sífelldum málaferlum Ekkert skemmtiefni, segir stjórnarformaðurinn
Funda á með umhverfisráðherra til að ræða lagabreytingar Vilja skýrari ábyrgðarskiptingu
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sorphirða Byggðasamlagið Sorpa rekur urðunarstöð í Álfsnesi fyrir sorp frá heimilum á höfuðborgarsvæðinu. Byggja á nýja jarðgerðarstöð í Álfsnesi.
Bjarni Torfi
Álfþórsson
Byggðasamlag
» Eigendur Sorpu eru sveitar-
félögin sex á höfuðborgar-
svæðinu; Reykjavík, Kópavog-
ur, Garðabær, Hafnarfjörður,
Mosfellsbær og Seltjarnarnes.
» Tilgangur byggðasamlags-
ins er að annast meðhöndlun
úrgangs fyrir sveitarfélögin.
» Helstu verkefni eru að reka
urðunarstað og móttökustöðv-
ar ásamt flutningi á sorpi.
Starfsmenn eru um 95 talsins.
Sorpa Sex sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu sameinast um sorphirðu.
Morgunblaðið/Frikki