Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2015, Blaðsíða 51
einn af milljón en ég er bara einn af þrjú
hundruð þúsundum. Ég biðst forláts.“
Það er ekki bara landið sem er öðruvísi,
menningin er líka allrar athygli verð, að áliti
Caitlin. „Ég vissi ekkert um menningu þjóð-
arinnar og það hefur verið mjög gaman að
kynnast henni. Ísland býr að frábærum
sendiherrum í tónlistarfólki eins og Sigur
Rós og Björk sem hafa mikla sérstöðu. Þá
nýtur Iceland Airwaves-hátíðin vaxandi hylli
víða um heim. Að mínu viti speglar þetta
tónlistarfólk þjóðina mjög vel.“
Þetta er fjórða heimsókn Caitlin til Ís-
lands og landið hefur heillað hana upp úr
skónum. „Það er engin tilviljun að ég vildi
gifta mig hér. Ég elska Ísland. Fjölskyldan
kom í brúðkaupið í fyrrasumar og féll líka í
stafi. Erlingur keyrði okkur vítt og breitt
um landið og þau áttu ekki orð.“
Sjálfum sér samkvæmir
Erlingur segir það hafa verið mjög skemmti-
lega upplifun. „Þau höfðu ekki hugmynd um
á hverju var von og það var frábært að
fylgjast með svipbrigðum þeirra meðan þau
upplifðu landið.“
Erlingur Erlingsson og Caitlin Hayden störf-
uðu á sama tíma í Afganistan fyrir nokkrum
árum en hittust aldrei. „Það myndi ég muna,“
segir hún, „hann er svo hávaxinn.“
Morgunblaðið/RAX
1.3. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Forsetakosningar fara fram í Banda-ríkjunum haustið 2016, eftir ríflegaeitt og hálft ár. Caitlin segir eng-
um blöðum um það að fletta að baráttan
sé hafin og stutt í að helstu frambjóð-
endur gefi formlega kost á sér.
„Það er útilokað að spá fyrir um þess-
ar kosningar. Vika er langur tími í póli-
tík, hvað þá hálft annað ár. Hver hefði
búist við því ári fyrr að Barack Obama
myndi fara með sigur af hólmi 2008?“
segir Caitlin.
Hún segir mest um það rætt í Wash-
ington þessa dagana hver frambjóðandi
Repúblíkanaflokksins verði. „Sveiflur
hafa verið miklar og ómögulegt að átta
sig á því hverjir koma helst til greina.
Það er einn í dag og annar á morgun.“
Demókratamegin segir Caitlin alla bíða
eftir að Hillary Clinton staðfesti fram-
boð. „Menn eiga ekki von á öðru en að
hún fari fram, spurningin er hvort ein-
hver fer gegn henni. Hvort það er heppi-
legt, að enginn fari gegn henni, er svo
önnur saga. Það breytir samt ekki því að
menn ganga út frá því að hún verði
frambjóðandi flokksins í kosningunum.
Clinton rak góða baráttu síðast og ætti
að geta byggt á því.“
Aldurinn engin fyrirstaða
Caitlin hlakkar til spennandi baráttu og
hvort frambjóðandi repúblíkana verði
þess umkominn að veita Clinton viðnám.
„Ég veit að margir þrá að Hillary Clin-
ton verði fyrsti kvenforseti Bandaríkj-
anna en því fer fjarri að það sé borð-
leggjandi. Margt á eftir að gerast og
fróðlegt verður að sjá hvaða málefni
frambjóðendurnir setja á oddinn.“
Clinton verður orðin 69 ára þegar
kosningarnar fara fram en Caitlin telur
aldurinn ekki munu vinna gegn henni.
Fordæmi eru fyrir slíku en Ronald Reag-
an var líka 69 ára þegar hann sór emb-
ættiseið 1981. „Hún virkar í góðu formi
og ég á síður von á því að kjósendur
setji aldurinn fyrir sig. Annað nafn sem
reglulega er nefnt til sögunnar er Joe
Biden varaforseti og hann er orðinn 72
ára.“
Erlingur telur Clinton líklegasta til að
verða næsta forseta Bandaríkjanna. „Að
minni hyggju getur enginn sigrað
Hillary Clinton nema Hillary Clinton
sjálf. Hún lenti í smávægilegum hrakn-
ingum í baráttunni 2008 en hennar fólk
hefur örugglega lært af reynslunni. Það
hefði gríðarlega þýðingu fyrir Bandarík-
in yrði kona kjörin forseti.“
Hillary Clinton sigurstranglegust