Morgunblaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2015
Undirþrýstingur í miðeyra með vökva.
Eftir þrýstingsjöfnunmeðOtoventblöðru,
miðeyrað opið og engin vökvi.
Otovent meðferðin er til að létta á undirþrýsting
í miðeyra.
Getur fyrirbyggt og unnið á eyrnabólgu og vanlíðan
með því að tryggja að loftflæði og vökvi eigi greiða leið
frá miðeyra.
Meðferð getur dregið úr eyrnabólgum, sýklalyfjanotkun,
ástungumog rörísetningum. Læknar mæla með Otovent.
Klínískar rannsóknir sýna gagnsemi við lokun í miðeyra,
skertri heyrn eftir eyrnabólgur, óþægindum í eyrum við
flug, sundferðir eða köfun.
Otovent er einfalt og þægilegt fyrir börn og fullorðna.
Rannsóknir sýna góðan árangur. CE merkt.
Fæst í apótekum
Fyrsta hjálp til að
laga og fyrirbyggja
eyrnabólgur Viðurkennd meðferð
Umboð Celsus ehf
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sum af bestu listaverkunum urðu til
fyrir „mistök“, nokkuð sem leiddi þig í aðra
átt en þú ætlaðir upphaflega. Fylgdu þessu
ráði þótt nýtt verkefni sé að reyna að soga
þig til sín.
20. apríl - 20. maí
Naut Ef þú leggur áherslu á að hlusta og taka
á móti visku annarra muntu koma mjög miklu
í verk með mjög litlu erfiði. Gáðu hvað þú átt
mikið og hvað þú skuldar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Óvænt áform um ferðalög gætu
komið þér á óvart. Bilanir eða tölvuvandræði
geta annaðhvort aukið álagið eða neytt þig til
að gera hlé á vinnunni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Persónuleg vandamál valda þér
áhyggjum og taka stóran hluta af tíma þín-
um. Af hverju að vera vandfýsinn? Éttu allt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Kannski að rökvísin sé ekki fullkomin –
ekki nærri því. Veislur, orlof, afþreying með
smáfólkinu, ást og rómantík auka á gleðina í
lífi þínu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú finnur fyrir óvenjumiklu sjálfstæði
og uppreisnargirni og vilt alls ekki láta segja
þér fyrir verkum. Gleymdu þó ekki að vera til
staðar og aðstoða vini þína sem á því þurfa
að halda.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert uppreisnargjarn í eðli þínu og
blóðið ólgar í þér í dag. Láttu verða af því –
það mun ganga vel!
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þráir stöðugleika í sam-
böndum þínum en stöðugleiki er ekki mögu-
legur eins og stendur. Að klæðast og innrétta
er ekki duttlungar í þínum augum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú munt sjá að eitt er um að tala
og annað í að komast. Víktu til hliðar, dragðu
djúpt andann og hafðu í huga að þetta snýst
ekki um að „sigra“.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Mundu að það er ekki allt gull sem
glóir og að lífshamingjan felst ekki bara í efn-
islegum gæðum þótt gagnleg séu. Fólk er
upptekið af því að segja skoðun sína.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú skalt ígrunda vel ráðleggingar
þeirra sem standa þér næst. Haltu þínu striki
ótrauður, sinntu þínum málum og hafðu ekki
áhyggjur af því sem aðrir hugsa eða gera.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Láttu ekki aðra hrifsa til sín það sem í
raun er þinn hlutur. Veittu því athygli hvernig
þú kemur fram við aðra og reyndu að breyta
því sem betur má fara.
Eins og löngum var síðasta gátaeftir Guðmund Arnfinnsson:
Rolluskjáta þrjósk og þver.
Þetta er mikil sveðja.
Nál, sem varla nothæf er.
Næsta ferleg beðja.
Og svarar sjálfum sér þannig:
Bredda er sauðkind baldin harla.
Bredda sveðja mikil er.
Bredda nál er brúkleg varla.
Bredda er kona stór og sver.
Helgi R. Einarsson á þessa lausn:
Við áskoranir örvun finn,
einhvers konar greddu.
Jæja, þá í þetta sinn
þið eigið við breddu.
Guðrún Bjarnadóttir svarar
Úr nætursulti kom sedda.
Svefn var djúpur á bedda.
Úr Vísnahorni
og Weeta korni
hoppaði harðvítug bredda.
Harpa á Hjarðarfelli leysir gát-
una þannig:
Þessi reyndist þraut erfið
við því er eitt að gera.
Brjóta heilann. Býst ég við
það bredda muni vera.
Hún lét fylgja gátu sem hún setti
saman á dögunum, – „þó gáturnar
hans Guðmundar séu góðar er ekki
sanngjarnt að hann fái aldrei að
glíma við annarra gátur“:
Hann má sjá á húsunum
og hér og þar í skápunum.
Um loftið flýgur létt hjá mér
og líka inn í tæki fer.
Ég hef einstaka sinnum freistast
til að birta tvær gátur og læt það
eftir mér að gera það núna. Þessi er
gáta Guðmundar Arnfinnssonar:
Sífullan hver maður sér hann.
Hann sökkvir sér niður í lestur.
Í blekkingarskyni var bestur.
Búnaðarháskóli er hann.
Tíðin hefur verið rysjótt. – „Nú
er þorrinn rokinn upp aftur með
ólæti og ég heyri engan sáttatón í
honum,“ skrifar Sigmundur Bene-
diktsson á Leirinn og verður „bara
fúll á móti“:
Kirjar hátt með kyljugný
keyrir mátt til slátta.
Þorri gáttum þusar í
þylur fátt til sátta.
Næsta dag segir Sigurlín Her-
mannsdóttir á Boðnarmiði:
Nú er úti rok og regn
raunar fátt sem gleður.
Alveg er það mér um megn
að mæra svona veður.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Bredda er margrætt
orð og ekki fallegt
Í klípu
„ER VIRKILEGA ÞÖRF Á ÞESSU? ÉG ER
BÚINN AÐ JÁTA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÓKEI, ÞÚ HEFUR FIMM MÍNÚTUR TIL
ÞESS AÐ KVEIKJA ÁHUGA MINN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vita að hann er sá
rétti.
ÞAÐ ER VONT VEÐUR
Í NÁGRENNINU
EKKI
SVARA
ÞESSU!
EINN FYRIR MIG,
EINN FYRIR HANN,
EINN FYRIR MIG,
EINN FYRIR HANN,
EINN FYRIR MIG,
EINN FYRIR HANN,
EINN FYRIR MIG,
EINN FYRIR HANN...
HVER ER ÞETTA
SEM ER AÐ TELJA
GULLPENINGANA?
FJÁRMÁLARÁÐGJAFI
KONUNGSINS
Víkverji á það til að fyllast ofurtrú ásjálfan sig þegar hann leysir
verkefni sem hann hefur aldrei áður
tekið sér fyrir hendur. Í rauninni er
það óskiljanlegt hvernig hann öðlast
þessa trú á sjálfan sig þar sem hann
þekkir sjálfan sig nokkuð vel og ber
alla jafna skynbragð á hæfileika sína
og jafnframt takmarkanir. Oftast.
x x x
Þannig er mál með vexti að Víkverjibrá undir sig betri fætinum á
dögunum – skellti sér á þorrablót í
sveitinni, sem var frábært í alla staði.
Eins og gefur að skilja í slíku samsæti
þá eru allir í sínu fínasta pússi og var
Víkverji að sjálfsögðu engin undan-
tekning þar á. Þá fer málið að vand-
ast.
x x x
Víkverji var búinn að ákveða aðgera þessa fínu slöngulokka í hár
sitt í stað þess að hafa það rennislétt.
Víkverji tekur það fram að þessi
krullusýki hans hefur ekkert að gera
með að hann sé sá eini í sinni fjöl-
skyldu sem skartar rennisléttum
lokkum … En alla vega hafði Víkverji
aldrei gert slíkt sjálfur enda á hann
ekki tæki sem gerir slíkt heldur ávallt
setið á rassinum á meðan vinkonur
Víkverja hafa séð um dúlleríið í íðil-
fagurt hár hans.
x x x
Víkverji taldi sig aldeilis geta gertþetta sjálfur enda ekki flókin
framkvæmd. Var honum sagt. Vík-
verji fékk lánað forláta krullujárn hjá
litlu frænku sinni, sem var ekki heima
af einhverjum óskiljanlegum ástæð-
um. Hann stakk í samband og byrjaði
að vefja hár sitt í kringum járnið eins
og hann hafði séð fagmennina gera.
Ekki vildi betur til en svo að hann
skellti því í andlit sitt og brenndi
þennan fína blett við augabrúnina.
Þetta var ekki eina óhappið því hann
rak það í háls sinn og brenndi sig og
líka við hársræturnar í andlitinu. Sem
sagt á þremur stöðum.
x x x
Hér eftir þegar þið sjáið vel snyrtakvenmenn á ferð með fagra
lokka og vel málað andlit þá liggur
fagmennska og fyrirhöfn á bak við
þetta. víkverji@mbl.is
Víkverji
Ef við játum syndir okkar, þá er hann
trúr og réttlátur svo að hann fyrirgefur
okkur syndirnar og hreinsar okkur af
öllu ranglæti. (Fyrsta Jóhannesarbréf 1:9)