Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2015
Heilsa og hreyfing
N
ý rannsókn leiðir í ljós að
mataræði sem samanstendur
af grænmeti og einhverjum
fiski sé besta leiðin til að
koma í veg fyrir ákveðna tegund krabba-
meina. Rannsóknin var birt í vikunni af
vef Journal of the American Medical
Association. Þar segir að grænmetisætur
sem borði fisk séu í 43% minni hættu á
því að fá ristilkrabbamein en þeir sem
eru ekki grænmetisætur. Þetta er betri
niðurstaða en hjá vegan-ætum en hjá
þeim minnkaði hættan um 16%. Græn-
metisætur sem borða líka mjólk og egg
eru í 18% minni hættu. Þegar allt er
tekið saman eru grænmetisætur af ýmsu
tagi að meðaltali í 22% minni hættu á
því að fá ristilkrabbamein en kjötæt-
urnar.
Að sögn vísindamanna eru áhrifin af
fiskátinu jákvæð væntanlega vegna
omega-3 fitusýra. Þeir taka fram að kjöt-
æturnar í rannsókninni borði minna kjöt
en Bandaríkjamenn gera að meðaltali.
Ristilkrabbamein er næstbanvænasta
krabbameinið í Bandaríkjunum á eftir
lungnakrabbameini. Fyrri rannsóknir hafa
leitt í ljós að mataræði sem byggist á
kjöti, ekki síst unnum kjötvörum, getur
aukið áhættuna á þessu krabbameini.
Allt sjöunda dags aðventistar
Höfundur nýju rannsóknarinnar er Mich-
ael Orlich hjá Loma Linda-háskólanum í
Kaliforníu. Teymi hans rann-
sakaði mataræði og
læknaskýrslur
tæplega áttatíu
þúsund mans
á yfir sjö ára
tímabili.
Fólkið er allt
sjöunda dags
aðventistar. Það
var að hluta til
valið vegna þess að
trú þess hvetur það til
heilbrigðra lifn-
aðarhátta. Fyrri
rannsóknir á
þessum hópi hafa
leitt í ljós að
mataræði fólks-
ins er tengt
minnkaðri áhættu
á offitu, sykursýki og
of háum blóðþrýstingi.
Að sögn vísindamannanna eru græn-
metisætur í minni áhættu á að fá rist-
ilkrabbamein, ekki aðeins af því að þær
borði ekki kjöt heldur af því að þær
borði meira af grænmeti en aðrir.
„Trefjaríkt mataræði tengist minni áhættu
og trefjar koma úr heilu grænmeti og
þetta gæti verið stór þáttur í þessari
minnkuðu áhættu,“ sagði dr. Orlich.
MATARÆÐI SEM MINNKAR HÆTTU Á RISTILKRABBAMEINI
Meira grænmeti
er gott fyrir
ristilinn
FÆÐI SEM SAMANSTENDUR AF GRÆNMETI OG FISKI MINNKAR HÆTTUNA
Á RISTILKRABBAMEINI, SAMKVÆMT NÝRRI RANNSÓKN. OMEGA-3 FITUSÝR-
UR HAFA JÁKVÆÐ ÁHRIF OG SÖMULEIÐIS PLÖNTUTREFJARNAR.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Omega-3 fitusýrur
er að finna í laxi.
Fólk hefur ef til vill heyrt um kaffi með kókosolíu og smjöri (um matskeið af hvoru) en það
nýjasta nýtt er að fara að ráðum næringarþerapistans Þorbjargar Hafsteinsdóttur og bæta
stykki af kakósmjöri út í kaffið. Mikilvægt er að smjörið sé ósaltað og einnig lífrænt sé þess
nokkur kostur. Öllu er blandað saman í blandara í nokkrar sekúndur þangað til það freyðir.
Kaffi með kókosolíu og kakósmjöri
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino
Búningar í Freestyle-keppninni hafa
verið með ýmsum hætti og í gegn-
um árin hefur mátt greina ákveðna
tísku. Hér að ofan má sjá Íslands-
meistarana í hópnum Blitz dansa
sigurdansinn árið 1987. Hópurinn
var frá Jazzballetskóla Báru. Hann
skipuðu Elma Lísa Gunnarsdóttir,
Sara Stefánsdóttir, Þórunn Birna
Guðmundsdóttir og Ásgerður
Kjartansdóttir. Elma Lísa, sem nú
er þekkt leikkona, var ennfremur
sigurvegari einstaklingskeppninnar
þetta ár.
Í öðru sæti árið 1987 var Cleó
frá Djazzneistanum í Garðabæ og
Veirurnar frá Dansnýjung í Reykja-
vík hrepptu þriðja sætið.
Selma Björnsdóttir, söng- og
leikkona, dansari, leikstjóri og
danshönnuður dansaði til sigurs ár-
ið 1990 eins og sést hér að ofan.
Freestyle-keppnin í Tónabæ
Hér dansa Íslandsmeistararnir í Blitz sigurdansinn árið 1987 í hópariðli en
hópurinn var frá Jazzballetskóla Báru.
Morgunblaðið/ Þorkell
Stelpurnar í hópnum HANS taka á
móti verðlaununum árið 1990.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Embætti landlæknis ráðleggur nú aukna neyslu á jurtaafurðum og minni neyslu dýraafurða.