Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Qupperneq 30
Skinkusalat í eggjabikar
4 skinkusneiðar, smátt skornar
4 msk. smátt skorin rauð paprika
½ dós sýrður rjómi
2 msk. majónes
2 msk. rauðlaukur
Blandið öllu saman í skál og skipt-
ið í nokkra eggjabikara. Stingið
litlu saltkexi ofan í hvern bikar eða
berið fram með brauði.
Getty Images/iStockphoto
Páskaeggjahummus
5 egg
1 bolli hummus
½ bolli smátt skorin gúrka
2 msk. smátt skornar
radísur
1 msk. ferskar kryddjurtir
eftir smekk
3 msk vorlaukur
Harðsjóðið egg, kælið og
fjarlægið rauðurnar.
Leggið á disk og fyllið í
rauðunnar stað með
hummus. Blandið saman
gúrkunni, radísum,
kryddjurt og vorlauk í
glas. Skreytið með salati,
gúrku- og radísusneiðum.
ALLS KYNS LJÚFFENGT UM PÁSKANA
Undirbúðu páska-
morgunverðinn
ÞAÐ STYTTIST Í PÁSKANA OG UM AÐ GERA AÐ TÍNA TIL SPENNANDI HUGMYNDIR AÐ
HÁTÍÐLEGUM „BRUNCH“ FYRIR FJÖLSKYLDU EÐA VINI. HÉR ERU NOKKRAR HUGMYNDIR
AÐ RÉTTUM ÞAR SEM EGG ERU AÐ SJÁLFSÖGÐU Í AÐALHLUTVERKI OG ERU RÉTTIRNIR
BÆÐI LJÚFFENGIR EN EKKI SÍÐUR FAGRIR Á AÐ LÍTA. ÞETTA ERU FLESTALLT SMÁRÉTTIR OG
HVER UPPSKRIFT MIÐAST VIÐ FJÓRA, NEMA KJÖTHLEIFURINN SEM DUGAR SEX MANNS.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Bráðinn hátíðarmorg-
unverður
2 mozzarellakúlur, skornar í bita
4 tómatar
4 egg
oregano
lúka fersk basilíka
salt og pipar eftir smekk
smjör
Notið fjögur lítil eldföst form
eða bolla sem mega fara inn í
ofn. Smyrjið með smjöri og
setjið ostinn, tómatana í
sneiðum og brjótið eitt egg í
lokin út í hvert mót. Kryddið.
Stráið ferskri basilíku yfir þeg-
ar tilbúið.
Matur
og drykkir
Fyrir yngstu kynslóðina
Getty Images/iStockphoto
*Það þarf ekki mikið til að gleðja þau yngstu og allraskemmtilegast þykir þeim að sjá alls kyns fígúrur á borðum.Það má skreyta harðsoðin egg með grænmeti og búa tilkrúttsprengjur eins og þessa hænuunga. Hér er notast viðgræna og appelsínugula paprikubita og augun eru rúsínursem stungið er létt inn í hvítuna. Hægt er að leika sér meðeggin fram og til baka, leggja þau til dæmis ofan á brauð-
sneiðar sem eru skornar út með piparkökumótum sem eru
ekki of jólaleg.
Páskaommeletta
3 egg
4 eggjahvítur
1 dl rjómi
væn lúka ferskt spínat
5-6 beikonsneiðar
smjör til steikingar
1 bolli rifinn ostur
1 tsk. oregano
salt og pipar eftir smekk
Hrærið egg, eggjahvítur,
rjóma og krydd saman.
Mýkið spínatið í smjöri.
Hellið eggjablöndunni út á.
Steikið á hvorri hlið þar til
kakan er fallega gyllt. Sker-
ið í 5-6 ræmur, rúllið þeim
upp og vefjið beikoni utan
um.