Morgunblaðið - 23.02.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon.
Á Rauðá Vilhjálmur Grímsson með gráhöttóttu kiðlingana.
Laxamýri| Það var líflegt í geitahús-
inu á Rauðá í Þingeyjarsveit um
helgina, en þá fæddust fjórir kið-
lingar, tveir gráhöttóttir og tveir
svarthöttóttir. Það voru tvær huðn-
ur sem báru þessum kiðlingum, en
alls bera 18 huðnur á Rauðá og því
má búast við því að hópurinn stækki
mikið.
Vilhjálmur Grímsson, bóndi á
Rauðá, hefur langa reynslu af geita-
búskap, en þar er stærsta geitabúið
í Suður-Þingeyjarsýslu og segir
hann að það sé mjög vanalegt að
burðurinn hefjist um þetta leyti.
Þar sem enn er vetrarlegt úti er
langt í það að kiðlingarnir fari út til
þess að bíta gras og leika sér. Hins
vegar er rúmt í geitahúsinu og þar
munu þeir hlaupa um og hoppa á
næstunni. Yfirleitt verða þeir mjög
mannelskir og skemmtilegir félagar
sem eru með ýmisleg óvænt uppá-
tæki. Svo stækka þeir hratt því
mæður þeirra, geiturnar, mjólka
mikið.
Kiðlingarnir ylja í kuldanum
Ómar Garðarsson
omar@eyjafrettir.is
Það gustaði óvenjuhressilega um
Eyjamenn í fyrrinótt og í gær og
þegar verst lét sló í tæpa 60 metra
á sekúndu á Stórhöfða. Á var aust-
an fárvirði og snjókoma og varð
fljótt þungfært um götur bæjarins.
Lítið tjón varð og ekki var lögreglu
kunnugt um slys á fólki þegar rætt
var við hana í gærkvöldi. Sam-
göngur við Eyjar lágu niðri bæði í
lofti og á sjó. Loðnubátar sem lönd-
uðu í Eyjum á laugardag og í gær
biðu af sér veðrið en nokkur skip
héldu sjó á miðunum.
Nánast ófært í bænum
Það var á ellefta tímanum á laug-
ardagskvöldið að veðrið skall á með
fullum þunga og þegar verst lét sást
varla á milli húsa fyrir hríðarkófinu.
Þegar leið á nóttina fór færð að
þyngjast í bænum og þurftu lögregla
og Björgunarfélag Vestmannaeyja
að flytja heim um 100 gesti veitinga-
staðarins Lundans sem hvergi kom-
ust vegna færðar og veðurs. Undir
morgun var bærinn nánast orðinn
ófær og þurfti lögreglan að aðstoða
fólk við að komast úr og í vinnu á
Sjúkrahúsinu og fleiri stofnunum.
Um og upp úr hádegi fór að
draga úr veðri og starfsmenn bæj-
arins byrjuðu að ryðja götur sem
flestar eru orðnar greiðfærar.
Veðrið hafði þó ekki sagt sitt síð-
asta því aftur gaf í um klukkan
fjögur í gær og komst þá stærsta
hviðan á Stórhöfða í 57 metra á
sekúndu og meðalvindhraði var yf-
ir 40 metrar. Í þessum hvelli fauk
40 metra gámur um koll við Frið-
arhöfn og nokkur fiskikör tóku
flugið. Tjón var annars lítið og
Eyjamenn kúrðu heima, konur og
karlar á konudegi sem lét finna
fyrir sér þetta árið.
Herjólfur fór ekki í gær og allt
flug til Eyja lá niðri.
Eftir gott skot hjá loðnuflotanum
á miðunum fyrir sunnan land var
verið að landa úr bátunum fram á
gærdaginn. Bátarnir bíða nú af sér
bræluna á meðan aðrir halda sjó
inni á Meðallandsbug.
Sló í 57 metra á Stórhöfða
40 metra gámur fauk um koll við Friðarhöfn og nokkur fiskikör tóku flugið
Um 100 manns hjálpað heim af Lundanum og öðrum til vinnu sinnar í Eyjum
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Löndun Ellert Scheving Pálsson og aðrir í áhöfninni á loðnuskipinu Júpíter voru að klára að landa eftir hádegi í gær. Þeir voru með um 1.100 tonn sem fóru
að hluta í frystingu hjá Ísfélaginu, en svo var brottför áætluð klukkan 21 í gærkvöldi. Nóg virðist vera af loðnu en veiðar næstu daga ráðast af veðri.
Ávallt reiðubúnir Frosti Gíslason og Baldur Þór Braga-
son hjálpuðu manni sem hafði fest bíl sinn á Vallargötu.
Konudagur Mæðgurnar Kristín Hartmannsdóttir og
Edda Björk Guðnadóttir voru á leið til ömmu Eddu.
Framhaldsskóla-
kennarar ganga
til kosninga í
vikunni um nýtt
vinnumat fyrir
framhaldsskóla
en kosningin er
rafræn og er
hægt að kjósa til
hádegis á föstu-
dag. „Frá kl. níu
á mánudags-
morgni til hádegis á föstudag geta
allir félagsmenn í Félagi fram-
haldsskólakennara kosið um nýja
vinnufyrirkomulagið með rafræn-
um hætti. Niðurstaðan mun því
liggja fyrir strax að kosningu lok-
inni á föstudag,“ segir Guðríður
Arnardóttir, formaður Félags
framhaldsskólakennara.
Niðurstaðan verður fyrst kynnt
félagsmönnum og samningsaðilum
kennara áður en hún birtist í fjöl-
miðlum. „Ég býst við því að þetta
gangi hratt fyrir sig á föstudaginn
og að það líði ekki langt á milli
þess að við gerum okkar samnings-
aðilum grein fyrir niðurstöðunni og
hún verði send á fjölmiðla.“
Miklir hagsmunir í húfi
Niðurstaða kosningarinnar ræð-
ur því hvort kjarasamningur fram-
haldsskólakennara haldi og því eru
miklir hagsmunir í húfi að mati
Guðríðar. „Verði vinnumatið sam-
þykkt í kosningunum gildir áfram
kjarasamningurinn frá því í fyrra
og kennarar fá 9,3% launahækkun
í vor. Ákveði félagsmenn hins veg-
ar að fella nýja vinnumatið þá
losna kjarasamningar framhalds-
skólakennara og 9,3% launahækk-
unin fellur eðli máls samkvæmt
niður.“
Deilur hafa verið um ágæti nýja
vinnumatsins meðal framhalds-
skólakennara og hefur því verið
haldið fram að það mismuni minni
skólum og kennurum sem kenni fá-
menna áfanga. „Vinnumatið geng-
ur út á að fleiri nemendur í
kennslu taki meiri tíma. Það þýðir
að fámennir áfangar t.d. í minni
skólum úti á landi eða list- og verk-
námsáfangar með fáum nemendum
verða metnir til færri klukkutíma
en fjölmennir áfangar. Með þessu
er verið að leggja mat á hversu
mikill tími fer í yfirferð á verk-
efnum og prófum nemenda,“ segir
Guðríður.
Mikið undir
í kosningu
kennara
Kosið um nýtt
vinnumat í skólum
Guðríður
Arnardóttir