Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Page 40
Tíska
Doppelganger
*Samstarfsverkefni hönnuðanna GuðrúnarLárusdóttur og Rögnu Fróða er ný línasem ber heitið Doppelganger. Í verslun-inni 38 þrep á Laugavegi 49, sýna hönn-uðirnir fallega prjónalínu með fagur-fræðilegu og vistvænu sjónarmiði.Sýningin er opin laugardag frá kl. 11.-16.
og sunnudag frá 11.-17.
Á
ttu þér einhverja tískufyrirmynd? Rick Owens, Kanye West og
Busta Rhymes; harðgerðir, klassískir og harðkjarna.
Hver er þinn uppáhaldshönnuður? Listinn er endalaus en ég
fylgist mest með Riccardo Tisci, Olivier Rousteing og Rick
Owens. Hérna heima eru það Fiona Cribben og Filippía Elísdóttir sem
koma alltaf mest á óvart samferða JÖR.
Ætlar þú að festa kaup á einhverju sérstöku fyrir vorið? Leður, roð og
Michelin gúmmítúttur – það eru skór í vinnslu.
Hvert er uppáhalds „trendið“ þitt fyrir vorið? Samfestingur – sem ég
vil meina að sé ákveðin skyldueign. Klæðnaður er brynja hvers og eins.
Hvað kaupir þú þér alltaf þó að þú eigir nóg af
því? Stórar, köflóttar „vintage“-skyrtur sem fara
rakleiðis inn í skáp … Nóg til og allar til sölu!
Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verðmiðann,
hvaða flík eða fylgihlut myndirðu kaupa? Mig
vantar einmitt Lamborghini MurcielagoLP640
Roadster VersaceEdition, ef fylgihlutur kallast.
Ertu með eitthvert mottó þegar kemur að
fatastíl? „Less is more, fashion whore!“ Það má
henda öllum þessum ofsa fjöldaframleiðslu fyr-
irtækjum út í geim.
Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú
tókst þátt í? Haha, já alveg nokkrum en einna
helst FuBu-gallanum úr Jónasi á milli, derhúf-
unni, dúnúlpunni og þykku reimunum í hvítu adi-
das-skóna. Allt í ljósbláu. Slær öllu og öllum
við … Rosalegt.
Hver er flottasta búð sem þú hefur komið í?
Versace í New York, 5th Avenue. Ég þarf eig-
inlega að hringja í Donatellu Versace og spyrja
hvort ég megi búa á efstu hæðinni.
Hver eru bestu fatakaupin þín?
Eldgamall prússneskur
hermannafrakki, „looks
like a billion dollars!“
FUBU-GALLINN SLÆR ÖLLU VIÐ
Alexander
Kirchner segir
bestu fatakaupin
hafa verið eld-
gamall prúss-
neskur her-
mannafrakki.
Morgunblaðið/Eggert
Klæðnaður
er brynja
ALEXANDER KIRCHNER, STÍLISTI OG HÖNNUÐUR,
HEFUR MIKINN ÁHUGA Á TÍSKU. ALEXANDER ER MEÐ
FLOTTAN STÍL OG SEGIR MEÐAL ANNARS SAMFEST-
INGA SKYLDUEIGN FYRIR VORIÐ.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Kanye West
er mikill
tískugúrú.
Lamborghini Murcielago LP640
Roadster Versace Edition er
fylgihlutur í lagi.
Alexander á nóg
af stórum köfl-
óttum skyrtum.
Prússneski her-
mannafrakkinn
er í miklu uppá-
haldi.
Hönnun
Fionu Crib-
ben er í miklu
eftirlæti hjá
Alexander.
Fatahönnuðurinn Rick
Owens er í uppáhaldi.