Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2015, Blaðsíða 21
Disney-garðurinn í Anaheim í Kali-
forníu var byggður árið 1955 undir
stjórn og leiðsögn Walt Disney.
Herra Disney fékk hugmyndina að
byggja stóran skemmtigarð í kring-
um teiknimyndasköpun sína eftir
að hafa boðið dætrum sínum í
Grittith Park í Los Angeles í kring-
um árið 1935. Frá því að garðurinn
var opnaður hefur hann gengist
undir miklar breytingar og stöðuga
endurnýjun og viðgerðir. Í dag sam-
anstendur Disneyland af átta
þemagörðum sem allir hafa sitt
sérsvið.
Það sem ef til vill fáir vita en þyk-
ir afar falleg saga er að þegar Disn-
eyland opnaði hafði Walt Disney
skrifstofu sína í Disney-garðinum.
Þegar hann þurfti að vinna fram-
eftir vissi starfsfólk garðsins ávallt
af því vegna lítils ljóss í glugga skrif-
stofunnar. Eftir að herra Disney
lést var ákveðið að halda ljósinu
logandi öll kvöld, svo að enn virðist
sem hann sé að vinna á kvöldin.
Fram að árinu 1982 var aðeins
hægt að kaupa miða fyrir hóp í
garðinn en síðan var því breytt í
stakan miða. Verðið á miða hefur
hins vegar hækkað töluvert frá
árinu 1982 þegar miðinn kostaði
12 dollara sem í dag væru tæpar
1.600 íslenskar krónur. En í dag
kostar miðinn í kringum 100 doll-
ara sem er rúmlega 13.000 krónur.
Meðalverð á dagspassa:
$99 eða 12.700 kr. fyrir 10 ára og
eldri
$87 eða 11.600 kr. fyrir 3-9 ára
Frítt fyrir 3 og yngri
WALT DISNEY SJÁLFUR BYGGÐI FYRSTA GARÐINN
KALIFORNÍA
Ó
hætt er að segja að
það sé líklega draum-
ur flestra fjölskyldna
að heimsækja paradís
allra helstu teiknimyndapersóna í
heimi, Disney World.
Faðir Disney og höfundur Mikka
mús og félaga, Walter E. Disney,
opnaði fyrsta skemmtigarðinn í
Kaliforníu í Bandaríkjunum 18. júlí
árið 1955 og hótel fyrir gesti
garðsins var svo opnað um haustið
sama ár. Faðir Disney lést árið
1966 en hjarta hans hélt áfram að
stækka og breiða úr sér og í dag
eru garðarnir orðnir fimm um víða
veröld en verða brátt sex.
Árið 1971 var annar Disney-
garður opnaður í grennd við Or-
lando eða í Lake Buena Vista í
Florida sem er sá allra stærsti í
dag eða rúmlega 10.000 hektarar
að stærð. Þriðji Disney-garðurinn
var opnaður í Tókýó árið 1983 og
sá fjórði í París árið 1992. Þá opn-
aði Disney fimmta skemmtigarðinn
í Hong Kong árið 2005 og um
þessar mundir er verið að byggja
Disney-garð í Shanghai í Kína sem
er áætlað að verði opnaður árið
2016.
Hér verður fjallað um þrjá
stærstu Disney-garðana, þessa tvo
í Bandaríkjunum og þann í París
en algengara er að Íslendingar
geri sér fremur ferð þangað heldur
en alla leið til Asíu.
Verðmunur er á görðunum og
einnig getur verðmunur verið mis-
munandi eftir árstíð, en það er
nokkuð ljóst að miðinn er ekki
beinlínis gefins. Það huggar þó að
minningar eftir svona frí í faðmi
fjölskyldunnar eru góðar og lifa
lengi, bæði í hjörtum barnanna og
foreldranna.
DRAUMAFRÍ FJÖLSKYLDUNNAR
Veröld Walt
Disney
ÞRÍR STÆRSTU SKEMMTIGARÐAR DISNEY ERU STAÐSETTIR
Í BANDARÍKJUNUM OG EVRÓPU. AÐGANGSMIÐAR Í
GARÐANA ERU SÍÐUR EN SVO ÓDÝRIR EN ÞÓ ER MIS-
JAFNT EFTIR GÖRÐUM HVAÐ KOSTAR. EF FJÖLSKYLDAN ER
Í DISNEY-HUGLEIÐINGUM ER SNJALLT AÐ FINNA ÚT HVERT
ER HAGSTÆÐAST AÐ FARA Á HVERJUM TÍMA.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
SVÆÐIÐ YFIR 10.000 HEKTARAR AÐ STÆRÐ
Stærsti Disney-garðurinn er staðsettur í Lake Buena Vista í Florida,
rétt utan við Orlando og heitir Disney World. Svæðið er rúmlega
10.100 hektarar að stærð og á því svæði eru 34 dvalarstaðir og hót-
el en 28 þeirra eru í eigu Walt Disney. Disney World í Lake Buena
Vista skiptist í fimm garða, Magic Kingdom, sem er elsti og svona
aðalgarðurinn, Epcot, Animal Kingdom og Disney’s Hollywood
Studios. Þá eru tveir vatnsrennibrautagarðar og fjórir golfvellir.
Þegar Disneygarðurinn í Lake Buena Vista var byggður var hug-
myndin sú að gera svæðið að sjálfstæðu fyrirmyndarsamfélagi með
um 20.000 íbúum, verslunum og skrifstofum. Upprunalegu heimilin
urðu hins vegar að hótelum.
Þegar gengið er inn í Magic Kingdom blasir við stór kastali og er
það kastalinn úr ævintýrinu um Öskubusku. Aðeins er hægt að
ganga í gegnum kastalann, eins og stór undirgöng, en ekki fara inn í
hann. Það sem fáir vita hins vegar er að inni í kastalanum er hótel-
svíta. Svítuna getur enginn bókað og er aðeins notuð í sjaldgæfum
tilvikum eins og í kynningarherferðum.
Meðalverð á dagspassa:
$105 eða 14.000 kr. fyrir 10 ára og eldri
$99 eða 13.200 kr. fyrir 3-9 ára
Frítt fyrir 3 ára og yngri
Stytta af Walt Disney sem
leiðir uppgötvun sína, Mikka
mús, stendur á torginu fram-
an við kastala Öskubusku.
FLORIDA
Mjallhvít og Álfur, einn af dvergunum sjö,
mæta gestum hress og kát.
1.3. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Sýningarsalur í Skipholti 35 • Seljabót 7, Grindavík • www.pgv.is • Sími 510 9700
Veldu viðhaldsfrítt
PVC gluggar og hurðir -
íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar
Nýjung - viðhaldsfrítt þakkantsefni PVC gluggar og hurðir
PGV Framtíðarform er stöðugt að leita að nýjung-
um sem gætu hentað erfiðum veðurskilyrðum hér
á landi. Viðhaldsfría þakkantsefnið hefur hlotið
frábærar viðtökur og greinilegt að mikil þörf eru á
slíkri nýjung.
Barnalæsing - Mikil einangrun
CE vottuð framleiðsla - Sérsmíði eftir málum
Glerjað að innan - Áratuga ending - Næturöndun