Morgunblaðið - 23.02.2015, Síða 21
21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2015
Stund milli veðurstríða Þessum gestum Hörpu þótti greinilega notalegt að skjótast þar inn í gær í veðurofsanum, kasta af sér yfirhöfnum um stund og gæða sér á góðgæti.
Styrmir Kári
Það er margt skrýt-
ið í kýrhausnum. Al-
þjóðasamningum um
þjónustuviðskipti,
TiSA (Trade in Servi-
ces Agreement) er,
samkvæmt skýrslu
Gunnars Braga
Sveinssonar, utanrík-
isráðherra, frá því í
mars á síðasta ári, ætl-
að „að fækka hindr-
unum í vegi fyrirtækja sem starfa á
vettvangi þjónustuviðskipta og auka
gagnsæi í milliríkjasamningum með
þjónustu.“ Hið mótsagnakennda er
síðan að þessum miklu samningum
um „gagnsæi“ var ætlað að fara
leynt!
Bak við lokuð tjöld
Ef ekki hefðu komið til uppljóstr-
anir Wikileaks sl. sumar, væri fátt
vitað um samningsdrögin eins og
þau hafa þróast. Vissulega var vitað
um að viðræður færu fram en að
mjög takmörkuðu leyti hafði verið
látið uppskátt um tilveru þeirra og
er reyndar enn gengið út frá því að
þau gögn sem byggt er á verði ekki
opinber fyrr en fimm árum eftir að
samningur er frágenginn!
Í júní í fyrra voru birt á vegum
Wikileaks drögin eins og þau stóðu í
apríl og fékk umheimurinn þá fyrst
nákvæmar upplýsingar um hvað var
verið að véla á bak við lokuð tjöld.
ESB gleymdi að fá umboð –
eins og fyrri daginn
Umhugsunarvert er að þegar
samningaviðræðurnar um TiSA hóf-
ust leynilega árið 2012 hafði Stjórn-
arnefnd Evrópusambandsins láðst
að fá samþykki Ráðherraráðsins og
þings Evrópusambandsins, að ekki
sé minnst á þjóðþing aðildarríkja
sambandsins. Þessu var kippt í lið-
inn með eftirá samþykki þegar
formlegar viðræður byrjuðu á árinu
2013. Þetta minnir á GATS-
viðræðurnar á sínum
tíma. Þar orkaði um-
boð innan ESB mjög
tvímælis. Mikil leynd
hvíldi yfir þeim samn-
ingum og var það ekki
fyrr en breska stór-
blaðið Guardian komst
yfir samningstexta
vorið 2002 og birti
hann, að í hámæli kom-
ust samningsmarkmið
sem einstök ríki höfðu
sett fram.
Vilja stærra athafnasvæði
Í öllum þessum samningum sem-
ur Evrópusambandið – öll aðild-
arríkin 28 – sem ein heild. Þess
vegna er ýmist talað um að 50 ríki
eigi aðild að TiSA-viðræðunum eða
23 samningsaðilar. Á meðan allt var
sæmilega öruggt undir leynd-
arhjúpi, töluðu þessir viðræðuaðilar
gáskafullt sín í milli um sjálfa sig
sem RGF ríkin. RGF er skamm-
stöfun úr ensku, Really Good Fri-
ends of Services; Vildar-þjónustu-
vinir. Gagnrýnin á Vildar-þjónustu-
vinina hefur verið á þann veg að
þjónustulund þeirra vísi til ástríkis
þeirra á fjármagnsöflum sem eins
og jafnan áður vilja fá stærri leikvöll
til að athafna sig á.
Hvaðan kemur andstaðan?
Ef þetta eru vinirnir góðu, hverjir
skyldu þá vera óvinirnir? Það verð-
ur aðeins skýrt með skírskotun til
sögu þjónustusamninga síðustu tvo
áratugina eftir að Alþjóða-
viðskiptastofnunin, World Trade
Organization, WTO, var sett á lagg-
irnar til að stuðla að markaðs-
væðingu í heimsviðskiptum á sviði
þjónustu. Þetta var árið 1995. Þá
var lokið GATT-samningalotunni
(General Agreement on Tariffs and
Trade) sem staðið hafði í nær hálfa
öld en hún laut að tollum og milli-
ríkjaviðskiptum almennt en með
GATS (General Agreement on
Trade in Services) var hafist handa
um þjónustuviðskiptin og reynt að
ná samkomulagi um að markaðs-
væða þau á heimsvísu.
Þess vegna leynilegt
Frá upphafi hefur þetta gengið
brösulega og hefur markaðsvæðing
velferðarþjónustu og annarra inn-
viða samfélagsins staðið í almenn-
ingi. Tilraunir til markaðsvæðingar
þjónustu hafa flestar endað í brot-
lendingu eftir stormasama siglingu.
Það átti til dæmis við um tilraun
OECD á tíunda áratugnum sem
gekk undir vinnuheitinu MAI
(Multilateral Agreement on Invest-
ment). Eftir mikil mótmæli gegn
einkavæðingaráformunum sem var
að finna í þessari tilraun, og urðu al-
menningi ekki ljós fyrr en eftir að
viðræður höfðu staðið í tvö ár! – var
ákveðið að hætta viðræðum. Þessi
mikla andstaða skýrir leyndina.
Þjarmað að fátækum ríkjum
Í upphafi bundu markaðssinnar
miklar vonir við GATS en eftir gríð-
arleg mótmæli gegn þeirri tilraun í
árslok árið 1999 í Seattle í Banda-
ríkjunum, var brugðið á það ráð árið
2001 að fara með viðræðurnar út í
eyðimörk Arabíuskagans, í Doha í
Quatar. Sandauðnin freistaði, því
þar var fátt um mótmælendur. Ekki
nóg með að þessi staðsetning væri
talin geta tryggt samningamönnum
frið og ró, heldur voru jafnframt
slegnir frekari varnaglar með því að
meina fulltrúum verkalýðssamtaka
og annarra almannasamtaka að
senda fleiri en einn fulltrúa á vett-
vang. Heimssamstök starfsfólks í al-
mannaþjónustu, Public Services Int-
ernational, PSI, með 20 milljón
félagsmenn fékk þannig aðeins
heimild til að senda einn fulltrúa á
vettvang. Þess má geta að þessi
samtök höfðu látið viðfangsefnið
mjög til sín taka enda sýnt að í við-
ræðum um GATS, sem þá höfðu
meira og minna farið fram á bak við
tjöldin var þjarmað mjög að fátæk-
um ríkjum að einkavæða almanna-
þjónustu sína, þar á meðal vatnið og
greiða þannig götu erlendra fjár-
festa inn að innviðum þessara sam-
félaga.
Sama markmið en ólík aðferð
Viðfangsefni GATS og TiSA er
svipað. Þannig segir um samn-
ingana á upplýsingavefjum, að TiSA
fjalli um öll þjónustuviðskipti „ frá
fjármálastarfsemi til heilbrigð-
isþjónustu“. Aðferðafræðin sem
beitt er í GATS og TiSA er hins veg-
ar ekki alls kostar hin sama. GATS
byrjaði á samþykkt grunnplaggs
sem einstök ríki gátu síðan fært
óskir sínar inn í, hvort sem það var
markaðsvæðing trygginga- eða
bankaþjónustu, ferðaþjónustu,
vatns- og orkuveitna, bókasafna,
sorphirðu eða annað. BSRB lét
þessi mál mjög til sín taka á sínum
tíma, enda málið framan af í þögn og
andvaraleysi. Var það mat samtak-
anna að viðræðurnar þyrftu hér sem
annars staðar víðtæka og opna um-
ræðu. Eftir henni var kallað af hálfu
BSRB í fjölda bréfa, samþykkta og í
greinaskrifum. Innan BSRB gerð-
um við okkur grein fyrir því að
skuldbinding af Íslands hálfu að
markaðsvæða tiltekið svið yrði ekki
afturtekin og ríkið meira að segja
skaðabótaskylt væri það reynt. Hið
sama gildir í TiSA samningunum.
Hvorki þá né nú er því um smámál
að ræða!
Almannaþjónusta og fyrirtæki
lögð að jöfnu
Til dæmis um hvað slíkar skuld-
bindingar gætu haft í för með sér
má nefna deilumál frá Frakklandi
úr MAI viðræðunum. Frakkar vildu
geta stutt menningartengdan
franskan kvikmyndaiðnað. Skuld-
binding ríkisins um skilyrðislausa
markaðsvæðingu hefði hins vegar
þýtt að óheimilt yrði að styrkja inn-
lenda menningarframleiðslu um-
fram framleiðslu á vegum banda-
rískra fyrirtækja og fyrirtækja sem
kæmu frá öðrum aðildarríkjum
samningsins. Sama gilti varðandi
bókasöfn, svo dæmi sé tekið úr um-
ræðu um GATS samningana, að
ekki sé minnst á heilbrigðisþjón-
ustuna. Þar mætti ekki mismuna í
opinberum stuðningi við þjón-
ustuþætti sem ættu í samkeppni.
Stuðningur við slíka þjónustuþætti á
Landspítalnum myndi þannig kalla
á samsvarandi stuðning við Orku-
húsið.
Hlutur Íslands ámælisverður
Það gagnrýnisverða við TiSA við-
ræðurnar er að með þeim reyna 50
ríki (af 123 sem upphaflega undirrit-
uðu GATS) að fara á bak við al-
menning og einnig þau ríki sem voru
ósátt við yfirgang ríka heimsins í
GATS-viðræðunum. Hugmyndin er
sú að þau standi frammi fyrir gerð-
um hlut með fullgerðum TiSA-
samningi, sem síðan yrði þröngvað
uppá þau við samningaborð hjá Al-
þjóðaviðskiptastofnuninni. Þessu
taka Íslendingar þátt í eða svo enn
sé vitnað í skýrslu utanríkisráðherra
frá því í mars í fyrra, þá segir þar að
vonast sé til að aðildarríki Alþjóða-
viðskiptastofnunarinnar „gerist að-
ilar að TiSA-samningnum þegar við-
ræðum er lokið“!
Hvað aðkomu Íslands að sjálfum
samningunum varðar, þá virðist far-
ið með gát og gladdi það hjarta mitt
að sjá í gögnum gerða stífa und-
anþágu hvað varðar markaðs-
væðingu grunnþátta heilbrigð-
isþjónustunnar. Þannig skil ég alla
vega málið. Þetta er að sjálfsögðu
gott en hitt er jafnslæmt að taka
þátt í siðlausu baktjaldamakki um
málefni sem á að útkljá fyrir opnum
tjöldum og á alþjóðlegu borði.
Eftir Ögmund
Jónasson » Stuðningur við slíka
þjónustuþætti á
Landspítalanum myndi
þannig kalla á samsvar-
andi stuðning við Orku-
húsið.
Ögmundur Jónasson
Höfundur er þingmaður og fyrrver-
andi formaður BSRB.
TiSA – leynisamningar um gagnsæi