Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Page 15
vinnudaginn er alltaf eitthvað
skemmtilegt um að vera hjá okkur
sem vinnum um borð og þar sem
við siglum frá Flórída til Bahama-
eyja kíki ég nú oft á ströndina líka.“
En hefði hún getað ímyndað sér
fyrir nokkrum árum að hún yrði
aðalstjarnan í stórsýningu um borð í
Disney-skemmtiferðaskipi?
„Ég hefði kannski ekki alveg
ímyndað mér að ég væri að gera
nákvæmlega þetta, en ég hef aldrei
verið hrædd við að stökkva á tæki-
færin þegar þau gefast og þess
vegna hefur líf mitt oft tekið óvænta
stefnu. Þetta hefur kennt mér samt
betur en margt annað að maður á
aldrei að hætta að trúa á draumana
sína og fylgja eftir því sem maður
trúir á, alveg þangað til það tekst.
En þetta hefur verið algjört
ævintýri jú og þeir hafa tekið þetta
svo miklu lengra en ég þorði að
vona í byrjun og svo margt sem
ennþá getur komið í kjölfarið.
Það sem hefur verið frábært líka
er að ég hef svo gott rými og tíma
til að semja um borð í skipinu. Ég
er með stúdíó og flygil þannig að ég
hef getað nýtt tímann hérna mjög
vel í að semja fyrir plötuna mína.“
Greta Salóme undirbýr
nú sýningu þar sem hún
flytur eigin tónlist um
borð í einu stærsta
skemmtiferðaskipi Disney.
Hún segist alltaf hafa ver-
ið óhrædd við að stökkva
á ný tækifæri.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
* Ég hef aldrei litið á mig sem einungishljóðfæraleikara eða einungis söng-konu eða einungis lagahöfund eða tón-
skáld. Ég lít á mig sem tónlistarkonu.
Menntun mín og bakgrunnur hefur gert
mér kleift að starfa við klassískan tónlist-
arflutning á hljóðfærið mitt en hún hefur
líka gert mér kleift að hugsa út fyrir kass-
ann og semja mína eigin tónlist og flytja
hana. Þetta er allt samtengt einhvern veg-
inn. Lagasmíðarnar mínar eru samt í aðal-
hlutverki núna en inn í þær fléttast auðvit-
að að einhverju leyti bakgrunnur minn.
15.3. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Skipið sem Greta Sal-
ome hefur siglt með
síðustu mánuði heitir
Disney Dream en nýja
sýningin hennar verður
á öðru skipi sem heitir
Disney Magic.
Það skip tekur 2.700
farþega en í áhöfn eru
alls um 950 manns.
Skipið er á ellefu hæð-
um og um borð er allt
til alls. Nokkrar sund-
laugar, líkamsrækt-
arsalir, leikhús, tónleika-
staðir, veitingahús og
fleira og fleira. Disney fígúrur sjást á ferð og flugi og mikil áhersla er
lögð á vönduð skemmtiatriði og lifandi tónlistarflutning til að
skemmta gestum.
Farþegarnir sem hafa notið tónlistar Gretu Salóme á Disney
Dream eru iðnir við að deila aðdáun sinni á Facebook. Dómar
áhorfenda eru allir á einn veg: Greta Salóme er frábærog gerir sigl-
inguna eftirminnilega.
Disney Magic er eitt af fjórum skemmtiferðaskipum Disney. Greta Sal-
óme hefur góða aðstöðu til tónsmíða um borð.
AFP
GRETA SALÓME Á DISNEY MAGIC
Siglir um höfin með
þúsundum gesta
Greta Salóme flytur eigin tónlist um borð í skipunum og sólóplatan hennar In
the Silence rýkur jafnan út eftir tónleika.
Nýja sýningin sem Greta Salóme undirbýr fyrir Disney Magic er stórt skref
fram á við. Hún flytur tónlist sína fyrir þúsundir manna í viku hverri.
Greta notar tímann þegar hún er ekki að flytja tónlist til að halda sér í formi.
Strandlífið er ljúft á milli siglinga og tónleikahalds.
Greta Salóme hóf fiðlunám fjögurra ára og þegar hún vann Söngvakeppnina
2012 var fiðlan að sjálfsögðu hluti af flutningnum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári