Morgunblaðið - 23.03.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.03.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2015 Viðreisn www.vidreisnin.is Kostir og gallar við aðild að Evrópusambandinu Fundarstjóri: Fundurinn er opinn öllum Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands: Evran, peningastefnan og afnám hafta Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Frummælendur: Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst: Fullveldisafsal, samstarf eða sameining? Viðreisn heldur opinn fund um Evrópumál mánudaginn 23. mars klukkan 17:00 - 18:30 Fundurinn verður haldinn á Hótel Hilton Nordica við Suðurlandsbraut Baldur Arnarson baldura@mbl.is Söfnun hlutafjár vegna fyrirhug- aðrar uppbyggingar hraðlestar frá Reykjavík til Keflavíkurflugvallar gengur vel og hafa erlendir sérfræð- ingar metið verkefnið fýsilegra en upphaflega var lagt upp með. Þetta segir Runólfur Ágústs- son, verkefna- stjóri Ráðgjafar og verkefna- stjórnunar, en hann hefur verið í forsvari við þróun verkefnisins. Gert er ráð fyrir einni stoppistöð í suðurhluta höf- uðborgarsvæð- isins í upphafi og að hluti leiðarinnar verði í undirgöngum. Gengur hugmyndin út á að lestin fari alla leið inn í miðborg Reykja- víkur, að endastöð á BSÍ. Runólfur bindur vonir við að söfn- un hlutafjár verði lokið í vor. „Við erum að undirbúa söfnun hlutafjár. Það gengur ágætlega og vonandi verður eitthvað að frétta af því með vorinu. Verkefnið er auðvit- að mjög umfangsmikið. Við höfum líka verið að endurskoða viðskipta- áætlunina og fengið erlenda aðila til að rýna hana. Það lítur mjög vel út og ef eitthvað er virðist verkefnið vænlegra en lagt var upp með. Meta forsendur í ferðamennsku Þarna er um að ræða erlenda aðila sem hafa sérþekkingu á svona rekstri. Þeir hafa farið yfir við- skiptaáætlunina og við höfum gert ákveðnar breytingar á viðskiptalík- aninu. Svo byggjum við líka á spám um þróun og forsendur í ferða- mennsku á Íslandi. Þær forsendur hafa batnað og það skiptir líka máli,“ segir Runólfur. Runólfur segir næsta skref að gera útboðsgögn. „Við erum að undirbúa að stofna hlutafélag um málið, sem yrði þá þróunarfélag um verkefnið. Það myndi þá kosta fyrsta fasann, sem er að ramma verkefnið inn og gera ákveðnar grunnrannsóknir. Ég myndi ætla að ef allt gengi upp yrði þróunarfélagið stofnað í vor, eða snemma í sumar, og að verkefnið gæti þá farið á fullt, vonandi innan árs. Þá er ég að vísa til annars áfanga verkefnisins sem er hönnun, gerð útboðsgagna, mat á umhverfis- áhrifum og skipulagsmál. Þriðji og síðasti áfangi er svo alþjóðleg fjár- mögnun og framkvæmd,“ segir Run- ólfur. Hraðlest milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur* Leiðin yrði um 47 km og ferðatíminn 15 - 17 mínútur Grunnkort/Loftmyndir ehf. Straumsvík Gangamunni Endastöð við BSÍ í Vatnsmýri Lest gengur neðanjarðar Hafnarfjörður Álftanes Garðabær Kópavogur Reykjavík *Dæmi um hvernig leiðin gæti litið út samkvæmt grófri lýsingu aðstandenda verkefnisins. Lest gengur ofanjarðar Keflavíkurflugvöllur Reykjavík Hraðlestin metin væn- legri kostur en áður  Vonast til að ljúka söfnun hlutafjár í vor  Keflavík að BSÍ Runólfur Ágústsson „Við erum gáttaðir á þeim móttökum sem við fengum. Það voru elduð um 55 lambalæri ofan í mannskapinn, bæði sett á grill og kyntir allir ofnar í hreppnum,“ seg- ir Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Slysa- varnafélagsins Landsbjargar, um móttökur íbúanna í Árneshreppi, en tækjamót björgunarsveitanna var haldið í Trékyllisvík á Vestfjörðum um helgina. Rúmlega 300 björgunarsveitarmenn tóku þátt í tækjamótinu frá 47 björgunarsveitum alls staðar að af landinu. Mættu björgunarsveitirnar til leiks með rúm- lega hundrað vélsleða, 53 jeppa og nokkur fjórhjól og snjóbíla. Jón segir tækjamótið efla starf björgunar- sveita og ekki síst félagsstarfið. „Þetta er efling á allan hátt,“ sagði Jón. ash@mbl.is Tækjamót björgunarsveita var á Vestfjörðum um helgina Ljósmynd/Guðbrandur Örn Arnarson Íbúarnir grilluðu ofan í björgunarsveitir SKÁK Helgi Ólafsson helol@simnet.is Skákfélagið Huginn er Íslandsmeist- ari skákfélaga keppnistímabilið 2014- 2015 en fjórar síðustu umferðir Ísl- landsmótsins fóru fram í Rimaskóla um helgina. Fyrir lokasprettin sóttu sveitir Taflfélags Reykjavíkur og Taflféags Vestmannaeyja hart að efsta liðinu en þrátt fyrir stóra sigra hélt Huginn forystunni allt til enda. Tíu sveitir tefldu í efstu deild og fór keppnin fram á átta borðum í hverri umferð. Lokaniðurstaðan varð þessi: 1. Huginn 56½ v. (af 72 mögu- legum) 2. Taflfélag Reykjavíkur 55 v. 3. Taflfélag Vestmannaeyja 52½ v. 4. Fjölnir 38 v. 5. Taflfélag Bolung- arvíkur 36 v. 6. Skákfélag Akureyrar 33½ v. 7. Vikingaklúbburinn 29½ v. 8. Huginn b-sveit 25 v. 9. Skákfélag Reykjanesbæjar 17½ v. 10. Skákfélag Íslands 16½ v. Íslandsmótið fer fram samkvæmt hefð í tveimur hlutum en fyrri hlutinn fór fram sl. haust. Reglur keppnnnar gera ráð fyrir að erlendir keppendur megi vera tveir í hverri umferð. Meðal erlendu stórmeistaranna sem tefldu með sveit Hugins voru Englending- urinn Gawain Jones, Búlgarinn Chep- arinov, Hollendingurinn Robin Van Kampen og Kanadamaðurinn Eric Hansen. Hjörvar Steinn Grétarsson og Stefán Kristjánsson tefldu allar níu umferðirnar fyrir Hugin. Íslandsmótið fór fram í fjórum deildum. Í 2. deild sigrað Taflfélag Reykjavíkur. Í 3. deild sigraði c-sveit Taflfélags Reykjavíkur og í 4. deild sigraði d-sveit Taflfélags Reykjavík- ur. Jón beið í 45 ár eftir sigri yfir stórmeistara Talsvert var um óvænt úrslit í keppni helgarinnar. Baldur Krist- insson sem tefldi fyrir b-sveit Hugins vann stórmeistarann Margeir Pét- ursson í 6. umferð. Í 7. umferð vann Rúnar Sigurpálsson Portúgalann Louis Galego, Stefán Bergsson vann Helga Áss Grétarsson í 8. umferð og í sömu umferð vann Guðmundur Kjart- ansson sigur á Jóhanni Hjartarsyni. Þegar seinni hluti Íslandsmótsins hófst sl. fimmtudagskvöld var það hinn 72 ára Jón Kristinsson sem átti sviðið er hann vann Henrik Dani- elsen sem tefldi fyrir Taflfélag Vest- manaeyja á sannfærandi hátt. Jón var einn sigursælasti skákmaður Ís- lands á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Um miðjan áttunda áratuginn var hann ráðinn útbús- stjóri Búnaðarbanka Íslands á Hólmavík og hætti þá taflmennsku að mestu leyti. En hann er byrjaður aft- ur og hefur verið með á tveim síðustu Reykjavíkurskákmótum. Á Reykja- víkurmótinu árið 1970 vann hann stórmeistarana Friðrik Ólafsson og Milan Matulovic og í Rimaskóla 45 árum síðar kom næsti sigur: Jón Kristinsson - Henrik Dani- elsen 1. d4 d6 2. c4 e5 3. Rc3 exd4 4. Dxd4 Rc6 5. Dd2 Rf6 6. g3 Be6 7. Rd5 Re5 8. b3 Re4 9. Dc2 Rc5?! Svartur átti sterkari leik 9. … Bf5. 10. Bb2 c6 11. Rf4 Be7 12. b4 Bf6 13. Hc1 Rd7 14. Rxe6 fxe6 15. Bh3 0-0 16. f4 Db6? Hæpin mannsfórn. Eftir 16. … Rf7 17. Bxe6 hefur svart- ur vissar bætur fyrir peðið. 17. fxe5 Rxe5 18. Dd2 Had8 19. Bd4 c5 20. Be3 d5 Hann varð að bregðast hart við lið- skipunaráformum svarts. 21. Bxc5 Da6 22. b5 Da4 23. Bxe6+ Kh8 24. Bxd5 Hfe8 25. Bd4 Hxd5 26. cxd5 Bg5 27. e3! Rg4 28. Hc3 Bxe3 29. Bxe3 De4 30. Rf3! Dxf3 31. Hf1 De4 32. d6 Rxe3 33. Hxe3! 33. … Db1+ Gegn leiknum sem blasir við: 33. … Dxe3+ hafði Jónfundið snjalla vinningsleið: 34. Dxe3+ Hxe3 35. Kf2! He8 36. d7 Hd8 37. He1! og vinnur. 34. Ke2 Dxb5+ 35. Dd3 Db2+ 36. Kf3 og svartur gafst upp. Skákfélagið Huginn varð Íslandsmeistari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.