Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Blaðsíða 18
S
umir vilja meina að Orlando sé
í eðli sínu yfirborðskennd
borg. Þegar gengið er um
skemmtigarðana er allt um-
hverfið manngert, og tandurhreinar
göturnar í Disney World eru í raun
sviðsmyndir. Þar eru engin heims-
fræg listasöfn, aldagamlir kastalar
eða rótgróin óperuhús.
En það ætlast heldur enginn til þess
af Orlando að vera eins og Prag eða
París, New York eða London. Orlando
er eitthvað allt annað, yndislegur þykj-
ustustaður þar sem allt er fullkomið og
gjörsamlega ómögulegt að vera í fýlu.
Þar sem Mikki er kóngur
Þegar komið er til Orlando verður
vitaskuld að fara í skemmtigarðana.
Disney World er efst á listanum, og
gott að taka frá tvo daga hið minnsta
til að skoða allt það sem garðurinn
hefur upp á að bjóða. Ef valinn er
dagur þar sem mjög lítið er af gest-
um og biðraðirnar stuttar má, með
lagni, sjá og prufa margt á einum
löngum degi.
Ekki gleyma að heilsa upp á Andr-
és og bera honum hlýjar kveðjur frá
aðdáendunum uppi á Íslandi, sem
skilja ekkert í því af hverju Banda-
ríkjamenn virðast halda mun meira
upp á Mikka.
Ekki má heldur sleppa Universal
Studios-skemmtigarðinum. Nýjasta
viðbótin þar er svæði tileinkað Harry
Potter sem hefur meðal annars að
geyma framúrskarandi innanhús-
rússíbana sem notar nýjustu tækni til
að senda gesti á ótrúlegt ferðalag.
Eru þá ótaldir skemmtilegu vatn-
garðarnir, þar sem öll fjölskyldan get-
ur tekið lit, eða golfvellirnir fyrir þá
sem geta ekki staðist vandlega snyrt-
ar grasflatir.
Verslunarparadís
Til að fullnýta farangursheimildina á
bakaleiðinni er upplagt að kíkja í
verslunarmiðstöðvar eins og Orlando
Mall fyrir breitt úrval, The Mall at
Millenia fyrir fínni merkin og Int-
ernational Premium Outlets fyrir út-
söluvörurnar.
Rétt er að taka af allan vafa um að
Orlando er ekki bara fyrir fjölskyldu-
fólk eða golfara á besta aldri. Þar er
gaman að ferðast einn, skjótast með
kærustunni eða kærastanum, eða
sletta úr klaufunum með vinahópnum.
Alls kyns formlegir og óformlegir við-
burðir fyrir fullorðna lífga þar upp á
árið, eins og Gay Days í júní þar sem
hommar og lesbíur leggja undir sig
Disney World og skemmta sér kon-
unglega.
Ljósmyndir / Wikipedia - Carlos Cruz og Chensiyuan; Flickr - Josh Hallett (CC)
Hogwarts-skóli í risavöxnum Universal Studios
skemmtigarðinum geymir framúrskarandi rússíbana.
ÁFANGASTAÐUR VIKUNNAR: ORLANDO
Þar sem allir dagar
eru skemmtilegir
BORGIN ORLANDO Í MIÐJU FLÓRÍDARÍKI HEFUR BYGGST UPP Í
KRINGUM SKEMMTIGARÐA OG VERSLUNARMIÐSTÖÐVAR. ÞAR
HEFUR VERIÐ HUGSAÐ FYRIR ÖLLU, FYRIR ALLA.
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Ferðalög
og flakk *Icelandair flýgur beint til Orlando, að jafnaðiþrisvar í viku til 2. júní og flogið á Sanford-flugvöllinn norðaustan við borgina. Síðanhefst flug aftur 5. september, þrisvar til fjór-um sinnum í viku, og verður þá framvegisflogið á alþjóðaflugvöllinn, MCO. Er það mik-il framför því þaðan eru mun betri tengingar
bæði innan Bandaríkjanna og til skemmtilegra
áfangastaða sunnar í Ameríku.
Skipta um flugvöll
Það er gaman að fara í tæki skemmtigarðanna en
drepleiðinlegt að bíða í löngum röðunum. Á
þeim dögum sem mest er að gera má alveg eiga
von á að biðin eftir að komast í skemmtilegustu
rússíbanana sé um og yfir hálftími,
í steikjandi sólinni.
Þeir útsjónarsömu reyna að
tímasetja skemmtigarðaferðirnar
þannig að sem minnst sé af öðr-
um gestum til að þvælast fyrir. Til
eru vefsíður sem gagngert reyna að kortleggja
gestafjöldann eftir dögum og tímum dags, en alla
jafna má stóla á að kraðakið sé mun minna
fyrstu vikur ársins, svo frá september fram í
miðjan nóvember og fyrri hluta desember.
Garðarnir eru líka ekki of þétt setnir daginn
sem Super Bowl-íþróttaviðburðurinn er hald-
inn, því þá situr þorri landsmanna heima, límdur
við sjónvarpsskjáinn.
Disney World er stórfenglegur
staður þar sem gestir eru leiddir
í gegnum snuðrulausa upplifun.
Byggingin Spaceship Earth í Disney World er mikið meistaraverk og áhugaverð fyrir unnendur arkitektúrs.
VAÐIÐ BEINT Í TÆKIN
Styttri raðir á
ákveðnum dögum