Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Síða 1
ATVINNA
SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2015
Að vera á góðum bát með fínum
mannskap og fiska vel. Þetta er í
mínum huga bókstaflega lífið
sjálft.
Oddur Örvar Brynjarsson,
matsveinn á Steinunni
SH í Ólafsvík.
DRAUMASTARFIÐ
SUMARSTÖRF 2015
Vatnajökulsþjóðgarður óskar eftir að ráða fólk í fjölbreytt sumarstörf.
Um er að ræða landvörslu, upplýsingagjöf, afgreiðslu, umsjón tjaldsvæða,
ræstingar, vaktstjórn í veitingasölu og almenn verkamannastörf.
• Skaftafell: Landvarsla og upplýsingagjöf,
umsjón tjaldsvæðis, ræstingar, afgreiðsla í verslun
og veitingasölu, vaktstjórar í veitingasölu.
• Lónsöræfi: Landvörður.
• Höfn í Hornafirði: Landverðir og starfsfólk í
upplýsingagjöf og afgreiðslu.
• Jökulsárgljúfur: Landverðir, starfsfólk í
upplýsingagjöf og afgreiðslu, í ræstingar og
í almenn störf.
• Askja og Ódáðahraun: Landverðir.
• Snæfellsstofa á Skriðuklaustri: Landverðir,
starfsfólk í upplýsingagjöf, afgreiðslu og ræstingar.
• Snæfell, Kverkfjöll og Hvannalindir:
Landverðir.
• Kirkjubæjarklaustur: Landvörður og starfsfólk
í upplýsingagjöf.
• Hólaskjól, Nýidalur og Lakagígar: Landverðir.
Ofangreind störf eru flest á tímabilinu frá byrjun júní til
loka ágúst. Nokkur störf eru þó til lengri (maí – september)
eða skemmri (júlí – ágúst) tíma. Laun eru greidd samkvæmt
kjarasamningi fjármálaráðherra og Starfsgreinasambands
Íslands. Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um.
Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs.
Umsóknarfrestur er til og með 9. mars n.k. og skulu umsóknir sendar á netfangið: umsoknir@vjp.is
eða í pósti merktum: Vatnajökulsþjóðgarður, Klapparstíg 25-27, 101 Reykjavík.
PO
RT
hö
nn
un
Umsækjendur um landvarðastörf skulu hafa lokið
landvarðanámskeiði, eða búa yfir sértækri reynslu
sem nýtist í starfi. Ítarlegri upplýsingar um störfin,
hæfniskröfur og aðbúnað starfsmanna má finna á
heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs;www.vjp.is
og hjá þjóðgarðsvörðum á viðkomandi svæðum.
Alhliða pípulagnir sf.
Pípulagningamenn
Okkur vantar vana pípulagnamenn í vinnu.
Helst menn á miðjum aldri með reynslu
í nýlögnum. Unnið í mælingu.
Umsóknir sendar í rafpósti
pipulagnir@alhlida.is
Upplýsingar í síma 5667001 á skrifstofutíma.
Óskum eftir að ráða
smiði og rafvirkja
einnig starfsmenn og undirverktaka í
utanhúsklæðningu.
Áhugasamir hafi samband við skrifstofu
okkar í síma 414 2400 eða
verktaki@verktaki.is
Sumarafleysingar á
Sjúkrahúsinu á Akureyri
Viltu vinna áhugaverð og gefandi störf í
sumar með frábæru samstarfsfólki?
Sjúkrahúsið á Akureyri vantar fleira gott
fólk í hópinn í sumar.
Okkur vantar: Ljósmæður, hjúkrunarfræðinga,
sjúkraliða, geislafræðinga, lífeindafræðinga,
móttökuritara, aðstoðarmenn og starfsmenn
í ræstingu á ýmsar deildir.
Umsóknum skal skilað á umsóknareyðublaði
sem fæst á vef sjúkrahússins www.fsa.is til
Elsu B. Friðfinnsdóttur, mannauðsstjóra.
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um nám
og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfs-
leyfi þar sem við á.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru:
ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttis-
stefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnu-
staður.
JibbyByggir
Óskum eftir aðila til að sjá um kynningar, sölu
og uppsetningu á JibbyByggir - gæðakerfi fyrir
fagaðila í mannvirkjagerð sem gert er í hinu
nýja íslenska umhverfi www.jibby.com.
Fimm þúsund iðnmeistarar, byggingastjórar
og hönnuðir munu þurfa gæðakerfi skv. nýrri
reglugerð frá 1. janúar 2015.
Áhugasamir sendi á jibbybyggir@gmail.com
Óskum eftir málmiðnaðarmanni með réttindi til ál- og
stálsuðu.
Fjölbreytt starf sem felst m.a. í framleiðslu á áltröppum,
stigum, lagfæringum á leiguvörum, aðstoð við afgreiðslu
og fleira.
Aðrar hæfniskröfur: Almenn ökuréttindi, þokkaleg tölvu-
kunnátta (excel, word), lyftararéttindi.
Við leitum að starfskrafti sem er stundvís, heiðarlegur, með
góða íslenskukunnáttu, færni í mannlegum samskiptum og
góðan húmor.
Málmiðnaðarmaður
óskast í framtíðarstarf
Umsóknir í tölvupósti til kvarnir@kvarnir.is eða í síma 564 6070
Starfskraftur óskast í afgreiðslu- og lagerstörf.
Fjölbreytt starf, afgreiðsla á léttum álvinnupöllum, smáum
byggingavörum, reikningagerð og ýmislegt fleira tilfallandi.
Konur, við hvetjum ykkur til að sækja um líka.
Hæfniskröfur: Almenn ökuréttindi, þokkaleg tölvukunnátta
(excel, word). Lyftararéttindi væru til bóta, en ekki gerð
krafa um þau.
Við leitum að starfskrafti sem er stundvís, heiðarlegur, fær
í mannlegum samskiptum, með góða íslenskukunnáttu og
góðan húmor.
Starfskraftur í afgreiðslu
framtíðarstarf
Umsóknir í tölvupósti til kvarnir@kvarnir.is eða í síma 564 6070
MÓTTÖKUSTJÓRI MAZDA OG CITROËN
Vegna aukinna umsvifa leitum við að móttökustjóra
í þjónustumóttöku Mazda og Citroën.
Kynntu þér starfið nánar og sæktu um í dag á www.brimborg.is
Umsóknarfrestur er til 6. mars 2015.