Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Blaðsíða 25
15.3. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Þegar veðrið er ekki upp á sitt besta er kjörið að fara í líkamsræktarstöð
til að hreyfa sig. Nú eða gera jóga heimavið. Bara taka fram dýnuna og
gera nokkrar sólarhyllingar inni í stofu. Kannski sólin taki að skína?
Sólarhylling í stofunni*Það er aðeins tvennt sem gerirlífið þess virði að því sé lifað:Kærleikur og list.
Somerset Maugham
Á meðfylgjandi myndum má sjá
indversk módel ganga framhjá vist-
vænu einingaklósetti á heldur sér-
stakri tískusýningu í Bangalore fyrr
í mánuðinum. Með þessum ferða-
salernum fyrir almenning leggur
einkafyrirtæki baráttunni fyrir
hreinu Indlandi lið í átakinu
„Swachh Bharat“.
Klósettin eru vistvæn og borgar
almenningur fyrir notkun þeirra.
Vatnið sem rennur úr þeim er nýtt
fyrir nærliggjandi græn svæði. Enn-
fremur fá þeir sem heimsækja sal-
ernin ókeypis þráðlausa netteng-
ingu í tíu mínútur.
Áherslan er á hið vistvæna og í leiðinni hreinna Indland.
AFP
Vistvæn einingaklósett
Salernin eru fyrir almenning.
AFP
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Ný sending af
Kolibri penslum
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
VanGogh
hágæða olíulitir
og Amsterdam
Akrýllitir
á frábæru
kynningartilboði
Kolibri trönur
í miklu úrvali,
gæðaværa
á góðu verði
Varnarjaxlinn Matthías Árni Ingimarsson er fyrirliði Hauka í
handknattleik auk þess að vera lærður ljósmyndari.
Íþróttagrein: Handknattleikur.
Atvinna: Rek lítið dreifingarfyrirtæki ásamt nokkrum vinum
mínum sem sérhæfir sig í dreifingu á íslenskri tónlist, heim-
ildarmyndum og bókum. Svo tek ég að mér hin og þessi ljós-
myndaverkefni, allt frá því að mynda brúðkaup fyrir vini
mína í að taka myndir fyrir matreiðslubækur og allt þar á
milli.
Hversu oft æfir þú í viku? Það fer svolítið eftir því hvaða
hluti handknattleikstímabilsins er í gangi. Þegar keppn-
istímabilið er í fullum gangi þá eru það fimm til sex æfingar í
viku og oftast einn leikur í viku, geta verið tveir. Þegar tíma-
bilinu lýkur er tekin stutt pása og svo í framhaldi gott fjög-
urra til fimm vikna lyftingaprógramm þar sem unnið er í upp-
byggingu. Sumarfrí hjá handknattleiksfólki er ekki mikið,
oftast í kringum mánuður, þá er maður sjálfur að halda sér
við með nokkrum lyftingaæfingum í viku og hlaupum inn á
milli. Að því loknu hefst svo undirbúningstímabilið og oftast
er byrjað viku fyrir verslunarmannahelgina og æft stíft fram
að fyrsta leik. Þá geta æfingarnar verið átta til tíu í viku, þá er
unnið með úthald, kraft og verið að koma sér í spilform fyrir átök
vetrarins.
Hver er lykillinn að góðum árangri? Held að það sé eins í
íþróttum og með annað í lífinu, þú verður að elska það sem þú
gerir, ef ekki þá gefurðu þig aldrei 100% í verkefnið.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira? Besta ráðið
sem mér dettur í hug er að ofgera sér ekki strax. Það er auðvelt
að keyra allt á fullt í byrjun og hreinlega fá fljótt leið á því sem
maður er að gera eða jafnvel meiðast. Frekar byrja rólega og
vinna sig upp. Velja sér eitthvað skemmtilegt sem virkar til lengri
tíma heldur en að leita að skammtímalausnum.
Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð í frí? Eins og ég
sagði áðan þá er fríið okkar ekki langt í handboltanum og það
kemur fyrir að maður þarf að nota það til dæmis til að ná sér af
meiðslum. Þá þarf maður svolítið að taka mið af því þegar maður
er að viðhalda forminu en oftast er það lyftingaprógramm í bland
við útihlaup. Finnst reyndar fátt skemmtilegra en að renna mér á
hjólabretti í góðra vina hópi en veit ekki alveg hvort það hjálpar
til með formið. Ég og kærastan mín vorum svo að fá okkur mjög
hressan hvolp fyrir nokkrum vikum og ég er nokkuð viss um að
hann eigi eftir að hjálpa manni mikið með formið um ókomin ár.
Ertu almennt meðvitaður um mataræðið? Hef oft grínast með
það að ég sé á 7-0-kúrnum, borða það sem ég vil sjö daga vik-
unnar. En auðvitað er maður meðvitaður um það sem maður læt-
ur ofan í sig.
Ég er mikið á flakki í miðbæ Reykjavíkur vegna vinnu og há-
degismaturinn er því oft tekinn á veitingastað í miðbænum. Það
eru margir staðir í bænum sem bjóða upp á frábæran fisk og er-
um við vinnufélagarnir duglegir að fara á staði eins og Ostabúðina
við Skólavörðustíg, Kaffivagninn úti á Granda, Þrjá Frakka og
Verbúð 11 og fá okkur fiskrétti dagsins. Svo hafa Solla og Elli á
Gló verið dugleg að styðja við bakið á okkur í Haukunum þannig
að maður er tíður gestur hjá þeim.
Hvaða óhollusta freistar þín? Alveg fullt! Ég er ekki mikið fyrir
sætindi og með sykurþörf í algjöru lágmarki en aftur á móti er
saltþörfin meiri og ég get alveg gleymt mér með góðan snakk-
poka.
Hvaða gildi hefur hreyfing fyrir þig? Hreyfing er það stór hluti
af mínu daglega lífi og hefur verið það í fjölmörg ár, að ég get
ekki ímyndað mér hvernig lífið væri án hreyfingar. Gott dæmi um
það er þegar ég var að læra úti í Bandaríkjum fór ég að líta í
kringum mig og fann handboltalið sem æfði einu sinni í viku á
sunnudögum. Ákvað að skella mér á æfingu með þeim án þess að
átta mig alveg á hversu mikil keyrsla væri í vændum. Tók mig
góðar 90 mínútur að komast á æfingu og annað eins að keyra
heim. Lét mig þó hafa það og skellti mér í þennan góða sunnu-
dagsrúnt vikulega í næstum tvö ár.
Af hverju eru Íslendingar svona hrifnir af handbolta? Ætli það
sé ekki vegna þess að hann hefur orðið hluti af uppeldi okkar
hvort sem fólk er þátttakendur eða áhorfendur. Það hafa flestir
skoðanir á honum og ætli það eigi ekki við um allar þjóðaríþróttir.
Er gaman að ljósmynda handboltamenn eða kýstu heldur önn-
ur viðfangsefni? Held að ég kjósi frekar önnur viðfangsefni, hef
aldrei almennilega komist upp á lagið með að mynda íþróttir en
kannski fer ég að gera meira af því þegar skórnir verða komnir á
hilluna.
Er Hafnarfjörður besti bærinn? Ef þú spyrð Hafnfirðing þá er
svarið JÁ! Bjó í Reykjavík og erlendis í rúm tíu ár og lítið annað
sem kom til greina þegar ég flutti heim en að fara aftur í fjörðinn
fagra.
Hverjar eru fyrirmyndir þínar? Þær eru margar, flestar þeirra
góðir vinir og fjölskyldumeðlimir og hver og ein þeirra fyrirmynd
á sínu sviði.
Er á 7-0-kúrnum
Morgunblaðið/Júlíus
KEMPA VIKUNNAR MATTHÍAS ÁRNI INGIMARSSON