Morgunblaðið - 24.02.2015, Page 1

Morgunblaðið - 24.02.2015, Page 1
Kristján Þór Júl- íusson heilbrigð- isráðherra hefur mælt fyrir frum- varpi á Alþingi um breytingu á lyfjalögum. Sam- kvæmt frumvarp- inu verður heimilt að auglýsa lausa- sölulyf, sem ekki eru lyfseðils- skyld, í sjónvarpi eins og öðrum miðlum en gildandi lög leggja bann við slíkum sjónvarpsauglýsingum. Leyft er að auglýsa lausasölulyf í sjónvarpi í mörgum grannríkjum Ís- lands. En lyfjaauglýsingar eru um- deildar, gagnrýnendur segja að kostnaðinum við þær sé einfaldlega velt út í verðlagið og þær auki lyfja- neyslu. Í umsögn Lyfjastofnunar um frumvarpið segir, að ekki séu nein ákvæði í gildandi lögum frá 1995 um auglýsingar á lausasölulyfjum á net- inu, á flettiskiltum eða í kvikmynda- húsum. Landlæknisembættið er andvígt breytingunni, hún sé óþörf og auki neyslu. En aðrir benda á að svipuð rök sé hægt að nota um fjölmargar aðrar neysluvörur sem leyft sé að auglýsa í öllum miðlum. Mikil sam- keppni sé í lyfjaiðnaði og brýnt sé að hún endurspeglist í verði á vörunni til neytenda hér á landi. Samtök at- vinnulífsins segja að neytendur fái auknar upplýsingar sem geti dregið úr þörfinni á að leita til læknis vegna smávægilegra kvilla. Álag á heil- brigðiskerfið minnki. »6 Lyf auglýst í sjónvarpi?  Umdeilt frumvarp ráðherra til umfjöllunar á Alþingi Kristján Þór Júlíusson Þ R I Ð J U D A G U R 2 4. F E B R Ú A R 2 0 1 5 Stofnað 1913  46. tölublað  103. árgangur  HVERJIR VERÐA BÍLAR ÁRSINS 2015? FJÖLSKYLDA Í PÍTSUM MÁLTÆKNI- LAUSNIR OG TALGREINIR ELDOFNINN Í FOSSVOGINUM 18 ALMANNARÓMUR 10BÍLAR Spilliefni losuð » Heilbrigðiseftirlit Hafnar- fjarðar og Kópavogssvæðis tel- ur að alvarlegt umhverfisslys hafi átt sér stað. » Telja að spilliefnin hafi verið losuð frá einhverri starfsemi. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis hefur tilkynnt Um- hverfisstofnun um „alvarlegt um- hverfisslys“ vegna spilliefna sem los- uð voru í hluta fráveitukerfis Kópavogsbæjar. Að sögn Guðmund- ar H. Einarssonar, framkvæmda- stjóra eftirlitsins, uppgötvaðist mál- ið eftir að íbúar hringdu til bæjar- yfirvalda í Kópavogi og kvörtuðu undan spilliefna- eða bensínlykt. Að auki fundu starfsmenn á vegum bæj- arins megna spilliefnalykt í einni af dælustöð bæjarins. Um einangrað atvik sé að ræða og ekki hefur orðið vart við mengunina síðan 27. janúar þegar tilkynnt var um hana. Ekki tókst að mæla mengunina áður en hún fór til sjávar en miðað við fregn- ir af ólyktinni virðist hafa verið um mikið magn að ræða. Tilgátan sem unnið er út frá er sú að um hafi verið að ræða losun frá einhverri starf- semi. „Við höfum engan sökudólg sem stendur,“ segir Guðmundur. Hann segir að spilliefnalykt hafi tek- ið á móti starfsmönnum Kópavogs- bæjar þegar þeir fóru inn í skólp- dælustöð við Sunnubraut. Það gefi til kynna að ekki hafi verið um neitt „bílskúrsslys“ að ræða. Alvarlegt umhverfisslys  Mikið magn spilliefna var losað í fráveitukerfi Kópavogsbæjar  Efnin líklega frá einhverri starfsemi  Ekki hefur orðið vart við mengun síðan 27. janúar MSpilliefni í fráveitukerfinu »13 Skólastúlkur úr Breiðagerðisskóla skottuðust í gær heim eftir fyrsta skóladag eftir vetrar- frí. Brosið var ekki langt undan enda gaman að koma á ný í skólann og segja frá þeim æv- intýrunum sem áttu sér stað í þessu örfríi. Bú- ast má við norðaustan 8-15 metrum á sekúndu í dag og víða verður snjókoma eða él, en yfirleitt þurrt sunnantil á landinu. Frostið verður 0 til 8 stig. Gengið heim eftir skóladag Morgunblaðið/Árni Sæberg Skóli hófst að nýju á höfuðborgarsvæðinu eftir vetrarfrí  Bréfberi í Bústaðahverfinu í Reykjavík hefur tíu sinnum verið bitinn til blóðs af hundum við út- burð. „Vaxandi hundaeign er hvim- leitt vandamál,“ segir Sigríður A. Sigurðardóttir sem borið hefur út póst í hverfinu í áratug. Hún segir að stundum séu hundarnir lausir heima við hús eða lausbundnir og geti þá glefsað í fólk. Rætt er við Sigríði í umfjöllun um Háaleitis- og Bústaðahverfi í greinaflokknum Heimsókn á höfuðborgarsvæðið í blaðinu í dag. Sagt er frá verkefnum sem kosið er um í íbúakosningunum í borgar- hlutanum í dag. Þá er rætt við fjöl- skyldu sem rekur vinsælan pítsu- stað í Grímsbæ í Fossvogi. »18-19 Bréfberi blóðbitinn tíu sinnum Leiguverð á íbúðarhúsnæði á Akur- eyri er byrjað að stíga og eru vísbend- ingar um að eftirspurn ferðamanna eftir íbúðum eigi þátt í því. Auður Kristinsdóttir, löggiltur leigumiðlari hjá Fasteignasölunni Bæ, leiðir líkur að því að útleiga á húsnæði til ferðamanna á Akureyri eigi þátt í töluverðri hækkun leiguverðs á síð- ustu misserum. Þjóðskrá Íslands heldur utan um þróun leiguverðs. Úr tölum hennar má lesa að húsa- leiga á tveggja herbergja íbúðum hækkaði um að meðaltali 7,2% milli ára 2013 og 2014. Árshækkunin á þriggja herbergja íbúðum var 9,9% og 5,3% í 4-5 herbergja íbúðum. Umreiknað í krónur hefur leiga á 75 fermetra tveggja herbergja íbúð á Ak- ureyri hækkað um 7.900 kr. á mánuði og leigan á 100 fermetra þriggja her- bergja íbúð um 6.800 kr. Loks hefur leiga á dæmigerðri 125 fermetra og 4-5 herbergja íbúð hækkað um 7.600 kr. á tímabilinu. Hefur þetta í för með sér að húsaleigan hækkar um 82-95 þúsund krónur á ári. »6 Ferðafólk ýtir undir leiguverð á Akureyri  Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæð- inu, segir að tveimur hælisleit- endum, sem krafist var að sættu gæsluvarðhaldi, verði gert að dvelja á afmörkuðu svæði og þeim gert að tilkynna sig til lögreglu. Um er að ræða úrræði sem finna má í lögum um útlendinga. Hæsti- réttur staðfesti í gær úrskurð Hér- aðsdóms Reykjavíkur þess efnis að hafna beri kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að hæl- isleitendurnir sæti gæsluvarðhaldi. Í greinargerð lögreglu kemur fram að mennirnir, sem eru eft- irlýstir, hafi verið í miklu ójafnvægi síðan þeir komu til landsins og hafi sýnt af sér hegðun sem gefi til kynna að af þeim stafi hætta og að talin sé hætta á því að þeir kunni að grípa til ofbeldis. »2 Morgunblaðið/Eggert Lögreglustjóri Sigríður Björk Guðjóns- dóttir segir mennina undir eftirliti lögreglu. Eftirlýstum mönn- um gert að halda sig á afmörkuðu svæði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.