Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 11

Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 11
Bókasafnið 38. árg. 2014 1 1 Inc., 1983; Moore, 1986; Stuart­Stubbs, 1989; Van House, Roderer og Cooper, 1983; The 8Rs Research Team, 2005﴿. Fram kom gagnrýni þess efnis að slíkar rannsóknir gætu ekki haft forspárgildi vegna þess að spáin byggðist á því liðna en framtíðin væri háð þáttum sem væru óþekktir á spátíma. Bæði ytri þáttum: stjórn­ málalegum, hagfræðilegum, félagslegum og tæknileg­ um, auk annarra ytri þátta og samspili þeirra. Einnig gætu innri þættir ófyrirséðir á rannsóknartíma, haft áhrif á eftirspurn eftir mannafla framtíðar. Auk þess hélt Rowley því fram að atvinnumöguleikar einstaklinga væru undir þeim sjálfum komnir, það er að segja hvort þeir hæfðu þeim störfum sem í boði væru. Þá taldi hún að rangt væri að miða fjölda útskrifaðra við eftirspurn. Ef fjöldi þeirra væri umfram hana leituðu þeir starfa á öðr­ um vettvangi þar sem menntun þeirra nýttist. Við það stækkaði óðal fagstéttarinnar og mikilvægi hennar ykist ﴾Rowley, 1989; Slater, 1979; Stuart­Stubbs, 1989﴿. Ýmsir héldu því fram að í þeim efnum væri ímynd bóka­ safns­ og upplýsingafræðinga þeim fjötur um fót ﴾LaCroix, 1986­1987; Loughridge, 1990; Moore, 1987a, 1987b; Rowley, 1989; Slater, 1987; Stefanía Júlíusdóttir, 2013a﴿. Að margra mati hefði eftirspurn eftir bókasafns­ og upplýsingafræðingum átt að aukast í upplýsingaþjóðfé­ laginu svokallaða, vegna þess að þjónusta, sérstaklega upplýsingaþjónusta hlyti að vera mikilvægari þar en í iðnaðarþjóðfélögum. Eftirspurnin væri þó háð því að bókasafns­ og upplýsingafræðingar væru færir um og reiðubúnir til þess að leysa nýjar tegundir starfa af hendi ﴾Moore, 1987a, 1988, 1989; Rowley, 1989; Slater, 1979, 1987; Stefanía Júlíusdóttir, 2013a; Stuart­Stubbs, 1989﴿. Af því fór tvennum sögum. Annars vegar að þeir fengju störf við að skipuleggja og miðla þekkingu og upplýsing­ um utan hefðbundinna bókasafna og hins vegar að þeir sæktu aðeins um takmarkaðan fjölda slíkra starfa og ættu þar í harðri samkeppni við fólk með annars konar menntun á sviði upplýsingatækni ﴾Harris, 1988; Humle og Wilson, 1988; Myers, 1986; Sellen og Vaughn, 1985; Van House, Roderer, og Cooper, 1983; Stefanía Júlíus­ dóttir, 2013a﴿. Abbott ﴾1988﴿ greindi þróun þriggja starfsstétta samkvæmt kenningu sinni. Ein þeirra var fagfólk sem miðlar upplýsingum ﴾the information professionals﴿, annars vegar fagfólk sem miðlar eigindlegum upplýsing­ um ﴾qualitative information﴿ og hins vegar fagfólk sem miðlar megindlegum eða magnbundnum upplýsingum ﴾quantitative information﴿. Undir fyrra heitið ﴾fagfólk sem miðlar eigindlegum upplýsingum﴿ setti Abbott bóka­ safnsfræðinga ﴾librarians﴿ ásamt háskólafólki, blaða­ mönnum, auglýsendum og fleiri stéttum. Hann greindi þróun bókasafnsfræðinga í BNA með hliðsjón af þremur ytri þáttum: í fyrsta lagi félagslegum og menningarlegum þáttum, í öðru lagi samkeppni frá öðrum fagstéttum og stofnunum og í þriðja lagi nefndi hann þjónustuaðila sem kynnu að bjóða upp á bókasafns­ og upplýsinga­ þjónustu án aðkomu bókasafna ﴾Abbott, 1988; Stefanía Júlíusdóttir, 2013a﴿. Samkvæmt Abbott varð stétt bókasafnsfræðinga í BNA til vegna stofnunar bókasafna. Skólabókasöfn voru stofnuð um miðbik 19. aldar, en síðan almennings­ bókasöfn á seinni hluta aldarinnar og háskólabókasöfn og sérfræðibókasöfn undir lok hennar. Mikilvægustu safnategundirnar fyrir stétt bókasafnsfræðinga voru al­ mennings­ og háskólabókasöfn. Stétt þeirra veitti forsjá útgáfuritum1 sem varðveittu menningarauðinn. Það fólst í því að hún skráði og skipulagði söfn útgáfurita og stjórnaði notkun þeirra. Við það lagði hún áherslu á þrennt. Í fyrsta lagi á að skrá og skipuleggja safnkost bókasafna þannig að aðgangur að upplýsingum væri greiður. Í öðru lagi var áhersla á menntun ﴾safngesta﴿ með betrun að leiðarljósi og í þriðja lagi var áhersla á afþreyingu ﴾safngesta﴿ með ánægju að leiðarljósi. Stétt bókasafnsfræðinga ákvað hvaða efni safngestur ættu að finna á bókasöfnum fram undir lok 20. aldar. Á sér­ fræðibókasöfnum töldu bókasafnsfræðingar sig geta fundið það sem starfandi fagfólk á öðrum sviðum en bókasafnsfræði hefði ekki tíma ﴾eða jafnvel ekki færni﴿ til að finna, og bókasafnsfræðingar töldu sig vita hvaða upplýsingar hæfðu lausn tiltekinna vandamála við til­ teknar aðstæður ﴾Abbott, 1988, s. 216­224; Stefanía Júlíusdóttir, 2013a﴿. Úthýsing verkefna og þjónusta einkaaðila varð snemma mikilvæg fyrir starf bókasafnsfræðinga í BNA. Allt frá seinni hluta 19. aldar reiddu þeir sig á þjónustu einkafyrirtækja sem störfuðu á landsvísu ﴾t.d. fyrirtækið Bowker﴿. Skipulagsvinna ﴾skráning, flokkun og lyklun﴿ var unnin miðlægt hjá Library of Congress ﴾bandaríska þingbókasafninu﴿ alla 20. öldina, og einnig á vegum annarra aðila fyrir þann tíma. Við efnisval voru notuð hjálpartæki á borð við tímaritð Choice. Algengt var að uppbygging safnkosts í stærri bókasöfnum færi þannig fram að aðeins væri valið úr úrvali útgáfurita sem sér­ stakar einkareknar þjónustustofnanir á sviði dreifingar 1 Að mestu leyti var um markaðsútgáfu á bókasöfnum að ræða (athugasemd SJ )
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.