Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Page 26
Húsið er fallegt að utan sem innan en það
var upprunalega byggt sem einbýlishús.
Morgunblaðið/Eggert
H
úsið í Vesturbænum var
byggt 1928. Jónatan Þor-
steinsson byggði húsið og
bjó þar ásamt fjölskyldu
sinni í nokkurn tíma. Upprunalega var
húsið byggt sem einbýlishús en nú
eru þar fjórar íbúðir ásamt rúmgóðu
lofti.
Upphaflega var eldhúsið á neðri
hæðinni. Þar var matarlyfta upp í
borðstofuna og á háaloftinu var síðan
pláss fyrir vinnukonur þar sem nú eru
herbergi sem systurnar leigja út,
meðal annars til háskólanema.
Fjórar íbúðir eru nú í húsinu og
hafa systurnar komið sér vel fyrir
hvor á sinni hæðinni.
Miðrýmið er með því skemmtilegra
sem fyrirfinnst. Marmaraarinn, lista-
verk og fallegur stigi mynda ómót-
stæðilega umgjörð í miðrýminu.
Ágústa Ingólfsdóttir býr á efri hæð
hússins. Heimildarmyndin Salóme eft-
ir Yrsu Rocu Fannberg um veflista-
konuna Salóme Herdísi Fannberg var
tekin í íbúð Ágústu en Salóme hafði
búið í íbúðinni í áraraðir.
„Hér er eiginlega innangengt í
Björnsbakarí,“ segir Ágústa þegar
hún ber fram vínarbrauðin og bætir
við að hún kaupi vínarbrauðin heit á
morgnana.
Ágústa segist njóta sín vel í eldhús-
króknum og bætir við að þegar fjöl-
skyldan kemur í heimsókn komi sér
flestir vel fyrir í eldhúskróknum.
„Borðið er hægt að stækka en þegar
ég er með saumaklúbb eða þegar fjöl-
skyldan kemur þá færi ég borðið fram
og hef borðstofuna í annarri stofunni.“
Ágústa hefur mikinn áhuga á
myndlist og er nemi í myndlistarskól-
anum í Kópavogi. Þónokkuð af fal-
legum verkum Ágústu prýðir veggina.
„Það er alltaf nóg að gera hjá okk-
ur og hef ég aldrei haft eins mikið að
gera og eftir að ég hætti að vinna,“
segir Ágústa og hlær. Systurnar segja
það afskaplega notalegt að vera svona
nálægt hvorri annarri en hafa sitt
pláss engu að síður. Þá eru þær dug-
legar við að rækta garðinn, sem ber
af görðum í Reykjavík og drekka þær
jafnframt morgunkaffið gjarnan á
sameiginlegum svölum hússins.
„Það er svo dásamlegt andrúmsloft
í húsinu,“ segir Björg Ingólfsdóttir,
sem býr á neðri hæðinni en mikill vin-
skapur hefur myndast á milli allra
íbúanna í húsinu.
„Á stríðsárunum var afgreitt Fish
& Chips í gegnum gluggann þar sem
klósettið er hjá mér núna,“ segir
Björg. Þá komu strákarnir og keyptu
af þáverandi húsfrú og úr varð nokk-
urs konar sjoppa.
Íbúð Bjargar er ákaflega björt og
heillandi. „Mér finnst ofboðslega nota-
legt að fylgjast með traffíkinni í göt-
unni þegar ég sit við borðstofuborðið
og horfa út í fallega garðinn á sumr-
in,“ segir Björg spurð hver sé hennar
eftirlætisstaður í íbúðinni. Báðar
keyptu þær systur íbúðirnar í húsinu
um aldamótin og fluttu síðan úr
stærri húsum en hafa með lagni inn-
réttað íbúðir sínar í fallegum stíl.
Mildir litir einkenna íbúðirnar, eldri
húsgögn og vönduð setja jafnframt
notalegan svip á þessi fallegu heimilli.
Systurnar Ágústa og Björg Ingólfsdætur segja notalegt að búa í sama húsi.
SYSTUR Í SAMA HÚSI
Dásamlegt and-
rúmsloft í húsinu
SYSTURNAR ÁGÚSTA OG BJÖRG INGÓLFSDÆTUR HAFA KOMIÐ
SÉR VEL FYRIR HVOR Í SINNI ÍBÚÐINNI Í FALLEGU HÚSI Í VEST-
URBÆNUM SEM UPPRUNALEGA VAR BYGGT SEM EINBÝLISHÚS.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Marmaarinninn í miðrými hússins er
einstakur. Örninn eftir Guðmund frá
Miðdal er tignarlegur fyrir ofan arininn.
Morgunblaðið/Golli
Sameiginlegt miðrýmið er
einstakt. Falleg myndlist og
notaleg umgjörð skapar
notalega stemningu.
Heimili
og hönnun
Götupartí á HönnunarMars
Morgunblaðið/Eggert
*Hljómsveitir og tónlistarmenn, hönnuðir og arki-tektar mætast í pop-up borg framtíðarinnar í portiListasafns Reykjavíkur. Kraumur tónlistarsjóður ogHönnunarsjóður Auroru bjóða í skemmtilegt götu-partí en þar koma fram þeir Retro Stefson, Sin Fang,Samaris, Snorri Helgason, Bjargey & Gígja úr YLJU,Valdimar Guðmundsson & Örn Eldjárn. Götupartíið
hefst kl. 21 laugardaginn 14. mars í Listasafni Reykja-
víkur, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík.