Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.02.2015, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2015
FRAMKVÆMDASTJÓRI SÖLU- OG ÞJÓNUSTUFÉLAGS
SKAGINN.COM • 3XTECHNOLOGY.COM
Óskað er eftir kröftugum framkvæmdastjóra til að leiða Skagann 3X ehf., nýtt félag markaðs-, sölu- og þjónustustarfs Skagans hf., Þorgeirs & Ellerts
hf. og 3X Technology ehf. Fyrirtækin framleiða og selja sérsniðnar hátæknilausnir fyrir matvælaiðnað á alþjóðamarkaði og er viðskiptavini þeirra að
finna víðsvegar um heiminn. Tæknistig félaganna er hátt en þar vinna samtals um 150 manns í þremur starfsstöðvum sem eru um 10.000 fermetrar að
stærð. Félögin hafa vaxið umtalsvert síðustu misseri en frumkvöðlaandinn hefur viðhaldist allt frá fyrsta degi. Áhersla er enn sem fyrr lögð á að bjóða
gæðavörur og ryðja braut nýjunga og nýrrar tækni sem færir viðskiptavinum verulegan fjárhagslegan ávinning. Skaginn 3X ehf. mun sjá um að
samræma sölu og þjónustu félaganna.
Leitað er að einstaklingi með víðtæka menntun ásamt reynslu í uppbyggingu sölu- og markaðsstarfs á heimsvísu. Bæði er um að ræða beina sölu
sem og í gegnum net umboðs- og samstarfsaðila. Skaginn 3X ehf. verður með starfsstöð í Íslenska sjávarklasanum í Reykjavík, Skaganum á Akranesi
og 3X Technology á Ísafirði. Hjá Skaganum 3X munu starfa um 20 reyndir viðskipta- og tæknisinnaðir starfsmenn. Félagið tekur jafnframt við allri
starfsemi félaganna á erlendum mörkuðum.
Nánari upplýsingar, umsóknir og ferilskrá sendist til: atvinna@skaginn.is
Umsóknarfrestur er til og með 1.03.2015.
HELSTU VERKEFNI:
• Samþætting og efling sameiginlegs markaðs-, ráðgjafa-,
sölu- og þjónustustarfs félaganna.
• Kynna félagið og stækka markað á alþjóðavettvangi.
• Nýta sem best fjármagn til markaðs-, sýninga- og sölustarfs.
• Efla samstarf við tækjaframleiðendur sem falla
að vöruframboði félagsins.
HÆFNISKRÖFUR:
• Lausnamiðaður hugsunarháttur og hæfileikar til að mæta
þörfum viðskiptavina.
• Reynsla í sölu- og markaðsstarfi á erlendum mörkuðum er skilyrði.
• Hugmyndaauðgi og áræðni auk mikils frumkvæðis í starfi.
• Leiðtogahæfileikar og geta til að skipuleggja og stjórna verkefnum.
• Reynsla af stjórnun og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Góð tungumálakunnátta er skilyrði.
HBGrandi óskar eftir að ráða skipaeftirlitsmann til starfa á botnfisksvið félagsins.
Sviðið ber ábyrgð á útgerð þriggja frystitogara og fjögurra ísfisktogara.
SKIPAEFTIRLITSMAÐUR
• Í starfi skipaeftirlitsmanns felst
m.a. ábyrgð á viðhaldi togara fyrir-
tækisins og umsjón með innkaupum
á vörum og þjónustu. Starfsstöð er
á aðalskrifstofum fyrirtækisins við
Norðurgarð í Reykjavík.
• Gerð er krafa um menntun sem
vélfræðingur eða sambærilega
menntun sem nýtist í starfi. Kostur er
að hafa starfsreynslu sem vélstjóri.
• Starfsmaðurinn sem við leitum að býr
yfir góðum skipulags- og samskipta-
hæfileikum. Viðkomandi þarf að geta
unnið undir álagi, vera árangursdrifinn í
starfi og fær í helstu tölvuforritum.
• Nánari upplýsingar veitir Elva Jóna
Gylfadóttir starfsþróunarstjóri í
síma 550 1024 eða með tölvupósti
elva@hbgrandi.is.
HBGrandi hf.veiðir,vinnur
ogmarkaðsseturbotnfisk
og uppsjávarfisk. Félagið
gerir út tíu fiskiskip og
vinnur fiskafurðir á sjó, í
Reykjavík, á Akranesi og
á Vopnafirði. Hjá félaginu
starfa um 950 manns til
sjós og lands.
Umsóknir skal senda á póstfangið starf@hbgrandi.is og er umsóknarfrestur til 2. mars 2015
!
"
# $$
%
&
' () * + % , -
./0
' 01
* +
23.45)6( ' *#
' 68
45)94 )94
:;;< ( $$%
"
$
"
= /
="
=
Hugbúnaðarsnill ingur
óskast.. .
>
"
%
=
? %
"
@
& @
A
"
&
"
/