Morgunblaðið - 26.02.2015, Page 1
F I M M T U D A G U R 2 6. F E B R Ú A R 2 0 1 5
Stofnað 1913 48. tölublað 103. árgangur
VINNUVÉLAR
OG TÆKI FRÁ
ÝMSUM HLIÐUM
GJALD
FYRIR HÁAR
INNISTÆÐUR
DJASS- OG
RAFSKOTIN
TÓNLISTARHÁTÍÐ
VIÐSKIPTAMOGGINN BERLIN X REYKJAVÍK 3824 SÍÐNA SÉRBLAÐ
Töluverðar breytingar hafa orðið
á síðustu árum á samsetningu
stjórna þeirra 13 íslensku fyrir-
tækja sem skráð eru í Kauphöllina.
Lög um kynjakvóta í stjórnum hafa
haft áhrif en þó skipa konur aðeins
43% sætanna við stjórnarborðin.
Konur eru í meirihluta í fjórum
stjórnum af þrettán og af þeim sjö
einstaklingum sem sitja í fleiri en
einni stjórn eru fimm þeirra konur.
Þá eru stjórnarlaunin í fyrirtækj-
unum mishá og munar 374% á laun-
um hæstlaunaða stjórnarformanns-
ins og þess sem minnst fær greitt.
Fastar greiðslur til stjórnarmann-
anna 67 nema 264 milljónum króna
á ársgrundvelli. Þær eru þó tölu-
vert hærri vegna aukagreiðslna
ýmiss konar sem tengjast störfum
stjórnanna. »Viðskipti
Karlar skipa tæp
57% stjórnarsæta
í Kauphöllinni
Veðja á Hafnarfjörð
» Fjárfestar eru byrjaðir að
innrétta 68 herbergja hótel í
Vallahverfinu í Hafnarfirði.
» Þeir sjá mikil tækifæri í
æfingaferðum erlendra
íþróttamanna til Íslands.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vísbendingar eru um að vöxtur
ferðaþjónustunnar sé að baki nær
allri fjölgun starfandi fólks í fyrra.
Þannig fjölgaði fólki sem starfar
við ferðaþjónustu og tengdar grein-
ar um 2.700 í fyrra. Til samanburðar
fjölgaði starfandi þá um 2.800.
Þetta kemur fram í greiningu
Ólafs Más Sigurðssonar, sérfræð-
ings hjá Hagstofu Íslands, sem gerð
var að beiðni Morgunblaðsins.
Vöxtur ferðaþjónustunnar kemur
ef til vill skýrast fram í því að um 12
þúsund manns störfuðu við rekstur
gististaða og veitingarekstur í árslok
2014 og var greinin þá orðin sú
fimmta mannaflsfrekasta á landinu.
Var hún til dæmis orðin fjölmenn-
ari en byggingargeirinn en um
10.900 manns störfuðu í þeirri grein.
Starfandi í janúar sl. voru 182.100
og höfðu þá aldrei verið jafn margir í
mánuðinum. Að sögn Ólafs Más er
atvinnuþátttakan að nálgast meðal-
talið á öldinni. Í janúar hafi atvinnu-
þátttakan verið 81,5%. Til saman-
burðar sé meðaltal allra mánaða frá
árinu 2003 – þegar Hagstofan hóf að
mæla alla mánuði ársins – 81,7% at-
vinnuþátttaka. Atvinnuleysið er hins
vegar meira en á þensluárunum.
Ferðaþjónusta knýr vöxt
Án vaxtar ferðaþjónustugreina hefði starfandi fólki líklega ekki fjölgað í fyrra
Fleiri vinna orðið við gistiþjónustu og veitingarekstur en í byggingarstarfsemi
MFerðagreinin vex hratt »6 og 14
Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir
að nauðsynlegt sé að opinská umræða
fari fram í þjóðfélaginu um það mat
greiningardeildar Ríkislögreglu-
stjóra að hryðjuverkaógn hafi aukist
hér á landi og að hættustig vegna
hryðjuverkaárása hafi verið fært upp
um eitt stig í nýju hættumati og sé nú
í meðallagi.
Ólöf sagði í gær að ekki væri tíma-
bært að tjá sig efnislega um tillögur
Ríkislögreglustjóra um að hugað
verði að lagasetningu um auknar
rannsóknarheimildir lögreglu vegna
rannsókna brota er beinast gegn
stjórnskipan rík-
isins og æðstu
stjórn. „Mér
finnst eðlilegt, eft-
ir að þessi skýrsla
greiningardeildar
er komin fram, að
við ræðum efnis-
atriði hennar og
tillögur opinskátt.
Það er mikilvægt
að við getum rætt með opnum huga
öryggismál landsins og þær heimildir
sem lögreglan þarf að hafa til þess að
viðhalda öryggi hér í landinu. Innan-
ríkisráðuneytið mun leggja sitt af
mörkum til þess að slík umræða fari
fram. Ég held að það sé eina leiðin til
þess að ná árangri,“ sagði Ólöf.
„Hvað varðar þá þörf á auknum
rannsóknarheimildum sem greining-
ardeild Ríkislögreglustjóra telur að
sé fyrir hendi, þá er það eitthvað sem
mér finnst koma til greina. Það
þyrfti að sjálfsögðu að skoða vel
hvernig það væri útfært og hvernig
eftirliti með beitingu slíkra heimilda
væri háttað,“ segir Gunnar Bragi
Sveinsson utanríkisráðherra.
agnes@mbl.is »4 og 12
Umræðan þarf að vera opin
Ráðuneytið mun leggja sitt af mörkum, segir Ólöf Nordal
Ólöf Nordal
Stórir pollar mynduðust víða á götum höfuð-
borgarinnar þegar hlýnaði og hlánaði í gær. Hit-
inn komst í 3,1°C klukkan 18.00. Þá gerði slyddu
sem bættist við krapaelginn. Borgarstarfsmenn
brutu klaka og hreinsuðu frá niðurföllum til að
veita burt vatni. Í dag er spáð hita um frostmark
á höfuðborgarsvæðinu, suðvestan og síðan
breytilegri átt 8-15 m/s en norðvestan 13-20 m/s
og éljagangi seinnipartinn.
Mikill vatnselgur þegar hlánaði í höfuðborginni
Morgunblaðið/Golli
Hugmyndir borgaryfirvalda um
að þrengja að bílaumferð um
Grensásveg eru óskiljanlegar.
Þetta segir Atli Rúnar Halldórsson,
íbúi í Fossvogshverfi. Eðlilegra
væri að nota peninga borgarsjóðs
til að fylla í holur á götum borg-
arinnar. Fjallað er um fyrirhug-
aðar framkvæmdir á Grensásvegi í
greinaflokknum Heimsókn á höf-
uðborgarsvæðið í blaðinu í dag.
Í heimsókninni í Háaleitis- og Bú-
staðahverfi er að auki m.a. sagt frá
tilurð Smáíbúðahverfisins, þar sem
framtak einstaklinga naut sín til
fullnustu, rætt um framtíð Land-
spítalabyggingarinnar í Fossvogi
og áform um nýbyggingar. »18
Þrenging Grensás-
vegar óskiljanleg
Spáð er sterkum vindstreng á Vest-
fjarðakjálkanum í dag og líklega
nær hann inn á Snæfellsnes einnig,
að sögn veðurfræðings á Veðurstofu
Íslands. Gert er ráð fyrir hríðarveðri
á Vestfjörðum. Ekkert ferðaveður
verður því þar í dag og ekki fyrr en
síðdegis á Snæfellsnesi. Gert var ráð
fyrir að veðrið gengi niður á Vest-
fjörðum í kvöld.
Bakvakt var hjá snjóflóðaeftirliti
Veðurstofunnar í nótt og fylgst
grannt með ástandi mála. Vitað var
að töluverð snjóflóðahætta var til
fjalla á norðanverðum Vestfjörðum.
Í gærkvöld var ekki talin vera snjó-
flóðahætta í byggð á norðanverðum
Vestfjörðum.
Súðavíkurhlíð var lokuð í nótt
vegna snjóflóðahættu. Meta átti
stöðuna þar nú í morgun. »2
Óveður á
Vestfjörð-
um í dag
Fylgst grannt með