Morgunblaðið - 20.03.2015, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.03.2015, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2015 ✝ Davið Heimis-son fæddist á Sjúkrahúsi Suður- lands 29. júlí 1981. Hann lést á gjör- gæsludeild Borg- arspítalans 10. mars 2015. Móðir hans er Elín Einarsdóttir, f. 1962, gift Birni Brynjari Jóhanns- syni, f. 1964, og faðir Friðmundur Heimir Hel- gasson, f. 1961, sambýliskona hans er Olga Alexandersdóttir, f. 1961. Sammæðra systkini Davíðs eru Einar Páll Mímis- son, f. 1978, Petra Dagmar Björnsdóttir, f. 1991, og Brynj- ar Elí Björnsson, f. 1992. Sam- feðra systkini hans eru Eva Hrund Heimisdóttir, f. 1981, Alexander Friðmundarson, f. 1992, og Maríanna Rún Frið- mundardóttir, f. 1997. Davíð ólst upp í Hvergerði frá fæðingu og bjó þar alla sína tíð. Hann stundaði fót- bolta frá barn- æsku og körfu- bolta enda mikill áhugamaður um íþróttir. Einnig áttu hestarnir hug hans allan. Davíð kynntist ungur að aldri Söndru Sigurðar- dóttir, f. 6.2. 1983, og giftust þau 7.10. 2010. Þau eiga þrjú börn: Birtu Marín, f. 13.6. 2001, Bjarna Marel, f. 24.9. 2009, og Manúellu Berglindi, f. 12.9. 2013. Davíð vann mestmegnis við smíðar og einnig við hesta sem voru honum mjög kærir. Síðast vann hann hjá Feng í Hvera- gerði. Útför hans fer fram frá Hveragerðiskirkju í dag, 20. mars 2015, kl. 14. Líf okkar á sér upphaf og endi. Allir eru sáttir, glaðir og sælir yfir upphafi lífs hverrar persónu. Endir lífs okkar er misjafn og á stundum alltof ótímabær. Skelfilega ótímabær. Óréttlátur. Kær tengdasonur minn, Dav- íð, er nú fallinn frá … of snemma … allt of. Ár lífsins framundan og sköpun margra nýrra drauma. Framtíð… Við, fjölskylda mín, kynnt- umst Davíð fyrir tæpum 20 ár- um, þá er við í Hveragerði flutt- um. Davíð var að fara í níunda bekk og sat uppi með mig sem kennara. Hann gerðist fljótt mjög mikill vinur sonar míns, hans Bjarka og urðu þeir óað- skiljanlegir. Davíð varð fljótt hálfgerður „heimalningur“ og gisti afar oft hjá Bjarka og okk- ur. Þegar Bjarki í lok 10. bekkj- ar flutti til Danmerkur þá flutti Davíð bara yfir ganginn og í herbergi hennar Söndru minn- ar, og síðan þá hafa þau verið óaðskiljanlegur hluti hvort í annars lífi, elskuleg, ástúðleg, yndisleg og ástfangin. Davíð skildi eftir sig góð spor í jarðlífi hér. Spor sem mörk- uðu. Hann gaf af sér þrjú mannvænleg börn inn í fjöl- skylduna með Söndru minni, þau Birtu Marín, Bjarna Marel og Manúellu Berglindi. Yndisleg börn og ekki er hægt að hugsa sér betri arfleifð. Hann sinnti fjölskyldu sinni af mikilli nærgætni og nærfærni og lét sér afskaplega annt um hana. Þá var Davíð örverpunum mínum, tvíburunum, meira sem bróðir, en mágur. Hann var elskulegur eigin- maður hennar Söndru minnar og hugljúfur og ástríkur faðir barnanna sinna. Ég veit að hún Berglind mín heitin hefur tekið Davíð tengda- son sinn og mikinn vin undir verndarvæng sinn og leiðir hann um vegferð þá sem fram- undan er. Davíð var hestamaður mikill, sem unni hrossum sínum og fór um þau nærfærnum höndum af mikilli umhyggjusemi. Nú þeys- ir hann líklega á hestum á víð- áttumiklum reiðvöllum eilífðar- innar. Elsku Sandra mín… Í lífi ljóssins lifir von, í ljósi lífsins er sannarlega von. Kerta- ljós þinnar lífsdásemdar, Dav- íðs, mun ætíð loga með þér… Bros lífsins, er bros hjart- ans… Faðmlag lífsins er faðmlag hjartans… Brostu og faðmaðu Davíð í draumum þínum… Megi fagrir og fallegir draumar næturhúmsins umvefja þig örmum sínum fram í dags- birtu dagsins….á morgun…og dagsbirtu daga allrar framtíðar. Horfið til lífsins bjartrar framtíðar, elsku Sandra mín og yndislegu barnabörnin þrjú. Davíð minn. Guð veri með þér, varðveiti og verndi um alla tíð. Blessi þig, elsku drengurinn minn. Elsku Sandra mín, Birta Marín, Bjarni Marel og Manú- ella Berglind mín. Ykkar sorg er mikil sem og missir. Megi Guð breiða blessun sína yfir ykkur öll um ókomna framtíð og ætíð… elskurnar mínar… Sigurður Blöndal. Það er svo sárt að þurfa að kveðja mág minn, sem var mér meira eins og bróðir og góðan vin svona ungan, ungan mann sem átti lífið framundan. Það er bara ekki hægt að hugsa sér líf- ið án þín, en á ég þó margar góðar minningar til að minnast þín og mun ég tala mikið um þig við börnin þín svo þau fái að kynnast hvernig þú varst. Þú varst algjör gleðigjafi og var alltaf gaman í kringum þig. Þú varst traustur og alltaf var hægt að treysta á þig með allt. Þú varst mjög stríðinn og fékk ég mest að kenna á því. Mest á ég þó eftir sakna minnstu og sjálfsögðustu hlut- anna, hvort sem það var að koma upp í vinnu til þín í einn asna, taka rúnt eða þegar þú sendir Bjödda bónusfrænku í búðina. Ég verð þér ævinlega þakklát fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og allt sem við höfum gert saman. Elsku Davíð, þín verður alltaf minnst með söknuði og gleði, en gott er að ylja sér við góðar minningar um góðan mann og munum við ávallt sjá þig í börn- unum þínum, sem eru lifandi eftirmynd föður síns. Hvíldu í friði, elsku vinur. Bjarndís Helga. Elsku, elsku Davíð … ég er orðlaus. Það er komið að því að kveðja þig, kveðja þig í seinasta skipti. Ég hef verið að bíða eftir því að vakna upp frá þessum draumi … þessari skelfilegu martröð! Hver á núna að sjá um það að rústa okkur í körfubolta og dúndra okkur niður í skotbolta í árlega páskasprellinu hjá okkur fjölskyldunni? Og okkar árlega óvissuferð, allir hittingarnir, matarboðin, spilakvöldin, jólin og áramót- in … allt á þetta eftir að vera svo skrítið án þín. Þið Sandra voruð svo náin, búin að vera saman frá því þið voruð nánast börn. Saman tókst ykkur líka alltaf að vinna bik- arinn í parakeppninni í frænku- fjörinu og oftar en ekki rúst- uðuð þið okkur Dodda líka í spilum ef skipt var í paralið. Ég finn svo til með elsku Söndru og sólargeislunum ykk- ar. Þið voruð svo fullkomin saman. Þetta er svo ósann- gjarnt, svo óréttlátt og svo óraunverulegt. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér, elsku Davíð, og þakklát fyrir þær minningar sem eftir sitja. Ég man þegar ég fékk að vera með ykkur Söndru á rúnt- inum á flotta svarta bílnum þín- um, ég þá bara rétt að verða unglingur. Þá fannst mér tón- listin sem þú hlustaðir á svo flott og kúl og lánaðir þú mér oft skrifaða diska frá þér. Þegar ég kynntist Dodda mínum var dásamlegt hversu vel þið náðuð saman en þið töl- uðuð nú ekkert lítið um fótbolta þegar við hittumst enda Pool- arar báðir. Við töluðum einmitt svo oft um það að fara saman út á leik … nú sé ég svo eftir því að hafa ekki framkvæmt það. Ég man það líka hversu glöð og stolt ég var þegar þið Sandra báðuð mig um að vera skírnarvott og guðmóður Manú- ellu Berglindar. Takk fyrir það og takk fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Minning þín mun lifa, elsku Davíð, minning um góðan mann, frábæran föður og skemmtileg- an vin. Ég ætla að trúa því að Begga frænka muni taka á móti þér þarna uppi. Við munum öll sakna þín. Hvíldu í friði, elsku vinur. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afargóð ég alltaf mun þín sakna. (Guðrún V. Gísladóttir.) Auður Elísabet Guðjónsdóttir. Elsku Davíð okkar, mikið svakalega er sárt að þurfa að kveðja þig. Eftir sitjum við dof- in og skiljum ekkert í þessu af hverju þú varst hrifsaður í burtu í blóma lífsins! En við minnumst allra dýrmætu samverustundanna á liðnum ár- um sem við fengum að njóta mér þér og elsku Söndru. Brúðkaupið ykkar Söndru í október 2011, mikið sem það var gaman, þið voruð svo falleg, heilsteypt og svo fullkomin fyrir hvort annað. Ekki óraði okkur þá fyrir að við ættum eftir að setjast niður fjórum árum seinna og skrifa minningargrein um þig! Blómstrandi dagar í ágúst sl. þar sem við borðuðum öll sam- an heima hjá ykkur með öll börnin og áttum svo saman ynd- islega kvöldstund sem innihélt brekkusöng, brennu og flug- eldasýningu. Við erum endalaust þakklát fyrir að hafa farið með ykkur hjónum ásamt fleirum á tón- leika í Hörpu með Nýdönskum í september sl. Þetta var ynd- islegt kvöld, svo gaman hjá okk- ur, fórum snemma í Reykjavík, gistum á hóteli og skemmtum okkur svo vel. Vorum svo alltaf á leiðinni að endurtaka þetta kvöld og fyrirhugað var að fara á Tinu Turner í Hörpu 2. maí nk. og vorum við einmitt að ræða það um daginn hvort við ættum að hafa makaferð eða skvísuferð. Öll matarboðin sem við héld- um ásamt Katrínu og Janusi eru svo dýrmæt, þar sem við snæddum góðan mat og spjöll- uðum fram á rauða nótt. Ásamt öllum hinum dýrmætu stund- unum sem við áttum með ykkur Söndru. En við kveðjum þig að sinni með tár í augum og sorg í hjarta, elsku Davíð, guð geymi þig og varðveiti þig. Við munum styrkja elsku Söndru þína í þessari miklu sorg og gullmol- ana þína þrjá, yndislegu Birtu Marín, yndislega Bjarna Marel & yndislegu Manúellu Berg- lindi. Við erum óendanlega þak- kát fyrir allar þær stundir sem við fengum að eyða með ykkur hjónum á síðastliðnum árum! Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. (Bragi Valdimar Skúlason.) Kveðja, Tinna Rut og Stefán. Það var nýbakaður faðir, sem ég hitti í fyrsta skipti í júní 2001 þegar Davíð og Sandra komu við í Drápuhlíðinni hjá ömmu og afa Söndru með frum- burðinn, Birtu Marin. Sennilega ekki auðvelt fyrir Davíð að hitta okkur nokkur úr föðurfjöl- skyldu Söndru í fyrsta skipti, en það leyndi sér ekki, að þar var stoltur ungur faðir á ferð. Eftir því sem árin liðu og fjölskylda Davíðs og Söndru stækkaði, urðu samskiptin okk- ar á milli meiri og því betur sem ég kynntist Davíð sá ég hversu mikill gullmoli það var sem hún Sandra mín hafði nælt sér í. Við áttum frábæra ferð sam- an, stórfjölskyldan, í Flórída fyrir nokkrum árum og ósjaldan höfum Davíð spurt hvort annað hvort við séum ekki bara að skella okkur aftur, átti auðvitað að vera árlegt fyrst, en kannski ekki alveg raunhæft. Þar voru þeir flottir strákarnir allir sam- an á sportbílnum, Davíð, Bjarni Marel, afi Siggi og frændur tveir, á leið í minigolf eða körfu. Var reyndar í göngufæri en flottara að fara á opnum sport- bílnum þessa fáu metra, og svo öruggara því þar lentu þeir í að þurfa taka tillit til krókódíls sem truflaði einbeitingu leiks þeirra og Bjarni hafði frá miklu að segja. Frá því að við fluttum til Hveragerðis hefur ósjaldan ver- ið leitað til Davíðs með eitt og annað og ég var stundum ekki búin að leggja frá mér símann þegar hann var mættur og reddaði málum. Hann var haf- sjór af fróðleik um svæðið og hvernig væri best að bera sig að við eitt og annað, enda búið hér alla tíð. Þegar fyrir lá flutn- ingur í Valsheiði, var minn mað- ur fljótur að láta mig vita að þetta væri besta staðsetningin fyrir gamlárskvöld því brennan væri hér í bakgarðinum, ég er þakklát fyrir það gamlárskvöld sem við áttum hér saman í góð- um hópi og nutum magnaðrar flugeldasýningar björgunar- sveitarmanna sem bergmálaði svo undirtók í Hamrinum, Dav- íð fékk sitt stúkusæti það árið. Davíð átti alveg sér stall hjá Sigurði Frey sem leit mjög upp til hans og var fljótur að hlaupa til þegar boð var í hesthúsið. Heyrði ég þá frændur Sigurð og Bjarna Marel einu sinni ræða þetta, að þeir gætu leyft hvor öðrum að koma með pöbb- um sínum, hesthúsið og risaj- eppinn góður díll. Reyndar sagði Bjarni þegar Davíð lá á spítalanum að ef hann yrði lengi þar, þá yrði hann að fara í hest- húsið því mamma kynni sko ekkert á hesthúsið, hver veit nema að hann feti í fótspor pabba og fari í hestamennsk- una, enda hefur hann verið þar með annan fótinn frá blautu barnsbeini. Það er erfitt að meðtaka þann raunveruleika að Davíð sé ekki með okkur lengur, missir eiginkonu, barna og móður er mikill, það er ekki gefið jafnt í þessu lífi, erfiðleikaskammtarn- ir virðast hrannast meira á suma en aðra. Sendi hugheilar samúðar- kveðjur til allra ættingja og vina. Sigrún Sigurðardóttir. Davíð Heimisson Við sendum bestu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og útför okkar ástkæra, SVEINS B. HÁLFDANARSONAR vélstjóra frá Viðey, sem andaðist á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 8. mars. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heimaþjónustu Háaleitis og Bústaða, Hlíðarbæjar, deildar A7 á LSH í Fossvogi og á Hrafnistu í Reykjavík. . Hjalti Jón Sveinsson, Soffía Lárusdóttir, Óttar Sveinsson, Alda Gunnlaugsdóttir, Álfheiður Hanna Friðriksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg dóttir mín, KOLBRÚN HERMANNSDÓTTIR, Iðufelli 6, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum sunnudaginn 8. mars, verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn 24. mars kl. 13. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á sjóð Barnaspítala Hringsins, reikn. 101-26-54506. Kt. 640169-4949. . Aðalbjörg Jónsdóttir og fjölskylda. Bróðir okkar, ÞÓRHALLUR KRISTJÁNSSON, Snorrabraut 48, Reykjavík, lést mánudaginn 16. mars. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. mars kl. 15. Fyrir hönd systkina og aðstandenda, . Skúli Kristjánsson, Sigríður Anna Kristjánsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, AÐALHEIÐUR ÓLAFSDÓTTIR, Logafold 61, Reykjavík, lést á Landakoti mánudaginn 16. mars. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 30. mars kl. 13. . Bjarni Sigurðsson, Helga Arnþórsdóttir, Gunnar Sigurðsson, Anne Uimonen, Ian Graham, Jóna Lárusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær stjúpfaðir, bróðir, móðurbróðir og afi, ÁRNI GUÐJÓNSSON blikksmiður, Álfhólsvegi 129, Kópavogi, lést aðfaranótt 16. mars á dvalarheimili Hrafnistu, Hafnarfirði. Hann verður jarðsunginn frá Hjallakirkju í Kópavogi mánudaginn 23. mars kl. 13. . Kristján Jóhann Jónsson, Dagný Kristjánsdóttir, Snorri Hergill Kristjánsson, Árni Kristjánsson, Jóna Bríet Guðjónsdóttir, Guðjón Guðvarðarson, Guðbjörg Guðvarðardóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG GÍSLADÓTTIR, Skúlagötu 20, frá Torfastöðum í Núpsdal, V-Húnavatnssýslu, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 16. mars. Jarðarförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 24. mars kl. 11. . Aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.