Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Side 49
borg og hér eru margir spennandi listamenn
í tónlist, myndlist og kvikmyndum. Það er
mikill kraftur hérna, minnir mig dálítið á
Reykjavík þótt orkan þar sé alveg sérstök,
en hér er mikið af skapandi fólki að gera
spennandi hluti.“
Jóhann býr og starfar í Kreuzberg. „Ég er
yfirleitt kominn í stúdíóið um tíuleytið,“ seg-
ir hann en það er í um tíu mínútna göngu-
fjarlægð frá heimili hans.
„Þegar ég er að vinna vinn ég yfirleitt
langa daga,“ segir Jóhann sem vinnur stund-
um tíu til sex og tekur kvöldin í eitthvað
annað en kýs oft að hella sér í verkefnin.
„Ég kann rosalega vel við það að hella mér í
verkefnin og vinna frá tíu um morguninn til
tvö eftir miðnætti, fara heim og sofa nokkra
tíma og halda svo áfram. Auðvitað er ekki
hægt að gera það nema í stuttan tíma í einu
en sérstaklega á síðustu metrunum í verk-
efnum eru dagarnir oft svona; kannski í tvær
vikur í senn býr maður bara í stúdíóinu.“
Honum finnst gott að skipta um umhverfi
til að semja og hefur leigt sér kofa í Norm-
andí í Frakklandi og á Ítalíu rétt fyrir utan
Róm til að dvelja í til að fá hugmyndir og
semja tónlist.
„Síðan reyni ég líka að búa til tíma til að
fara á tónleika, listasöfn og að fara í bíó,“
segir Jóhann sem er mikill kvikmynda-
áhugamaður og hefur unun af kvikmynda-
hátíðum.
Mörg spennandi tilboð
En hefurðu tíma fyrir persónulegt líf?
„Maður finnur sér alltaf tíma fyrir það.
Mér finnst ég vera á stað í lífinu þar sem
vinna er mjög mikilvæg, hún er stór þáttur
af lífinu núna og fókusinn er mikið þar. En
auðvitað finnur maður tíma fyrir fjölskyld-
una og fólkið í kringum mann sem manni
þykir vænt um. En ég held að það viti það
allt að vinnan er mjög mikilvæg og ég er
mjög heppinn með það að fólkið í kringum
mig lætur þetta eftir mér,“ segir Jóhann.
Hann reynir að sinna kvikmyndatónlistinni
og sínum eigin verkefnum jöfnum höndum.
„Það er mjög freistandi að hella sér alveg í
kvikmyndatónlistina. Það er alveg nóg af til-
boðum, mjög spennandi tilboðum, verkefnum
sem eru heillandi og freistandi á alla vegu en
mér finnst mjög mikilvægt að halda jafnvægi
á milli kvikmyndaverkanna og minna eigin
og reyni að halda þeim hlutföllum nokkuð
jöfnum þótt ég viti ekki hvort ég get alltaf
staðið við það.“
Eins og áður segir fer í gang í vor vinna
við þriðju myndina sem hann gerir með Den-
is Villeneuve. „Þetta er spennandi verkefni.
Mynd sem heitir Story of Your Life,“ segir
hann en þetta er vísindatryllir með Amy
Adams og Jeremy Renner í aðalhlutverkum.
„Amy Adams er tungumálasérfræðingur sem
er fenginn til að vera túlkur í samskiptum
við verur frá geimnum sem lenda á jörðinni.“
Mikill Reykjavíkurmaður
Úr geimnum til Íslands, átt þú uppáhalds-
stað á Íslandi?
„Ég kann rosalega vel við mig í Reykja-
vík. Ég hef gert dálítið af því að fá lánuð
stúdíó hjá vinum mínum þegar ég kem til
landsins og öll mín fullorðinsár búið í 101
eða Vesturbænum á meðan ég bjó á Íslandi.
Ég er mikill Reykjavíkurmaður.“
Hann fær innblástur frá iðandi borgarlífi.
Í Kaupmannahöfn bjó hann á Istedgade og
var með stúdíó í Kødbyen. „Þar var mikið
mannlíf og eins hér í Berlín en ég er á Or-
anienstraße, sem er lífleg gata. Ég kann vel
við að vera í svona umhverfi. Ég þarf ekki
einhverja ídyllíska fegurð í kringum mig til
að búa til tónlist. Ég kann betur við að finna
fyrir lífi þegar ég er að labba heim klukkan
þrjú að nóttu.“
Næst á dagskrá er önnur stórborg en
Jóhann er á leiðinni til New York til að
frumflytja verk fyrir kór og strengjakvar-
tett. Verkið heitir Drone Mass og verður
flutningurinn í Metropolitan Museum of
Art þriðjudaginn 17. mars. „Þetta er mjög
spennandi ungur kór sem heitir Roomful of
Teeth og fékk Grammy-verðlaun á síðasta
ári og strengjakvartettinn ACME, Americ-
an Contemporary Music Ensamble, sem er
mjög spennandi hópur líka. Sem tónskáld
er maður háður flytjendunum, flutning-
urinn verður að vera góður og stór hluti af
því er að finna rétta fólkið til að vinna
með, flytjendur sem eru opnir fyrir hug-
myndum. Það getur verið erfitt að finna
fólk sem er á sama reki og þú sem tón-
skáld. Ég hef verið heppinn og maður þró-
ar smám saman með sér nef fyrir því að
finna fólk sem er gott að vinna með og hef-
ur tilfinningu fyrir því sem maður er að
gera.“
Hann játar því að það sé mikið haft sam-
band við hann þessa dagana og er hann
bókaður á nokkra fundi í New York. „Jú,
það er mikið af tilboðum núna og alls kon-
ar hlutir eru að detta inn en ég var í raun-
inni búinn að ráðstafa árinu áður en til-
nefningarnar og verðlaunin komu til
sögunnar. Það er fullt af spennandi verk-
efnum í boði, sem maður getur því miður
ekki tekið að sér. Það hefur lengi verið nóg
að gera hjá mér, það er ekkert nýtt, það
hefur verið brjálað að gera hjá mér í tíu
ár. En það sem breytist með þessum verð-
launum er að maður getur valið úr fleiri og
stærri verkefnum.“
Í snjókomunni í Reykjavík vaknar ein
spurning að lokum: Er komið vor í Berlín?
„Það kom bara í gær! Þetta er ekki búinn
að vera kaldur vetur, frekar mildur, en í gær
kom allt í einu þessi fallegi vordagur, hlýtt
og sólbjart,“ sagði Jóhann í upphafi vikunnar
og sólargeislarnir teygja sig vonandi bráðum
norður til okkar á Íslandi.
Jóhann (lengst til hægri) var um skeið meðlimur í hinni goðsagna-
kenndu og kraftmiklu rokkhljómsveit HAM.
Hörður Bragason og Jóhann á sviði með Orgelkvartettinum
Apparati í Klink og Bank árið 2004.
Morgunblaðið/Kristinn
Lhooq: Sara Guðmundsdóttir, Pétur Hallgrímsson og
Jóhann á tíunda áratuginum.
Daisy Hill Puppy Farm: Frá vinstri, Stefán Marteinsson,
Ólafur Gíslason og Jóhann. Það má geta þess að Dagur
Kári var meðlimur í hljómsveitinni um tíma.
* Þegar best læturverður kvikmynda-tónlist hálfgerður karakter
í myndinni. Kommentar á
og undirstrikar söguna,
tilfinningar og blæbrigði.
Á sama hátt má hún ekki
segja það sama og er að
gerast á skerminum
15.3. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
Foreldrar Jóhanns eru Jóhann Gunnarsson og Edda Þorkels-
dóttir. Þau eru bæði á eftirlaunum núna og eru búsett í Hvera-
gerði. Móðir hans var lengi húsmóðir en starfaði einnig á skrif-
stofunni hjá Raunvísindastofnun Háskóla Íslands. Faðir hans
starfaði hjá IBM, bæði á Íslandi og í Frakklandi, en var síðar for-
stöðumaður Reiknistofnunar Háskólans og vann einnig hjá fjár-
málaráðuneytinu.
„Hann vann við fyrstu tölvuna sem kom til Íslands sem var
líka kveikjan að verki sem ég gerði fyrir um tíu árum sem heitir
IBM 1401 – A User’s Manual og var þriðja sólóplatan mín. Hún
var byggð á upptökum á tónlist sem hann bjó til ásamt kollegum
sínum á þessa fyrstu tölvu sem kom til Íslands á sjöunda ára-
tugnum. Það var gerð upptaka af þessum hljóðum þegar tölvan
var tekin úr umferð árið 1971 við hálfgerða kveðjuathöfn. Þeg-
ar hann sagði mér frá þessum upptökum fannst mér þetta mjög
áhugavert. Þetta er eitt af fyrstu dæmunum um tölvugerða tón-
list á Íslandi ef ekki á öllum Norðurlöndunum,“ segir hann.
„Við erum á kafi í tölvuöldinni núna og hún virðist vera að
gleypa okkur. Þetta voru aðrir tímar og saklausari þegar þessar
fyrstu fjöldaframleiddu tölvur voru að koma fram. Þetta er ein-
hver svona nostalgía og requiem fyrir heim sem við þekkjum
ekki lengur en byggjum á.“
Jóhann er núna með nýtt verkefni í gangi varðandi IBM 1401.
„Við komumst í samband við menn sem hafa verið að endur-
byggja og gera upp tvær IBM 1401-tölvur í Kísildalnum í
Computer History Museum í Mountain View í Kaliforníu. Ég
ætla að semja nýja tónlist fyrir þessar uppgerðu tölvur og við
erum líka að vinna að kvikmynd sem við ætlum að gera byggða
á þessari forsögu tölvunnar og tölvunarfræðinnar. Það þarf að
hlúa að þessari arfleifð. Núna lítum við á tölvur sem frekar ein-
nota fyrirbæri, sem úreldist mjög fljótt. En þarna eru karlar á
eftirlaunaaldri að gera upp tölvur frá 1965. Þær eru í raun
gagnslausar í dag og tækið sem við erum öll með í vasanum er
milljón sinnum öflugra en þessi tölva, en það er einhver ljóð-
ræna í þessu sem mér finnst heillandi.“
ENDURBYGGÐ OG UPPGERÐ IBM 1401
Nýtt verk á gamla tölvu