Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2015, Blaðsíða 48
107 hugmyndir
að betri hverfum
TÆP SJÖ PRÓSENT REYKVÍKINGA TÓKU ÞÁTT Í RAFRÆNNI KOSNINGU
UNDIR HEITINU BETRI HVERFI SEM LAUK NÝVERIÐ. ÞÁTTTAKA VAR
HELDUR MEIRI EN Í FYRRA; FÓR ÚR UM 5.200 GILDUM ATKVÆÐUM 2014 Í
TÆP 6.500 GILD ATKVÆÐI NÚ. ÚTHLUTA ÁTTI 300 MILLJÓNUM KRÓNA Í
VIÐHALDSVERKEFNI OG NÝFRAMKVÆMDIR EN AF ÞEIRRI FJÁRHÆÐ
VERÐUR 14 MILLJÓNUM SKILAÐ TIL BAKA Í BORGARSJÓÐ.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Reykjavíkurborg
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.3. 2015
Gróðursetja og búa til
setaðstöðu á horni Haga-
mels og Kaplaskjólsvegar.
Verð: 1.000.000 | Atkvæði: 433
Setja vatnshana á göngu-
stíg við Ægisíðu.
Verð: 3.000.000 | Atkvæði:
426
Bæta við leiktækjum á
valda leikvelli í Vesturbæ.
Verð: 9.000.000 | Atkvæði:
377
Setja lýsingu á valda leik-
velli í hverfinu.
Verð: 5.000.000 | Atkvæði:
370
Leggja gangstétt með-
fram KR-velli norðaust-
anmegin.
Verð: 15.000.000 | Atkvæði:
303
Setja tvo ruslastampa á
bílastæði við Túngötu 2.
Verð: 500.000 | Atkvæði: 300
Lagfæra stíg við Eiðs-
granda og Fjörugranda.
Verð: 3.000.000 | Atkvæði: 290
Vesturbær
36,5 milljónir |
7 verkefni
Fjölga ruslafötum í miðborginni.
Verð: 2.000.000 | Atkvæði: 398
Setja bekk á gönguleið á milli
Laugavegar og Sundhallar Reykja-
víkur.
Verð: 500.000 | Atkvæði: 317
Setja upp upplýsingaskilti um sögu
Grjótaþorps á leiksvæðið við
Grjótagötu 10.
Verð: 500.000 | Atkvæði: 290
Setja ruslastampa á biðstöðvar
Strætó við Hörpu.
Verð: 500.000 | Atkvæði: 281
Setja upp aparólu á lóð Austurbæj-
arskóla.
Verð: 4.000.000 | Atkvæði: 219
Koma upp fleiri hjólagrindum við
Sundhöll Reykjavíkur.
Verð: 2.000.000 | Atkvæði: 216
Setja bekki og lagfæra íverusvæðið í
Mæðragarði.
Verð: 3.000.000 | Atkvæði: 212
Gera gönguleið öruggari við gatna-
mót Þórsgötu og Njarðargötu.
Verð: 5.000.000 | Atkvæði: 207
Skammdegislýsing/stemningslýsing
á opna svæðið á milli Mjóstrætis og
Garðastrætis.
Verð: 3.000.000 | Atkvæði: 166
Setja þrengingu við NA-horn gatna-
móta Vitastígs og Grettisgötu.
Verð: 1.000.000 | Atkvæði: 165
Setja hraðahindrun („strætó-
kodda“ við NA-horn Hólavalla-
kirkjugarðs.
Verð: 1.000.000 | Atkvæði: 91
Miðborg
22,5 milljónir | 11 verkefni
Ný net í mörkin við Réttarholtsskóla.
Verð kr. 500.000 | Atkvæði: 463
Setja tvo bekki og ruslafötur á valda
staði í Fossvogi.
Verð kr. 1.000.000 | Atkvæði: 452
Gróðursetja fleiri tré meðfram Bú-
staðavegi.
Verð kr. 1.000.000 | Atkvæði: 423
Gróðursetja tré við Háaleitisbraut.
Verð kr. 3.000.000 | Atkvæði: 386
Lagfæra valda göngustíga í Fossvogi.
Stígarnir verða valdir eftir ástandi.
Verð kr. 10.000.000 | Atkvæði: 348
Fegra svæðið norðvestanmegin við
Kvistaborg með hellulögn, fuglapalli,
grasi o.fl.
Verð kr. 1.500.000 | Atkvæði: 340
Bæta lýsingu á opnum svæðum á milli
L- og M-landa og S- og T-landa í Foss-
voginum.
Verð kr. 2.000.000 | Atkvæði: 328
Lagfæra tröppur sem liggja frá Rétt-
arholtsvegi niður að Háagerði 69 og 79.
Verð kr. 1.000.000 | Atkvæði: 325
Setja upp skilti með götuheitum við
gatnamót Sogavegar og Tunguvegar.
Verð kr. 500.000 | Atkvæði: 299
Áningarstaður fyrir skokk- og hjóla-
hópa á opnu svæði á horni Traðarlands.
Verð kr. 2.500.000 | Atkvæði: 291
Fegra svæðið á milli Heiðargerðis og
Hvammsgerðis.
Verð kr. 1.000.000 | Atkvæði: 288
Laga gangstétt meðfram norðanverðri
Háaleitisbraut frá Lágmúla að Ármúla.
Verð kr. 4.000.000 | Atkvæði: 277
Breikka gangstétt við Bústaðaveg 49-
51.
Verð kr. 1.000.000 | Atkvæði: 269
Setja lýsingu á útivistarsvæðið á milli
Háaleitisbrautar 109 og 115.
Verð kr. 2.000.000 | Atkvæði: 257
Laga og fegra svæðið á milli Ásenda,
Básenda og Garðsenda og setja bekki.
Verð kr. 2.000.000 | Atkvæði: 235
Háaleiti og Bústaðir
33 milljónir | 15 verkefni
Setja nýja hringi á körfur á
körfuboltavelli á Klam-
bratúni.
Verð kr. 400.000 | Atkvæði:
317
Setja upp skilti á
Klambratúni með leið-
beiningum um útileiki.
Verð kr. 1.000.000 | Atkvæði:
297
Lagfæra gönguleið frá
Litluhlíð upp að Perlu og
Öskjuhlíð.
Verð kr. 5.000.000 | Atkvæði:
292
Setja upp nokkur skilti
um bætta umgengni
hundaeigenda á valda
staði.
Verð kr. 500.000 | Atkvæði:
290
Setja lýsingu á göngustíg-
inn á milli Gunnars-
brautar og Snorrabrautar.
Verð kr. 1.000.000 | Atkvæði:
274
Gera stríðsminjum í
Öskjuhlíð skil með fræð-
andi skiltum o.fl.
Verð kr. 5.000.000 | Atkvæði:
262
Setja upp skilti um sögu
bújarða á valda staði í
hverfinu.
Verð kr. 2.000.000 | Atkvæði:
252
Lagfæra grindverk við
Hlíðaskóla.
Verð kr. 2.000.000 | Atkvæði:
246
Boltaleikjaflöt á milli
Grænuhlíðar og Hamra-
hlíðar.
Verð kr. 1.500.000 | Atkvæði:
220
Gera rathlaupabraut í
Öskjuhlíð.
Verð kr. 1.500.000 | Atkvæði:
208
Leggja göngustíg frá
Stigahlíð að Miklubraut til
móts við Stigahlíð 2 og 4.
Verð kr. 4.500.000 | Atkvæði:
149
Mála hraðamerkingar á
vistgötur í Suðurhlíðum.
Verð kr. 1.000.000 | Atkvæði:
124
Hlíðar
25,4 milljónir | 12 verkefni
A
lls bárust um 700 hugmyndir að
verkefnum frá íbúum í hverfum
Reykjavíkurborgar. Af þeim
hugmyndum sem bárust kom-
ust 175 í atkvæðagreiðsluna
Betri hverfi. Að lokum hlutu 107 verkefni
kosningu í atkvæðagreiðslunni og eiga þau
verkefni því að koma til framkvæmda á árinu
2015.
Atkvæðagreiðslan snerist um að úthluta alls
300 milljónum króna af fé borgarbúa til
smærri nýframkvæmda annars vegar og við-
haldsverkefna hins vegar. Ekki hefur verið
tekið saman hversu stór hluti verkefnanna 107
telst til nýframkvæmda og hver þeirra eru
viðhaldsverkefni.
Reykjavíkurborg er skipt upp í tíu hverfi
og var fénu skipt þannig að hvert hverfi fékk
fast 7,5 milljónir króna til úthlutunar í at-
kvæðagreiðslunni og afgangnum var skipt í
takt við íbúafjölda hverfis. Þannig deildust 75
milljónir jafnt milli hverfa en 225 milljónir
deildust niður á hverfin eftir fjölda íbúa.
Á kjörskrá voru allir Reykvíkingar fæddir
1998 og fyrr, alls 94.219 einstaklingar.
Heimilt var að kjósa eins oft og hver vildi
en aðeins nýjasta atkvæðið gilti, þannig voru
6.496 gild atkvæði af 7.738 innsendum at-
kvæðum.
14 milljónir króna
renna aftur í borgarsjóð
Áætluð heildarupphæð þeirra 107 verkefna
sem kosin voru áfram til framkvæmda í at-
kvæðagreiðslunni nemur 286 milljónum króna.
Því var aðeins um 95% af heildarfjárhæðinni
ráðstafað, en samkvæmt reglum um rafrænar
kosningar Betri hverfa þá rennur það fé sem
ekki næst að að ráðstafa aftur í borgarsjóð.
Í ár renna því 14 milljónir aftur til baka í
borgarsjóð af þeim 300 sem úthluta átti í at-
kvæðagreiðslunni Betri hverfi.
„Við talningu atkvæða eru öll atkvæðin í
viðkomandi hverfi talin og verkefnum raðað
eftir fjölda atkvæða. Því verkefni sem hefur
fengið flest atkvæði í viðkomandi hverfi er
stillt upp og kostnaðurinn við verkefnið dreg-
inn frá heildarfjárheimildinni. Því næst er það
verkefni sem næstflest atkvæði hefur hlotið
borið saman við það sem eftir er af fjárheim-
ildinni. Ef verkefnið rúmast innan fjárheim-
ildar er það sett á lista valinna verkefna. Ef
það rúmast ekki innan heimildarinnar því
sleppt og það þriðja atkvæðamesta er skoðað.
Svona gengur þetta kolli af kolli þar til fjár-
heimildin hefur öll verið notuð eða hún orðin
of lítil fyrir nokkur þeirra verkefna sem eftir
eru.
Af þessu leiðir að staðið getur eftir t.d.
700.000 af fjárheimild hverfis en aðeins verk-
efni sem kosta 1.000.000 eða meira standa eft-
ir og þá er ekki hægt að fullnýta fjárheimild-
ina,“ segir Sonja Wiium verkefnisstjóri á
skrifstofu borgarstjóra.
Nýting þess fjár sem ráðstafa átti gegnum
Betri hverfi er heldur lakari en í atkvæða-
greiðslum 2013 og 2014. Síðustu tvö ár hafa
2-3% fjármagns runnið aftur í borgarsjóð af
þeirri upphæð sem úthluta átti upphaflega, en
nú renna tæp 5% aftur í borgarsjóð.