Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Side 16
Ashraf er fæddur 15. mars 2011, sama dag og stríðið braust út. Hann fæddist í
borginni Homs í Sýrlandi og neyddist til að flýja landið ásamt fjölskyldu sinni.
Þau hafa hafst við í flóttamannabúðum í Líbanon síðan þá.
Öll börn eiga rétt á menntun og að fá að rækta og þroska hæfileika sína. Öll börn eiga að hafa sömu tækifæri fyr-
ir framtíðina, sama hvar í heiminum þau kunna að hafa fæðst. Alyssa Herdís T. Laguna, Ari Oddsson, Jóel Saavedra
Agnarsson og Freyja Björk Elvarsdóttir vilja styðja börn í Sýrlandi til betri framtíðar.
Börn á Íslandi styðja réttindi barna til menntunar og
betri framtíðar. Þessir duglegu krakkar, þau Alyssa
Herdís T. Laguna, Ari Oddsson, Jóel Saavedra Agn-
arsson og Freyja Björk Elvarsdóttir eru öll fædd 15.
mars árið 2011, sama dag og stríðið í Sýrlandi braust
út. Þau komu á skrifstofu UNICEF og lýstu yfir
stuðningi við börn í Sýrlandi sem nú eiga um sárt að
binda. Frá því að átökin brutust út í Sýrlandi hafa
fleiri en 7,5 milljónir barna neyðst til að flýja stríðið
og yfirgefa heimili sín. Þau eru ýmist á vergangi innan
landsins eða hafa flúið yfir til nágrannaríkjanna. UNI-
Börn styðja börn til
betri framtíðar
FLEIRI EN 7,5 MILLJÓNIR BARNA HAFA NEYÐST TIL AÐ YFIRGEFA HEIMILI SÍN Í SÝRLANDI
FRÁ ÞVÍ ÁTÖK HÓFUST ÞAR 15. MARS 2011. BÖRN FÆDD SAMA DAG OG STRÍÐIÐ BRAUST
ÚT KOMU SAMAN Í HÖFUÐSTÖÐVUM UNICEF Á ÍSLANDI TIL AÐ STYÐJA BÖRN Í NEYÐ.
CEF hefur staðfest að fleiri en 8.000 börn hafa farið
fylgdarlaus yfir landamærin. Fleiri en 114.000 sýrlensk
börn hafa fæðst sem flóttamenn og aldrei séð heima-
land sitt.
Menntun skiptir sköpum
Frá upphafi átakanna hefur UNICEF veitt sýr-
lenskum börnum neyðarhjálp á borð við hreint vatn,
heilsugæslu og bólusetningar, hlý vetrarföt, sálrænan
stuðning og menntun. Menntun skiptir sköpum í þeirri
uppbyggingu sem framundan er í Sýrlandi.
Ibrahim er 9 ára og situr hér einbeittur við námið í skóla sem komið hefur ver-
ið upp í Domiz-flóttamannabúðunum í Írak. Ibrahim er í þriðja bekk og líkt og
bekkjarsystkini hans flúði hann átökin í heimalandi sínu, Sýrlandi. Hann ætlar
að verða læknir þegar hann verður stór.
Waffa hefur varla mælt orð frá vörum síðan hún missti föður sinn þegar ráðist
var á heimili fjölskyldunnar í Sýrlandi. Börn hafa orðið vitni að hræðilegum
hlutum í stríðinu sem nú hefur geisað í fjögur ár. Sálræn aðstoð er stór hluti af
því starfi sem UNICEF gegnir fyrir flóttabörn frá Sýrlandi.
FJÖGUR ÁR LIÐIN FRÁ UPPHAFI ÁTAKANNA Í SÝRLANDI
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2015
Fjölskyldan Hvar og hvenær: Borgarbókasafninu, Grófinni 1, kl. 15-17.Nánar: Haldin verður origami-smiðja fyrir börn og fjölskyldur þeirra í
umsjón Jóns Víðis. Origami er japönsk pappírslist. Allt efni er á staðn-
um en eina sem þarf meðferðis er góða skapið og smá þolinmæði.
Föndurdagur á bókasafninu
TÖLVUDEILD - ÁRMÚLA 11 - SÍMI 568 1581
www.thor.is
115.0
00,-EB-W28
Skjáv
arpi
Einfaldur og öflugur skjávarpi sem hentar við flestar aðstæður, hvort sem er í
skólastofu, fundarherbergi, á ferðinni eða heima í stofu. Virkar vel í dagsbirtu
(3000 lumens) og sýnir skarpa og bjarta mynd.
Líftími peru er allt að 5000 klukkutímar miðað við hefðbundna notkun, en allt að
6000 klukktímar í sparnaðarham.
• 1280 x 800, upplausn (16:10) og allt að 320" myndsvæði (280 cm).
• Birtustig 3000 lumens, 10000:1 skerpa (contrast).
• HDMI, VGA, S-Video, USB 2.0, Composite ofl. tengimöguleikar.
• Mögulegt að gera þráðlausan (aukahlutur).
• Þægileg taska fylgir.
EPSON EB-W28
Nánari upplýsingar um EPSON skjávarpa, prentara og fleiru tengdu EPSON.
UNICEF og Fatimusjóður standa
nú fyrir neyðarsöfnun fyrir
menntun og framtíð sýrlenskra
flóttabarna.
Með því að senda sms-ið
BARN í símanúmerið 1900
(1.490 krónur) er hægt að út-
vega sýrlensku barni pakka af
námsgögnum og búa það undir
betri framtíð.
Neyðarsöfnun