Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Blaðsíða 48
„Ég hef ríka þörf fyrir að prófa
eitthvað nýtt með hverju verk-
efni og það þarf alltaf að vera
einhver ný áskorun í hverju
verkefni þannig að það verði
alltaf einhver framþróun,“ segir
Jóhann meðal annars í viðtalinu.
AFP
leyti merki um að fólk treysti ekki efninu,
það notar tónlistina til að reyna að bjarga
því. Kvikmyndin er listform samstarfsins,
allir þessi þættir; leikur, kvikmyndataka,
leikmyndahönnun, búningahönnun, handrits-
gerð og tónlist, verða að virka saman, vera í
jafnvægi og hafa mjög skilgreind hlutverk,“
útskýrir hann.
Hann segir The Theory of Everything
vera mjög klassíska mynd. „Hún brýtur ekki
blað í kvikmyndasögunni en hún er einstak-
lega vel gert kvikmyndastykki. Allir þessir
þættir virka vel og hún er í góðu jafnvægi,“
segir hann og hrósar leikstjóranum James
Marsh og Working Title-framleiðendunum.
„Þetta er mjög fært kvikmyndagerðarfólk
sem kann sitt fag. Persónulega finnst mér
skemmtilegra að vinna á tilraunakenndari
hátt og vinna að kvikmyndum sem reyna að
færa út formið og gera eitthvað nýtt. Theory
er bara sérstaklega vel gerð kvikmynd sem
segir góða sögu vel og það er ekkert að því.
Það er virkilega gaman að hafa tekið þátt í
svona verkefni.“
Grunaði þig strax að þú værir með svona
gott efni í höndunum?
„Maður sá það strax í fyrsta klippinu að
þetta væri mjög sterkt efni og vel gert allt
saman. En nei, maður reynir bara að gera
sitt besta og fylgja innsæinu fyrir því hvað
virkar og hvað ekki. Síðan er það ekki fyrr
en maður sér myndina með áhorfendum að
maður fær raunverulega staðfestingu á því
að þetta virki.“
Ekki í þessu fyrir partíin
Þetta er sannarlega búið að vera óvenjulegt
ár hjá Jóhanni. Fyrir tónlistina í The Theory
of Everything hreppti hann Golden Globe-
verðlaunin og núna nýlega ASCAP Com-
poser’s Choice-verðlaunin. Hann var til-
nefndur til Óskarsverðlauna og BAFTA-
verðlauna, auk hátt í tíu annarra smærri
verðlauna.
Hvernig upplifun er að sækja allar þessar
flottu hátíðir, vera tilnefndur og taka við
verðlaunum?
„Það er rosalega gaman að upplifa þetta.
Þetta er mjög sérstök reynsla og fyrst og
fremst gaman að vinna okkar allra sem
komu að myndinni fái þessa viðurkenningu.
Ekki síst eins og með Óskarinn þar sem
kollegar manns tilnefna og kjósa. Þetta var
skemmtilegt en ég er ekki í þessu fyrir
partíin. Þegar komið var að Óskarnum var
þetta þriðja hátíðin í röð og ég var hálfpart-
inn kominn með nóg af fínum partíum og var
rosalega feginn þegar þetta var allt búið og
lífið komst í eðlilegan farveg,“ segir hann en
ítrekar að hann vilji ekki gera lítið úr þessu
eða sýna vanþakklæti. „Það er gríðarlegur
heiður að vera tilnefndur og ég tala nú ekki
um að fá verðlaun. En ég lít bara á það sem
hluta af vinnunni að fara í svona partí. Ég
kann miklu betur við mig í smærri hópum.
Þetta er ekki ástæðan fyrir því að ég er að
þessu. Ég væri mjög sáttur ef þetta væri í
eina skiptið sem ég þyrfti að fara í gegnum
þennan pakka. Þetta ákveðna verkefni var
óskarsvænt en það er fullt af frábærum
myndum sem falla ekki inn í þetta mót en
eru ekki síður áhugaverðar. Flest af því sem
ég hef mestan áhuga á fellur alls ekki inn í
þetta mót og ég á fastlega von á að þetta
hafi verið eitt stakt tilvik og muni aldrei ger-
ast aftur.“
Tvær kraftmiklar rokksveitir
Þótt Jóhann hafi nú öðlast frægð sem kvik-
myndatónskáld er hann ekki síður frægur
hjá blaðamanni fyrir að hafa verið í HAM og
Orgelkvartettinum Apparati.
„Báðar þessar hljómsveitir hafa haft mikil
áhrif á mig. HAM var alveg rosalega kraft-
mikil tónleikahljómsveit og kenndi manni
hvernig á að semja fyrir rokkhljómsveit og
hvernig á að búa til kraftmikið rokkband.
HAM var hópur af mjög sterkum karakter-
um og það var reynsluríkt að finna sitt pláss
inni í þeim hópi. Þetta eru mjög skapandi og
skemmtilegir menn sem eru enn í dag góðir
vinir mínir.“
Hann segir lærdóminn úr HAM hafa kom-
ið sér vel um hvernig eigi að búa til kraft á
sviði. „Þótt fátt sé líkt með Apparati og
HAM sameinar þessi kraftur þær. Apparat
var samstarf fimm tónlistarmanna og við
sömdum allt saman og þetta var mjög lýð-
ræðisleg hljómsveit. Allar ákvarðanir voru
teknar í sameiningu, samstarfið var mikið og
skapandi en það getur verið erfitt og tíma-
frekt að finna leiðir sem eru ásættanlegar
fyrir alla en ekki bara einhver málamiðlun.
Málamiðlun á ekki heima í listum.“
Annað skref á milli rokksviðsins og hvíta
tjaldsins hjá Jóhanni var að semja tónlist við
sviðsverk. „Ég var búinn að semja tónlist við
nokkur leikverk á undan Englabörnum en
það var það fyrsta sem vakti athygli. Engla-
börn var mikilvægt verk fyrir mig,“ segir
hann og vísar til plötunnar með sama nafni
en verkið á uppruna sinn í leikverkinu, sem
Hafnarfjarðarleikhúsið setti upp, en hann
endursamdi það fyrir plötuna. „Hún vakti
fyrst athygli á mér erlendis sem tónskáldi og
lagði grunninn að því sem ég er að gera
núna.“
Eimaði hugmyndir í Englabörnum
Hann segist hafa lítinn áhuga á því að end-
urtaka sig. „Ég hef ríka þörf fyrir að prófa
eitthvað nýtt með hverju verkefni og það
þarf alltaf að vera einhver ný áskorun í
hverju verkefni þannig að það verði alltaf
einhver framþróun. En með Englabörnum
fann ég mína rödd sem tónskáld. Í því verki
eimaði ég alla reynsluna frá áratugnum á
undan og þær hugmyndir sem ég hafði verið
að leika mér með í mörgum ólíkum verk-
efnum. Síðan hef ég verið að byggja á þess-
um grunni og það er búið að byggja við
hann,“ segir hann en Englabörn kom út árið
2002.
Jóhann hefur ekki búið á Íslandi frá árinu
2006. Hann bjó í Kaupmannahöfn í sjö ár en
er núna búsettur í Berlín. „Ég er búinn að
hafa atvinnu af tónlist í uppundir tuttugu ár.
Misgóða reyndar; þetta hefur verið erfitt á
tímabili og maður þurfti að temja sér mikla
nægjusemi til að geta einbeitt sér eingöngu
að tónlistinni. Ég vann lengi í Bóksölu stúd-
enta; það var ákveðið akkeri hjá mér. Ég
vann þar hálfan daginn og gat einbeitt mér
að tónlistinni restina af tímanum. En upp úr
1997 má segja að ég hafi einvörðungu unnið
við tónlist.“
Hann segir Berlín góða borg til að starfa
við skapandi listgreinar. „Þetta er skapandi
Jóhann hefur átt gjöf-
ult samstarf við kan-
adíska leikstjórann
Denis Villeneuve.
AFP
Magnaður leikur Eddies
Redmaynes veitti Jó-
hanni innblástur við
gerð tónlistarinnar í The
Theory of Everything.
AFP
Viðtal
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2015