Morgunblaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2015
Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmi
Konur í Stykkishólmi hafa verið í for-
ystu um að halda menningarhátíð í
lok febrúar síðustu þrjú ár og nefnt
Júlíönu, hátíð sögu og bóka. Að þessu
sinni verður hátíðin haldin dagana
26. febrúar til 1. mars með áhuga-
verða dagskrá alla dagana. Á bók-
menntasviði eru tekin fyrir verk er
tengjast konum. Að þessu sinni er
viðfangsefni hátíðarinnar minningar
– sannar og ósannar, héðan og þaðan.
Eftir áramót hófst undirbúningur
samkomunnar með að stofnaður var
leshópur sem tók fyrir bókina Von-
arland eftir Kristínu Steinsdóttur.
Hann hefur komið saman vikulega. Á
hátíðinni mun höfundurinn mæta á
staðinn og fjalla um bókina.
Guðað á gluggann
Hátíðin verður sett í Vatnasafninu
fimmtudaginn 26. febrúar. Þar verð-
ur veitt viðurkenning fyrir framlag til
menningarmála í Stykkishólmi, það
er Guðað á gluggann þar sem fjallað
er um hús sem hafa merka sögu.
Á föstudagskvöld bjóða Hólmarar
gestum heim til sín með dagskrá.
Eftir hádegi á laugardag munu rit-
höfundarnir Hallgrímur Helgason og
Kristín Steinsdóttir fjalla um verk
sín í gömlu kirkjunni og Elísabet
Jökulsdóttir ræðir um bók móður
sinnar, Jóhönnu Kristjónsdóttur. Um
kvöldið verður lesið úr ljóðum Júlí-
önu Jónsdóttur í Norska húsinu.
Gréta Sigurðardóttir er ein af
þeim konum sem hafa staðið fyrir
menningarhátíðinni í öll skiptin. Hún
segir að ótrúlega gaman hafi verið að
taka þátt. „Slíkar hátíðir eru góð til-
breyting og má segja að þær færi
birtu inn í skammdegið á vetrar-
dögum,“ segir Gréta. Allt starf í
kringum hátíðina er unnið af áhuga-
fólki sem vill láta gott af sér leiða.
Það er ókeypis aðgangur að öllum
dagskrárliðum.“
Júlíönuhátíðin hefur tekist mjög
vel og hefur verið góð aðsókn í fyrri
skiptin. „Það sem gleður okkur hvað
mest er hvað margir gestir koma í
heimsókn og dvelja með okkur Hólm-
urum þessa helgi,“ segir Gréta Sig-
urðardóttir.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Undirbúningur Konur standa fyrir Júlíönu-hátíðinni. Á þessum undirbún-
ingsfundi hefur þó einn karlmaður verið kallaður til.
Sannar og ósannar
minningar til umræðu
Menningarhelgi í Stykkishólmi
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Seltjarnarnesbær hefur óskað eftir
rökstuðningi lóðarhafa varðandi
fyrirhugaða byggingu 34 íbúða fjöl-
býlishúss á Hrólfsskálamel 1-5. Hef-
ur bærinn til skoðunar hvort hæð,
stöllun og útlit hússins samræmist
þeirri hugsun sem lagt var upp með í
deiliskipulagi.
Fram kom í umfjöllun Morgun-
blaðsins 16. janúar að fasteigna-
félagið Upphaf væri byggingaraðili
hússins og eigandi verkefnisins.
Birtust þá í fyrsta sinn myndir af
fyrirhuguðu stórhýsi í fjölmiðlum.
Þórður Ó. Búason, skipulags- og
byggingarfulltrúi á Seltjarnarnesi,
væntir niðurstöðu á mánudag.
„Umsækjandi hefur frest sam-
kvæmt stjórnsýslulögum til að
bregðast við ábendingu sem þeim
var send. Það verður svo metið þeg-
ar andmælafrestur er liðinn. Þá
verður byggingarfulltrúi að skoða
rökin í málinu og taka ákvörðun. Ég
býst við að það verði á mánudag.“
Mismunandi túlkun gagna
„Það kom í ljós við nánari athugun
að túlkun deiliskipulagsgagna gat
verið mismunandi. Þetta er mál sem
hönnuður húss túlkar með
ákveðnum hætti og sannfærir bygg-
ingarfulltrúa svo um. Svo þegar
byggingarfulltrúi þarf að fara að
vinna samkvæmt vinnureglum og
senda málsaðilum, sem gerðu at-
hugasemdir þegar deiliskipulagið
var kynnt á sínum tíma, bréf kemur í
ljós að sniðmyndir og götumyndir
voru af hönnuði túlkaðar sem
skýringarmyndir, en var kannski
frekar ástæða til að túlka sem hluta
af viðkomandi deiliskipulagsskil-
málum.“ Þórður segir aðspurður að
nágrannar hafi ekki lagt fram form-
legar athugasemdir vegna útlits
hússins.
„Það hefur enda ekki verið tilefni
til þess enn þá. Þeir hafa hins vegar
óskað eftir fundum til að fá upplýs-
ingar um málið. Á vegum bæjarins
hafa engin hönnunargögn verið birt.
Það eru aðeins lóðarhafar sem hafa
birt skjöl. Eina umfjöllunin sem
birst hefur á heimasíðu er umfjöllun
um afgreiðslu byggingarfulltrúa á
málum í skipulagsnefnd og bæjar-
stjórn og þar var um að ræða bréf
sent til umsækjanda. Skilyrði bygg-
ingarleyfis eru ekki uppfyllt. Bygg-
ingarleyfisgjöld hafa ekki verið
greidd enda ekki verið lögð á. Þann-
ig að gjörningurinn hefur ekki klár-
aður,“ segir Þórður um málavexti.
Funduðu með bæjarstjóra
Hinn 4. febrúar óskuðu þrír Sel-
tirningar eftir formlegu svari frá
Þórði varðandi nokkur atriði sem
lúta að fyrirhugaðri byggingu.
Spurningin var í 9 liðum og m.a.
spurt um „samræmi byggingar við
gildandi deiliskipulag, bæði almennt
og svo sérstaklega m.t.t. misræmis á
hæð [húsa] á birtum teikningum og
þeim sem fram koma í deiliskipu-
lagi“. Þessir sömu íbúar, sem eru all-
ir til heimilis í Austurströnd, gegnt
Hrólfskálamel, áttu svo fund með
Ásgerði Halldórsdóttur, bæjarstjóra
Seltjarnarness, Bjarna T. Álfþórs-
syni, formanni skipulagsnefndar, og
Þórði Búasyni hinn 11. febrúar.
Komu íbúarnir þá á framfæri þeirri
skoðun sinni að farið væri á skjön við
fyrir yfirlýsingar með því að leyfa
hærri byggingar en kæmi fram í
deiliskipulagi.
Var þá haft eftir Þórði í fundar-
gerð að framkvæmdaaðilar hefðu
skilað inn aðalteikningum og fengið
samþykktar. Þær væru innan marka
varðandi byggingarmagn en vafi
standi um hæð hennar.
Fjölbýlishús er hugsanlega of hátt
Seltjarnarnesbær kannar hvort fyrirhuguð blokk á Hrólfsskálamel samræmist deiliskipulagi
Skipulagsfulltrúi væntir niðurstöðu á mánudag Nágrannarnir funda með bæjarstjóra
Tölvuteikning/ASK arkitektar
Hrólfsskálamelur 1-5 Fyrirhugað fjölbýlishús mun setja svip á umhverfið. Sumum nágrönnum þykir það of hátt.
Hrólfsskálamelur
Eiðistorg