Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Blaðsíða 59
15.3. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
Skrudda hefur gefið út
skemmti- og spennusöguna Eit-
urbyrlarinn ljúfi eftir finnska
rithöfundinn Arto Paasilinna,
sem er með þekktustu rithöf-
undum Finna. Bókin segir frá
ofurstaekkjunni Linneu Ra-
vaska sem hefur komið sér vel
fyrir í kyrrð sveitarinnar og
hyggst eyða þar ævikvöldinu í
friði og ró. Hun fær þó ekki að
vera í friði því um hver mán-
aðamót, þegar hún fær ellilíf-
eyrinn útborgaðan, birtast ætt-
ingjar hennar úr borginni í
sníkjuferð og setjast upp hjá
henni þar til peningurinn er
upp urinn. Hún gefst á end-
anum upp á mannleysunum og
forðar sér á flótta, en þeir elta,
sem kallar á ýmsar uppákomur.
Ofurstaekkja í
ævintýrum
Samtök bandarískra bókmenntagagn-
rýnenda veita sérstök bókmennta-
verðlaun ár hvert og hafa gert í fjöru-
tíu ár eða þar um bil. Verðlaunin, sem
talin eru með helstu bókmenntaverð-
launum vestan hafs, eru jafnan kynnt í
upphafi hvers árs, missnemma reynd-
ar.
Í vikunni voru kynnt bókmennta-
verðlaun samtakanna fyrir bækur sem
komu út árið 2014, en verðlaunaflokk-
arnir eru átta, aukinheldur sem valinn
er gagnrýnandi ársins og veitt við-
urkenning fyrir starf að kynningu og
umfjöllun bóka.
Verðlaun fyrir bestu skáldsöguna
hlaut Marilynne Robinson fyrir Lila.
Besta fræðibók eða bók almenns eðlis
var valin The Problem of Slavery in
the Age of Emancipation eftir David
Brion Davis.
Bók teiknarans Roz Chast, Can’t
We Talk About Something More
Pleasant?, fékk verðlaun sem besta
sjálfsævisagan, en besta ævisagan var
valin Tennessee Williams: Mad Pilgri-
mage of the Flesh eftir John Lahr.
Ljóðabók ársins er Citizen: An Am-
erican Lyric eftir Claudia Rankine.
Besta gagnrýnin er The Essential
Ellen Willis sem geymir verk tónlist-
argagnrýnandans Ellen Willis, Nona
Willis Aronowitz ritstýrði.
John Leonard-verðlaunin fyrir bestu
fyrstu bók fékk Phil Klay fyrir smá-
sagnasafnið Redeployment, Ivan Sand-
rof-verðlaunin fyrir ævistarf í bók-
menntum fékk Toni Morrison og
Nona Balakian-viðurkenninguna fyrir
gagnrýni fékk Alexandra Schwartz sem
er bókmenntagagnrýnandi New Yor-
ker.
BÓKMENNTAVERÐLAUN GAGNRÝNENDA Bandaríski rithöfundurinn Toni
Morrison fékk viðurkenningu fyrir
ævistarf í bókmenntum. Hún fékk
bókmenntaverðlaun Nóbels 1993.
Maður sem heitir Ove eftir
Fredrik Backman seldist met-
sölu sumarið 2013 og Amma
biður að heilsa seldist vel síð-
asta sumar. Þriðja bókin eftir
Backman kom svo út í vikunni
og heitir Britt-Marie var hér.
Bókin segir frá Britt-Marie
sem búið hefur í ástlausu
hjónabandi í fjörutíu ár með
Kent, sem er verktaki, ofboðs-
lega duglegur verktaki, sem á
sér leyndarmál. Þegar upp
kemst um það leyndarmál
neyðist hún til að halda út á
vinnumarkaðinn og á þeim
markaði skiptir þekking og
reynsla í heimilishaldi engu
máli, ekki einu sinni þótt hún sé
bæði smámunasöm og þrjósk.
Þriðja bókin
eftir Fredrik
Backman
Fyndnar sögur
af furðufuglum
SUMARSMELLIR
ÞÓ ENN SÉ NOKKUÐ Í SUMAR, ÓRALANGT SEG-
IR SÁ SEM LÍTUR ÚT UM GLUGGANN, ERU
VÆNTANLEGIR SUMARSMELLIR AÐ KOMA ÚT UM
ÞESSAR MUNDIR. VIÐ ERUM GEFIN FYRIR FYNDN-
AR SÖGUR AF FURÐUFUGLUM EKKI SÍÐUR EN
FRÆNDÞJÓÐIR OKKAR OG SAGAN AF BRITT-
MARIE Á EFLAUST EFTIR AÐ VERÐA VINSÆL OG
EKKI SÍÐUR SAGAN AF EKKJUNNI RÁÐAGÓÐU
LINNEA RAVASKA.
Fyrsta hefti ársins af Tímariti Máls
og menningar er komið út. Meðal
efnis eru óbirt ljóð eftir Einar
Braga, viðtal Kristínar Ómars-
dóttur við Álfrúnu Gunnlaugs-
dóttur, Gísli Sigurðsson fjallar um
heimildagildi Landnámu, Kjartan
Már Ómarsson segir frá Guðjóni
Samúelssyni og Svavar Gestsson
skrifar um bókina Í köldu stríði
eftir Styrmi Gunnarsson.
Fyrsta hefti
TMM
Ömmumatur Nönnu heitir mat-
reiðslubók eftir Nönnu Rögnvald-
ardóttur sem Iðunn gefur út.
Í bókinni birtir Nanna ýmsar upp-
skriftir að íslenskum heimilismat sem
fólk á miðjum aldri og eldra ólst upp
við sem algengan heimilis- og sparimat.
Sem dæmi má nefna að uppskriftir
eru að blómkálssúpu, rækjukokkteil,
laxasalati, kryddsíld, plokkfiski, kóte-
lettum í raspi, kakósúpu, vínartertu,
brúnuðum kartöflum og rabarbara-
sultu. Alls eru áttatíu uppskriftir í bók-
inni.
Uppskriftir að
íslenskum
heimilismat
BÓKSALA 4.-10. MARS
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 AfturganganJo Nesbø
2 AlexPierre Lemaitre
3 Meðvirkni Orsakir, einkenni,úrræði
Ýmsir höfundar
4 Independent PeopleHalldór Laxness
5 NáðarstundHannah Kent
6 Dansað við björninnRoslund & Thunberg
7 Heint mataræðiDr.Alejandro Junger
8 Aftur á kreikTimurVermes
9 ÖræfiÓfeigur Sigurðsson
10 Ömmumatur NönnuNanna Rögnvaldardóttir
Íslenskar kiljur
1 AfturganganJo Nesbø
2 AlexPierre Lemaitre
3 NáðarstundHannah Kent
4 Dansað við björninnRoslund & Thunberg
5 Aftur á kreikTimurVermes
6 ÖræfiÓfeigur Sigurðsson
7 VesturfarasögurnarBöðvar Guðmundsson
8 SkuggahliðinSally Green
9 ViðDavid Nicholls
10 LjónatemjarinnCamilla Läckberg