Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2015, Side 26
IKEA-innsetning Sigríður Heimisdóttir sýnir innsetn-
ingu með nýja IKEA-ljósinu Krusning sem gert er úr pappa
í Ráðhúsinu. Meðan á sýningunni stendur mun hún einnig
standa fyrir vinnustofu laugardaginn 14. mars frá kl. 14-15,
þar sem gestir geta útbúið sína eigin útgáfu af ljósinu.
Heimili
og hönnun *Fyrirlestradagur HönnunarMars markar upphaf hátíðarinnnar. DesignTalks fer fram íSilfurbergi í Hörpu 12. mars. Þar mun einvala lið alþjóðlegra hönnuða og arkitekta sýnafram á mikilvægi leiks í hönnun og nýsköpun hverskonar. Á meðal þeirra sem tala erubelgíski fatahönnuðurinn (með meiru) Walter Van Beirendonck, grafíski hönnuðurinnJessica Walsh og Marti Guixé, sem er frumkvöðull í matarhönnun og lagði einniggrunninn að hugmyndafræði og útliti verslana spænska skóvörumerkisins Camper.Listrænn stjórnandi og umræðustjóri er Hlín Helga Guðlaugsdóttir, hönnuður og
sýningarstjóri og kennari við Konstfack, Stokkhólmi. Nánari upplýsingar um hátíðina er
að finna á honnunarmars.is.
Mikilvægi leiks í hönnun og nýsköpun
Har eyewear frumsýnir nýja gleraugnaumgjörð ásamt nýju efnisvali í Sjáðu við
Hverfisgötu. Um er að ræða handsmíðuð íslensk gleraugu. Hugmyndafræði
Har kemur frá hjólabrettasmíði en umgjarðirnar eru gerðar úr níu lögum af
krosslímdum spón.
Skeiðarnar í Búrinu Ólöf Erla Bjarnadóttir og Margrét Guðnadóttir sýna nýja
útgáfu af skeiðum úr postulíni og körfuvíði í Búrinu við Grandagarð. Þær eru
báðar hönnuðir í Kirsuberjatrénu.
Ljósið Möskvar Í verslun Spaks-
mannsspjara verður nýtt ljós til
sýnis sem þróað er úr íslenskri
síldarnót. Ljósið er hannað af
HAF í samvinnu við þaulreynda
íslenska netagerðarmenn og er
endurtúlkun á hinni klassísku
kristalskrónu. Ljósið hefur þann
eiginleika að vera flatpakkanlegt.
HÖNNUNARMARS HEFST Í NÆSTU VIKU
Skapandi skemmtun
ÁRSHÁTÍÐ ÁHUGAFÓLKS UM HÖNNUN HEFST Á FIMMTUDAGINN. Á HÖNN-
UNARMARS GEFST ALMENNINGI TÆKIFÆRI TIL AÐ SKOÐA ALLT ÞAÐ NÝJASTA
SEM ER AÐ GERAST Í HEIMI VÖRUHÖNNUNAR, ARKITEKTÚRS, GRAFÍSKRAR
HÖNNUNAR OG TÍSKU SVO EITTHVAÐ SÉ NEFNT. VIÐBURÐIRNIR ERU MARGIR
OG VERÐUR ALLUR MIÐBÆRINN UNDIRLAGÐUR FRAM Á SUNNUDAG.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Glerjað samtal Á þessari sýningu í Hannesarholti
verða vörur og vinnustofa Studio Hönnu White-
head til sýnis. Gestum er boðið að raða saman og
móta framtíðina og sníða hana að eigin þörfum.
Lestrarhestar og Dalíur Katrín Ólína Pétursdóttir hef-
ur í samstarfi við málmiðjuna Stuðlaberg á Hofsósi
hannað seríu af stálhúsgögnum sem framleidd eru
með gamalli púströravél sem ekki hefur verið í notkun
í 20 ár. Þar má m.a. finna Einfaldan lestrarhest, sem er
færanleg bókahilla og Dalíu sem er lítill leslampi.