Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2015, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. MARS 2015
Staða yfirlæknis
við lyflækningadeild Heilbrigðis-
stofnunar Vesturlands, Akranesi
Staða yfirlæknis við lyflækningadeild
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Akranesi,
er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. júní
2015. Umsækjandi þarf að hafa íslensk
sérfræðiréttindi í almennum lyflækningum.
Þá er viðurkenning í einhverri af undir-
greinum klínískra lyflækninga æskileg.
Reynsla eða menntun á sviði stjórnunar er
áskilin. Starfinu fylgir vaktskylda við
lyflækningadeild, vinna við göngudeild,
þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og
starfsþjálfun aðstoðar- og deildarlækna.
Umsókn skulu fylgja ítarlegar upplýsingar
um nám, starfsferil, rannsóknir og kennslu-
störf. Laun eru samkvæmt kjarasamningi
Læknafélags Íslands og ríkisins. Við ráðning-
ar í störf á HVE er tekið mið af jafnréttis-
stefnu stofnunarinnar. Nánari upplýsingar
veitir Þórir Bergmundsson framkvæmda-
stjóri lækninga, sími 4321000, thorir.berg-
mundsson@hve.is. Umsókn sendist forstjóra
HVE, Guðjóni S. Brjánssyni, Heilbrigðis-
stofnun Vesturlands, Merkigerði 9, 300 Akra-
nesi. Umsóknarfrestur er til 23. mars 2015.
Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi skiptist í sjúkrasvið og
heilsugæslusvið. Á sjúkrasviði er starfrækt fjölgreinasjúkrahús
með vaktþjónustu allan sólarhringinn. Sjúkrahúsið veitir almenna
og á vissum sviðum sérhæfða sjúkrahúsþjónustu á lyflækninga-
deild, handlækningadeild, fæðinga- og kvensjúkdómadeild, og á
vel búnum stoðdeildum þar sem höfuðáhersla er lögð á þjónustu
við íbúa heilbrigðissumdæmisins. Jafnframt er vaxandi áhersla
lögð á þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Á heilsugæslu-
sviði er veitt almenn heilsugæsluþjónusta fyrir íbúa í heilsugæslu-
umdæmi Akraness með forystuhlutverk varðandi almenna heilsu-
vernd og forvarnastarf, m.a. við stóriðjuna á Grundartanga og
fyrirtæki á Akranesi. HVE tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í
samvinnu við Háskóla Íslands og aðrar menntastofnanir. Starfs-
menn Heilbrigðisstofnunar Vesturlands eru tæplega 400 talsins.
Sjá nánar heimasíðu www.hve.is
JibbyByggir
Óskum eftir aðila til að sjá um kynningar, sölu
og uppsetningu á JibbyByggir - gæðakerfi fyrir
fagaðila í mannvirkjagerð sem gert er í hinu
nýja íslenska umhverfi www.jibby.com.
Fimm þúsund iðnmeistarar, byggingastjórar
og hönnuðir munu þurfa gæðakerfi skv. nýrri
reglugerð frá 1. janúar 2015.
Áhugasamir sendi á jibbybyggir@gmail.com
Löglærður fulltrúi
Lögmannsstofan LOCAL lögmenn sérhæfir sig í
ráðgjöf á sviði félaga-, fjármála- og skattaréttar.
LOCAL lögmenn leita að fulltrúum til starfa
sem lokið hafa meistaranámi í lögfræði.
Málflutningsréttindi eru æskileg.
LOCAL lögmenn leita að fulltrúum sem sýna
frumkvæði, viðhafa sjálfstæð og vönduð vinnu-
brögð, eru heiðarlegir og búa yfir hæfni
í mannlegum samskiptum.
Skilyrði er að umsækjendur hafi góð tök
á íslenskri og enskri tungu í ræðu sem riti.
Umsóknir skulu sendar
á box@mbl.is merktar
„fulltrúi“ fyrir 5. mars næstkomandi.
Húsi Verslunarinnar • Kringlunni 7 • 8. hæð
103 Reykjavík • www.locallogmenn.is
!
"### $%&
''
''''"###(
)
%
%
*
! +
/
2
! !
! 2
2
!
!
%
4 !
! 2 6
!
)
% 9
):
;
6
!
6
<
) 6
>
?
B
=
%2 >
+
D
2
&
E
%
F ? # / 6 2 G %% +
IJ
<
!
N
%% +
%
D
%% +
2J P
!
6
Q !
Q >
+
! Q T
!
Q W=
Q N
Q X
%
Y
Q G+
% Y Q P
Q Z
2
+
2
= Q N
+
%)
Q B
= 6
!
Q B
= !
! Q ; 2
%
Q [
6
Staða skólastjóra við
Grunnskólann í Þorlákshöfn
Laus er til umsóknar staða skólastjóra við Grunnskólann í Þorlákshöfn
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda, menntun og stjórnunarreynslu og nöfn tveggja
umsagnaraðila. Tilgreina skal þau verkefni sem viðkomandi hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til
að sinna starfi skólastjóra. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð þar sem fram koma hugmyndir umsækjanda
um skólastarf og hvernig hann sér starfsemi Grunnskólans í Þorlákshöfn þróast undir sinni stjórn.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2015. Umsækjendur skili umsókn í tölvupósti
á netfangið gunnsteinn@olfus.is fyrir mánudaginn 16. mars 2015.
laun eru skv. kjarasamningi KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Gunnsteinn R. Ómarsson bæjarstjóri, gunnsteinn@olfus.is, s. 480 3800
og Halldór Sigurðsson skólastjóri, halldor@olfus.is, s. 480 3850.
Meginhlutverk skólastjóra er að:
• Veita faglega forystu og móta framtíðarsýn í sam-
ræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá
grunnskóla og lög um grunnskóla.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi
skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum s.s. ráðningum,
starfsþróun og vinnutilhögun.
• Bera ábyrgð á samstarfi við aðila
skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf sem grunnskólakennari og
kennslureynsla í grunnskóla.
• Viðbótarmenntun í stjórnun menntastofnana
og reynsla af stjórnun.
• Góðir skipulagshæfileikar og færni í áætlunargerð
og fjármálastjórnun.
• Færni í starfsmannastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sveigjanleiki og víðsýni.
• Vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi og áhugi á
þróunarstarfi.
Í skólanum eru 220 nemendur í 1.-10. bekk. Við skólann starfar hæft og vel menntað starfsfólk og stöðug-
leiki hefur verið í starfsmannahaldi. Einkunnarorð skólans eru: Vinátta, virðing og velgengni. Skólinn er
Grænfánaskóli þar sem nemendur vinna af metnaði að umhverfismálum. Húsnæði skólans er afar gott
líkt og allur aðbúnaður. Gott samstarf er við leik- og tónlistarskóla á staðnum en tónlistarskólinn er í
húsnæði grunnskólans. Sveitarfélagið Ölfus hefur sinnt skólamálum af miklum metnaði og hlaut á dögunum
viðurkenningu fyrir að styðja starfsfólk í leikskólakennaranámi. Auk þess styður sveitarfélagið við menntun
grunnskólakennara sinna. Skólinn hlaut Menntaverðlaun Suðurlands árið 2011 fyrir námslegar framfarir og
samþættingu á leiklist og tónlist í starfi skólans. Í skólanum er lögð áhersla á fjölmenningarlegt starf og
einstaklingsmiðað nám.
Mikilvægt er að skólastjóri sé tilbúinn að viðhalda þeim jákvæða og góða skólabrag sem hefur einkennt starf
Grunnskólans í Þorlákshöfn. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir þekkingu og skýrri sýn á
skólastarf og veitir faglega forystu til framtíðar þar sem tekið er tillit til mismunandi þarfa, áhuga og getu
nemenda.