Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2015, Page 21
AFP
Vegfarandi arkandi í New
York. Ferðalög geta
reynt á líkamann svo að
veldur sárum verkjum.
8.3. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Svissnesk-breska ferðaskrifstofan
STA Travel býður upp á áhugaverð-
an valkost fyrir þá sem vilja skella
sér í heimsreisu.
Þar er hægt að kaupa, á töluvert
hagstæðu verði, eins konar hring-
ferðir, þar sem hoppað er frá ein-
um áfangastað til annars og hægt að
skoða marga áfangastaði, jafnvel
margar heimsálfur, koll af kolli, án
þess að greiða formúgu fyrir.
Vadar ferðaleiðir má skoða á
slóðinni www.statravel.co.uk/top-
round-the-world-routes.htm.
Þannig auglýsir STA Travel t.d.
hringferð frá Bretlandi með við-
komu í New York, Toronto og
Reykjavík, fyrir svo lítið sem 339
pund á mann, um 70.000 kr., þó
með þeim fyrirvara að ferðalang-
urinn þarf sjálfur að koma sér milli
New York-borgar og Toronto.
Þeir auglýsa hringferð um heim-
inn frá 1.399 pundum, 288.000 kr.,
með viðkomu á Íslandi, Bretlandi,
Dúbaí, Hong Kong, Bangkok, Sidney,
Gold Coast, Auckland, Fidji, Los
Angeles og New York, aftur með
þeim fyrirvara að viðskiptavinurinn
þarf sjálfur að leysa úr tengingunni
milli Los Angeles og New York.
Ekki í stuði fyrir Asíu? Þá má fara í
ferðina sem þeir kalla „Across the
Pond“, þar sem hringurinn liggur frá
Íslandi, til New York, Fort Lauder-
dale, Cancun, San Jose, Lima, Rio de
Janeiro, Madrid og Parísar fyrir 999
pund, 206.000 kr. Vantar þá tenging-
arnar á fjórum leggjum ferðarinnar,
en það ætti ekki endilega að bæta
miklu við heildarverðið.
Hafa verður í huga að um er að
ræða auglýst lágmarksverð en loka-
verðið gæti verið hærra.
AFP
Umhverfis hnöttinn fyrir
furðulítinn pening
Flugferðir reyna meira á líkamann en margur
heldur. Erla segir að af náttúrunnar hendi séum
við ekki gerð fyrir langar kyrrsetur og eftir að
hafa setið hreyfingarlítill í þröngu sætinu geti
ferðamaðurinn farið að finna fyrir stífleika og
bólgum.
Getur hjálpað mikið að gera einfaldar æfingar á
meðan setið er og reyna að gera smávægilegar
breytingar á setstöðunni á 20-30 mínútna fresti.
Oft má finna í tímaritum flugfélaganna um borð
leiðbeiningar um hvernig gera má stuttar æfingar
sem koma blóðinu á hreyfingu og losa um spennu.
Nefnir Erla sem dæmi að kreppa tær, fara upp á
tær og aftur á hæla, lyfta öxlum og gera liðkandi
æfingar fyrir háls. „Mörgum finnst líka gott að fá
lánaðan lítinn kodda hjá flugþjónunum og setja við
mjóbakið eða hálsinn og fá þannig betri stuðning.
Ef aðstæður leyfa og truflar ekki of mikið aðra
sessunauta er síðan gott að reyna að standa upp
og ganga nokkur skref um farþegarýmið.“
Þeir sem hættir til að bólgna upp í flugi ættu að
hafa hugfast að saltur matur, kaffi og áfengi auka á
vökvasöfnun í líkamanum og geta því gert bólg-
urnar enn verri. „Góð regla er að reyna að
drekka þá eitt glas af vatni á móti hverjum kaffi-
bolla eða skammti af áfengi.“
Getty Images/iStockphoto
Ekki vera alveg hreyfingarlaus um borð
Persónuleg þjónusta og vinalegt umhverfi
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Fjölbreytt
æfingarstöð
eitthvað fyrir alla
Ketilbjöllur v Spinning v Hópatímar
Skvass v Golf hermir v Körfuboltasalur
Cross train Extreme XTX
Einkaþjálfun v Tækjasalur
12 mán. kort: kr. 59.900,- (ekki skvass)
nánar á veggsport.is