Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Síða 43
Hildur sótti
innblástur í
sterkar kven-
fyrirmyndir
og galdra
FATALÍNA INNBLÁSIN AF GÖLDRUM
Dans og dul-
mögnuð orka
L
ínan er innblásin frá dul-
magnaðri og kraftmikilli
orku sem finnst í náttúr-
unni. Þar vaxa grös, jurtir
notaðar til að útbúa seyði sem býr
yfir lækningamætti en það má einn-
ig nota til að öðlast andlegan styrk
eða til að tæla hjartað,“ segir Hild-
ur Yeoman fatahönnuður. Hildur
kynntist seiðkonu og saman þróuðu
þær jurtablöndur og mynstrin úr
þeim koma fram í prentun. Hún
segir línuna er ekki síður innblásna
af sterkum kvenfyrirmyndum í
bland við galdrana. „Mig langaði að
klæða þær konur í kringum mig
sem ég lít upp til, sem mér finnst
töff og áhugaverðar eða gefa frá sér
flotta orku,“ bætir Hildur við spurð
um val á fyrirsætum.
Á sýningunni náði hönnuðurinn
að skapa einstaka stemningu en
hún vann með Valgerði Rúnars-
dóttur og Aðalheiði Halldórsdóttur
sem sömdu dansverk fyrir sýn-
inguna. Þær fengu til liðs við sig
nokkra atvinnudansara til að sýna
og túlka seiðkonur.
„Ég hef unnið mikið með döns-
urum og hef rosalega gaman af því,
ég elska að sjá hvernig þeir túlka
fötin.“
Tónlistin var í höndum The Gosl-
ings, hljómsveit sem stofnuð var
fyrir sýninguna af þeim Kristínu
Önnu, Ásu Dýradóttur og Ingi-
björgu Turchi.
Sýningin var haldin í Vörðuskóla
sem hannaður er af Guðjóni Sam-
úelssyni.
„Ég er nýflutt handan við hornið
og horfi á skólann út um gluggann.
Eitt kvöldið datt mér í hug að kíkja
þarna inn, þá tók á móti okkur
þessi dásamlega fallegi inngangur
og stigi. Við urðum alveg heilluð af
skólanum sem spilaði stórt hlutverk
í sýningunni.“
FLÓRA ER NÝ FATALÍNA HILDAR YEOMAN. HILDUR
SÓTTI INNBLÁSTUR Í STERKAR KVENFYRIRMYNDIR
OG GALDRA. MIKILL KRAFTUR EINKENNDI ÞESSA
DULMÖGNUÐU SÝNINGU HILDAR.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Fatnaður
og fylgi-
hlutir eru
hönnun
Hildar en
skófatn-
aður er frá
GS skóm.
Morgunblaðið/Golli
Tónlist og dans í bland við
einstaka hönnun sköpuðu
dulmagnað andrúmsloft á
sýningunni.
15.3. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
SEPP
St. 42cm
ED
St. 38cm SAGGO
St. 37cm
OM
St. 35cm
Við borðum
áhyggjurnar þínar!
ÁHYGGJUÆTUR
NÝTT
POLLI
St. 42cm
FLINT
St. 33cm
Fæst í Hagkaup www.nordicgames.is