Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2015, Síða 22
Heilsa og
hreyfing
Heilsudagur í Spörtu fyrir 60 +
*Sunnudaginn 8. mars kl. 13.00-15.00 verðurhaldinn heilsudagur fyrir 60 ára og eldri íSpörtu heilsurækt að Nýbýlavegi 6 (gengiðinn Dalbrekkumegin). Boðið verður upp áléttar styrktaræfingar og stólajóga, ásamtkynningu á bókinni Hreyfing - æfingar ogteygjur fyrir 60 ára og eldri eftir Fannar Kar-
vel íþróttafræðing. Happdrættisvinningar
verða einnig dregnir út á heilsudeginum.
um tvo ávexti á dag. Í myndinni sést
hversu miklu magni af ávöxtum er hægt að
koma í einn þeyting. Það væri mjög erfitt
að borða sama magn af heilum ávöxtum í
einu. Það er allt í lagi að fá sér búst við og
við en gott að hafa í huga að setja aðeins
það magn af ávöxtum í hann sem við mynd-
um ráða við að borða í einu.“
Boðskapurinn í myndinni er að almenn-
ingur borði allt of mikinn sykur og mun
meiri en ráðlagt sé að gera. Hann útskýrir
að viðbættur sykur leynist víða og til dæm-
is sé meiri sykur í lítilli jógúrtdós af fitu-
snauðu jógúrti en í Kit Kat-súkkulaðistykki.
Hann ber líka saman pakkalasagna frá
Lean Cuisine og kleinuhringi frá Krispy
Kreme en í einum skammti af lasagna er
meiri sykur en í tveimur kleinuhringjum.
„Þetta er gott dæmi um hvernig sykur er
falinn í máltíðum sem stundum eru mark-
aðssettar sem heilsusamlegar. Þetta lasagna
er með viðbættum hrásykri. Þetta er ekki
skrifað í þeim tilgangi að segja að kleinu-
hringirnir séu betri valkostur heldur bara
til að sýna fram á að sykur felur sig á
stöðum þar sem við búumst ekki endilega
við honum og þetta er ástæða þess að við
borðum svo mikið af honum á hverjum
degi,“ skrifaði hann á Facebook.
Gameau ráðfærði sig við Spurlock við
gerð myndarinnar og fjöldamarga lögfræð-
inga. „Það sem ég geri er að túlka inni-
haldsmerkingarnar fyrir almenning. Þetta
er allt þarna á pakkanum, það er bara
stundum erfitt að átta sig á þessu,“ segir
hann og hvetur fólk að nota mátt budd-
unnar til að fá matvælafyrirtæki til að
breytast.
T
hat Sugar Film er fyrsta myndin
sem ástralski leikarinn Damon Ga-
meau leikstýrir. Þetta er heimild-
armynd þar sem Gameau rann-
sakar áhrif sykurs á líkama sinn en myndin
var frumsýnd í heimalandi hans fyrr í mán-
uðinum. Hann ákvað fyrir þremur árum að
taka hvítan sykur úr mataræði sínu þannig
að hann var búinn að gera hreint fyrir sín-
um dyrum áður en tilraunin byrjaði. Mynd-
in er heimildarmynd í anda Super Size Me,
sem margir muna væntanlega eftir en í
henni borðaði kvikmyndagerðarmaðurinn
Morgan Spurlock einungis mat frá McDo-
nald’s í mánuð. Það sem kemur hressilega á
óvart í þessari mynd er að Gameau rann-
sakar ekki hvað gerist þegar hann borðar
ekkert nema súkkulaðikex og nammi heldur
borðaði hann jafn mikinn sykur og meðal
Ástralinn neytir. Hann borðaði ígildi fjöru-
tíu teskeiða af sykri á dag samfleytt í sex-
tíu daga.
Fitulifur og geðsveiflur
Niðurstaðan er sláandi; á þessum tíma fékk
hann fitulifur, tíu cm auka fitu í mittismál,
geðsveiflur og að sögn læknis, fyrstu stig
kransæðavandamála.
Þrátt fyrir þetta borðaði hann ekki ost-
borgara, franskar og ísrétti, mat sem allir
vita að er ekki góður fyrir mann heldur
borðaði hann mat sem oft er auglýstur sem
heilsufæði. Á meðal þess sem hann neytti
var morgunkorn, búst, múslístykki og fitu-
lítið jógúrt. Hann borðaði jafnmargar ka-
lóríur og fyrir tilraunina og hélt áfram að
hreyfa sig en samt varð niðurstaðan svona
afgerandi.
„Ef ég hefði farið og borðað ekkert nema
Mars og kók hefðu allir haldið fyrirfram að
niðurstaðan yrði slæm. Við vitum þetta. En
það er verið að plata fólk og umbúðirnar
eru villandi. Á mörgum af þessum vörum er
mynd af sólsetri. Eða það er vísað í móður
náttúru með mynd af býflugu, blómi eða
einhverju öðru. Og fólk trúir þessu,“ sagði
Gameau í viðtali við Guardian.
Hann segir að verstu áhrif mataræðisins
hafi verið á andlega getu hans, skap og
hæfileikann til að einbeita sér. „Það var allt
í lagi með mig rétt eftir að ég var búinn að
borða sykur en 45 mínútum seinna leið mér
undarlega. Ég bjóst ekki við að áhrifin yrðu
svona mikil.“
Frúktósi og laktósi talinn með
Á Facebook-síðu myndarinnar (facebo-
ok.com/thatsugarfilm) kemur fram að í
þessum 40 teskeiðum á dag er viðbættur
sykur en líka laktósi úr mjólkurvörum og
frúktósi úr söfum, bústi og þurrkuðum
ávöxtum.
Þar skrifar Gameau: „Það leikur enginn
vafi á því að heilir ávextir eru góðir fyrir
mann því trefjarnar tefja fyrir upptöku syk-
ursins. Núna er mælt með því að við borð-
Fólki brygði við ef það sæi svona mikinn sykur á diskinum. Engu að síður er raunin sú að mikill sykur leynist oft í tilbúnum réttum.
Getty Images/Hemera
THAT SUGAR FILM ER HEIMILDARMYND UM ÁHRIF SYKURNEYSLU
Sykur leynist víða
LEIKARINN DAMON GAMEAU
RANNSAKAÐI ÁHRIF SYKURNEYSLU
Á LÍKAMA SINN Í NÝRRI HEIMILD-
ARMYND. HANN BORÐAÐI EKKI
SÚKKULAÐISTYKKI HELDUR
MAT SEM OFT ER MARKAÐSSETTUR
SEM HEILSUSAMLEGUR OG
ÁHRIFIN ERU SLÁANDI.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Gameau bendir á í myndinni að mikill ávaxtasykur leynist í þeytingum.That Sugar Film.
* Á meðal þess semhann neytti varmorgunkorn, búst, múslí-
stykki og fitulítið jógúrt.
Hann borðaði jafnmargar
kalóríur og fyrir tilraun-
ina og hélt áfram að
hreyfa sig.