Morgunblaðið - 21.02.2015, Side 46

Morgunblaðið - 21.02.2015, Side 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2015 Söfn • Setur • Sýningar Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Á veglausu hafi í Bogasal Hvar, hver, hvað? í Myndasal Húsin í bænum á Veggnum Nála á Torginu Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna Safnbúð og kaffihús Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið frá 11-17 alla daga nema mánudaga. Listasafn Reykjanesbæjar • Til sjávar og sveita, Gunnlaugur Scheving • Sjálfsagðir hlutir, hönnunarsaga. • 15/15 – Konur og myndlist, úr safneigninni. 24. janúar – 8. mars Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Listasafn Erlings Jónssonar Opið virka daga 12-17, helgar 13-17. Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn Verið velkomin ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN ÍSLANDS Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. KONUR STÍGA FRAM - SVIPMYNDIR 30 KVENNA Í ÍSLENSKRI MYNDLIST 13.2.-10.5.2015 A KASSEN CARNEGIE ART AWARD 2014 13.2. - 10.5. 2015 SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur. KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar. IN THE CRACK OF THE LAND - Una Lorenzen LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is LISTAMAÐUR Á SÖGUSLÓÐUM Johannes Larsen á ferð um Ísland 1927 og 1930. 31.1–22.3.2015. Í FÓTSPOR JOHANNESAR LARSEN UM ÍSLANDS - Fyrirlestur Vibeke Nörgaard Nielsen og Sigurlínar Sveinbjarnardóttur, á sunnudag kl. 15 Opið laugardaga og sunnudag kl. 14-17. Kaffistofan opin á sama tíma. SUMARTÓNLEIKAR 2015. Tónlistarfólk! Umsóknir berist fyrir 17. febr. 2015 SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Í BIRTU DAGANNA Málverk og teikningar Ásgríms Jónssonar, 1.2.-15.9. 2015 KVENNABOÐ Á KONUDAGINN kl. 14, Hrafnhildur Schram listfr. og Rakel Pétursdóttir safnafr. fjalla um verk Ásgríms. Opið sunnudaga kl. 14-17. Largo – presto - Tumi Magnússon Sýningaropnun laugard. 21. feb. kl. 15 Listamannsspjall sunnud. 22. feb. kl. 15 Neisti - Hanna Davíðsson Tónleikar – Hljóðön Sunnudag 22. febrúar kl. 20 Hlín Pétursdóttir Behrens, sópran, Hrönn Þráinsdóttir, píanó og Una Sveinbjarnardóttir, fiðla Hádegistónleikar Þriðjudag 24. febrúar kl. 12:30 Viðar Gunnarsson, bassi og Antónía Hevesi, píanó Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is, sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Síðasta sýningarhelgi, leiðsögn sun. kl. 14. Teikningar og skissur Helgu Björnsson tískuhönnuðar. Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is Dansararnir og danshöf-undarnir Melkorka Sig-ríður Magnúsdóttir ogKatrín Gunnarsdóttir hófu samstarf sitt innan Hreyfi- þróunarsamsteypunnar árið 2005. Í byrjun árs 2013 settu þær á svið sitt fyrsta verk sem dúó innan sam- steypunnar, þetta var verkið Com- ing Up, sem fjallaði um hefðbundna uppbyggingu dansverks og leitina að hinum fullkomna hápunkti. Þær notuðu þannig sinn eigin raunveru- leika sem danshöfundar sem rann- sóknarefni. Í Plane leita þær aftur inn á við þar sem samstarf þessara ólíku kvenna er skoðað í nýju sam- hengi. Dansararnir, sem eru mjög ólíkir að stærð og gerð, notuðu hreyfi- formið til þess að finna jafnvægi og aðlaga sig hvor að öðrum. Hreyfi- orðaforðinn var mjög aðgengilegur og verkið bar með sér sterka heild þar sem léttleiki og leikur var í að- alhlutverki. Hljóðheimur verksins var myndaður af dönsurunum sjálf- um og varð þannig mikilvægur hluti tjáningarformsins. Sviðs- myndin, sem virtist í fyrstu nokkuð einföld, umbreyttist meðan á verk- inu stóð. Allt var þetta þó mjög áreynslulaust og tilfærslan þjónaði alltaf ákveðnum tilgangi fyrir fram- vindu verksins þar sem klisjur úr hefðbundnari dansverkum voru settar í nýtt samhengi á skondinn hátt. Áhorfendum var boðið inn í veröld þessara tveggja persóna þar sem ákveðin hlýja og kærleikur réð ríkjum. Mögulega hefði mátt vinna hugmyndina enn lengra og skerpa á einstaka þáttum verksins en þrátt fyrir það var það þessi einlæga dansgleði sem ríkti á sviðinu án sýnilegrar áreynslu sem gerði stykkið áhugavert og aðgengilegt fyrir alla aldurhópa. Kærleikur „Áhorfendum var boðið inn í veröld þessara tveggja persóna þar sem ákveðin hlýja og kærleikur réð ríkjum,“ segir í rýni um verkið Plane. Leikur að aðlögun andstæðna Tjarnarbíó Plane bbbbn Höfundar og flytjendur: Melkorka Sig- ríður Magnúsdóttir og Katrín Gunnars- dóttir. Sviðsetning og hljóðmynd: Mel- korka Sigríður Magnúsdóttir og Katrín Gunnarsdóttir. Lýsing: Garðar Borg- þórsson. Frumsýnt í Tjarnarbíói 15. febrúar 2015. MARGRÉT ÁSKELSDÓTTIR DANS Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Við erum að vinna með gamla hugmynd úr Stundinni okkar, lið sem hét Bakaraofninn þar sem Gunni var að kenna börnunum að elda,“ segir Felix Bergsson þeir Gunnar Helgason frumsýna í dag klukkan 15, sýninguna Bakaraofn- inn í Gaflaraleikhúsinu. „Við Gunni höfum verið að vinna saman allt frá því 1994 að við tök- um við Stundinni okkar. Allan þennan tíma hefur okkur dreymt um að koma saman leikriti. Við höf- um náttúrlega báðir verið að vinna í leiksýningum og unnið saman en aldrei gert þessa einu og sönnu Gunna og Felix-leiksýningu sem nú stendur til,“ segir hann. Segir sýninguna vera farsa „Yfirleitt var Felix fórnarlambið í liðnum í Stundinni okkar og fékk hann yfir sig hveiti, sykur og annað eins. Við göngum lengra með þessa hugmynd núna og hafa Gunni og Felix ákveðið að stofna veitinga- staðinn Bakaraofninn. Á þessum stað, sem á að verða besti veitinga- staður á Íslandi, á að byggja á gömlum hefðum því Gunni hefur eignast uppskriftir sem gengið hafa í arf, konu fram af konu, allt frá Auði djúpúðgu. Felix ætlar síðan að sjá um að þjóna,“ segir Felix og bætir við að hreinlega sé um farsa að ræða. „Staðurinn er hinsvegar í mikilli niðurníðslu og það verður að hringja í iðnaðarmann sem kemur á svæðið og hann er jafnvel meiri klaufi en Gunni og Felix. Eftir hans heimsókn er allt því orðið verra en áður var. Ævar Þór Bene- diktsson fer með hlutverk hans en margir ættu að þekkja hann sem Ævar vísindamann. Halla Fjällrä- ven, helsti matargagnrýnandi landsins sem hefur sérstakt yndi af því að drepa veitingastaði, er síðan á leiðinni á staðinn. Hana leikur Elva Ósk Ólafsdóttir. Þau eru bæði tvö frábærir leikarar og ótrúlega gaman að vinna með þeim,“ segir hann. Aldrei leiðir hvor á öðrum Felix segir þá Gunna aldrei fá leið hvor á öðrum þrátt fyrir að þeir hafi unnið eins lengi saman og raun ber vitni. Þvert á móti séu þeir miklir vinir. „Við erum duglegir að taka okk- ur pásur en við erum þó í stöðugu samstarfi þannig séð. Við skemmt- um alveg gríðarlega mikið saman og förum mikið um landið. Það er bara ekki hægt að láta sér leiðast í samneyti við þennan góða mann. Við lendum til að mynda oft í því að við erum á leiðinni eitthvað að skemmta og komum hásir úr bíln- um þar sem við erum búnir að hlæja alla leiðina. Við eigum mjög gott skap saman auk þess sem okk- ur hefur alltaf gengið vel að skrifa saman,“ segir hann. Þess má geta að sýningin er um tveir tímar að lengd með hléi og segir Felix hana vera ætlaða börnum frá fimm ára aldri. „Hún er engu að síður ætluð allri fjölskyldunni, foreldrar ættu að skemmta sér vel líka. Máni Svav- arsson, sem hefur meðal annars unnið að Latabæ sér um tónlistina, Einar Mikael hjálpaði til við galdra og sviðsmyndin er algjört krafta- verk unnið af tveimur færeyskum sviðsmyndahönnuðum. Björk Jak- obsdóttir sér síðan um að leik- stýra,“ segir Felix og bætir við að lokum að þrátt fyrir að frumsýn- ingin sé á laugardegi þá verði eftir það leikið á sunnudögum. Gunni og Felix opna veit- ingastað í Gaflaraleikhúsinu  Félagarnir frumsýna sýninguna Bakaraofninn í dag Ljósmynd/Mummi Lú Samvinna Tvímenningarnir hafa unnið saman í meira en tvo áratugi og skapað margar góðar persónur. Felix kveður vinskapinn vera mikinn. Breski tauga- líffræðingurinn Oliver Sacks greindi frá því í aðsendri grein sem birtist í The New York Times í fyrradag, að hann glímdi við ólæknandi krabbamein í lif- ur. Sacks, sem hefur skrifað fjölda vinsælla og verðlaunaðra bóka um fjölbreytileg efni, heitir því að lifa því lífi sem eftir er á eins gjöfulan og skapandi hátt og honum er unnt. Ein þekktasta bók Sacks, Awak- enings, var kveikjan að samnefndri kvikmynd með leikurunum Robin Williams og Robert De Niro. „Fyrir mánuði fannst mér ég vera við góða heilsu, jafnvel afar góða. Ég er orðin 81 árs en syndi mílu á dag. En heppnin var ekki með mér að þessu sinni – fyrir nokkrum vikum komst ég að því að ég er með nokkur æxli í lifrinni,“ skrifar Sacks og bætir við að nú horfist hann í augu við dauðann. „Nú er það undir mér komið hvernig ég kýs að lifa þá mánuði sem eftir eru. Ég verð að lifa á eins gjöfulan og skapandi hátt og mér er unnt.“ Sacks kveðst ætla að hætta að horfa á kvöldfréttir eða fylgjast með þrætum um pólitík og hnatt- ræna hlýnun. Sacks á ólokið við nokkrar bæk- ur, þar á meðal sjálfsævisögu, og hyggst vinna að þeim og dýpka sambandið við sína bestu vini uns yfir lýkur. Sacks hyggst njóta síðustu mánaðanna Oliver Sacks

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.